Græna orkukerfi ESB að hrynja

windmillsunnamedLengi hefur verið ljóst að orkustefna ESB mundi hrynja. Nú eftir að orkukreppan versnaði í haust hefur ESB loksins viðurkennt í verki að "endurnýjanleg orka" gengur ekki upp. Það stefnir í tilskipun  um að jarðgas og kjarnorka verði nú líka skilgreind sem græn orka! (ESB er sjóað í að hártoga og ljúga að sjálfu sér).

ESB virðist vera að vakna af draumórunum um "orkuskipti" og "græna orku" sem ættaðir eru frá sértrúarsöfnuðum umhverfisöfgalýðs og svindlara. Sambandslönd eru orðin löðrandi í óhagkvæmum og ónýtum vindmyllum og sólarpanelum sem þurfa jafnstór alvöru orkuver með sér til að gagnast orkukerfum sambandslanda, glórulaus "græn fjárfesting" sem nú er farin að draga dilk á eftir sér.

https://www.theguardian.com/world/2022/jan/03/fury-eu-moves-ahead-plans-label-gas-nuclear-green


Við erum frjáls!

í núripexels-photo-7327389Um áramót belgja okkar ráðamenn sig út: Ísland er frjálst og fullvalda lýðræðisríki!

Frjálsa fullvalda lýðræðis-Ísland lýtur erlendri stjórn, stór hluti laga og reglugerða landsins er saminn af fulltrúum annarra þjóða. Gæslumenn okkar lýðræðis gleypa þær með skít og skinni en fá í staðinn að leika sér með smámál og að skaffa peninga í að framfylgja útlendu lögunum.

Svona er lýðræðið hjá gömlu lýðræðisþjóðinni: Lýður í Brussel ræður!

https://www.frjalstland.is/


2021 glatað ár

sinkpexels-photo-6858665Kínaveira og fálm stjórnvalda á Vesturlöndum, vangeta og spilling hjá Sameinuðu þjóðunum, ollu víðtækum áföllum. Heimurinn færðist nær stórátökum og styrjöld. Kína og fleiri einræðisríki héldu áfram að vaða yfir aðrar þjóðir og hervæðast. NATO og ESB héldu áfram með stríðsæsingar gegn Rússum og ögrunum um að innlima Úkraínu. Bandaríkin komust undir áhrif niðurrifsafla og vinstriöfgamanna með elliæran forseta. Öfgaflokkar með hættuleg stefnumál óðu uppi á Vestulöndum með skemmdarverkum og hótunum. Sameinuðu þjóða stofnanir (Alþjóða heilbrigðisstofnunin, Milliríkjanefnd um loftslagsbreytingar og fleiri) reyndust spilltar og ekki vaxnar hlutverki agaðra alþjóðastofnana. Kverkataki umhverfisofsatrúarflokka var ekki hægt að hrinda, niðurrif efnahags Vesturlanda heldur áfram með "orkuskiptum" heimskra manna. Flóðbylgjur þróunarlandamanna og trúaröfgalýðs skella áfram á siðmenntuðum löndum Evrópu og Norður-Ameríku. Offjölgunin i örbirgðar- og ofsatrúarheiminum stöðvast ekki og hryðjuverkaógnin vex í siðmenntaða heiminum.

Ísland þraukar áfram vegna öflugra fyrirtækja þrátt fyrir valdalítil stjórnvöld landsins. Lítil meirihátar uppbygging varð á árinu en þeim mun fleiri heimskulegar hugmyndir komust á kreik. Vonandi nær þekking og framfaravilji yfirhöndinni á árinu 2022.


Evrópusambandið heldur áfram að setja Íslandi lög

EUflageurope-1045334_960_720Alþingi á að halda áfram í vetur að setja Ísland undir ESB-lög og reglur. Af 145 þingmálum ríkisstjórnarinnar eru 53 frá ESB vegna EES-samningsins. Alþingi getur ekki lengur sett eða breytt lögum að vild vegna EES og laga ESB.

Evrópusambandið heldur áfram að setja Íslandi lög


Jólakveðja

Sendum öllum bloggurum og lesendum þeirra ósk um gleðileg jól.

Gleðileg Frjálst land


EES-bílaskoðun

serious-senior-office-manager-giving-orders-now-go-work-ambitious-tireless-overweight-worker-sitting-desk-managing-.jpgTilskipanirnar frá ESB v/EES fljóta inn í stríðum straum, hver óþarfari en önnur. Nú á að fara að skoða bíla samkvæmt nýstimpluðum og arfavitlausum ESB tilskipunum (nr. 2014/45, 2014/47 og 2017/2205) í andstöðu við þá sem sjá um skoðanirnar hér heima. Við ráðum engu, ESB ræður meðan EES-áþjánin hefur ekki verið afnumin. Bábiljustefna ESB er að setja stöðugt meiri kvaðir á eigendur venjulegra bíla. Það hentar ekki í dreifbýlu landi.

https://www.mbl.is/mogginn/bladid/innskraning/?redirect=%2Fmogginn%2Fbladid%2Fgrein%2F1797694%2F%3Ft%3D421634018&page_name=grein&grein_id=1797694


Er danska veðurstofan farin í svindlið?

Skip íshafimage-116-768x408

 

 Þær válegu fregnir berast frá Danmörku að danska veðurstofan sitji undir ásökunum um að vera gengin í lið loftslagssvindlara.

https://www.frjalstland.is/2021/12/18/danska-vedurstofan-i-loftslagssvindlid/


"Sjálfstæðisflokkurinn þarf að stoppa"

BB febSjálfstæðisflokkurinn þarf að stoppa Viðtal við Guðmund í Brim, sem gagnrýnir endalaust flæði ESS tilskipanna og innleiðingu 3ja OP.

Það eru ekki margir ESB sinnar í sjávarútveginum, því ESB samningurinn gaf sjávarútveginum lítið til viðbótar við tollasamning Íslands og ESB.

Árið 1973 sömdu Íslendingar um fríverslun með iðnvarning við Efnahagsbandalag Evrópu, forvera Evrópusambandsins. Í bókun 6 við þann samning var meðal annars kveðið á um fullt tollfrelsi á frystum flökum og lifur frá Íslandi, auk rækju, mjöls og lýsis.- Þessi samningur er enn í gild og íslenskar sjávarafurðir eru tollafgreiddar inn í ESB samkvæmt honum.

Eina markverða viðbótin fyrir sjávarútvegin í EES samningnum var lækkun tolla á saltfiski og ferskum fiskflökum, sem var fyrst og fremst til Bretlands og nú hefur verið samið um við Breta.

BÁBILJAN UM AÐ EES SAMNINGURINN HAFI GEFIÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI MIKIÐ ER ÁRÓÐURSBULL ESB SINNA.

 


ESB-dísilglundur

green-gas-pump-nozzle-7434375_1365052.jpgN1 ætlar að hætta að selja glundrið sem ESB fyrirskipar að sé notað sem dísil, það er díselolía blönduð mð sulli úr jurtaolíum sem á að minnka losun ESB/EES á gróðurhúsa-lofttegundum. https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2021/12/16/haetta_ad_flytja_inn_lifdisilblondu_fra_noregi/

Díselglundur ESB bætir ekki loftslag en er lélegt eldsneyti sem skemmir vélar landsmanna.

https://www.frjalstland.is/2018/04/05/dyrt-og-lelegt-bensin-veldur-umhverfisalagi/


Endurnýttar blekkingar RÚV

icebergpexels-photo-694218RÚV endurnýtti tvær blekkingar frá Alþjóða veðurstofnuninni, WMO, í kvöldfréttum 14.12.2021:

1-Hitamet norðan heimskautsbaugs í Verkhoyansk í Rússlandi 20.6.2020.

Hið rétta er að hitametið, 38°C, er frá 27.6.1915, Fort Yukon í Alaska. https://www.infoplease.com/math-science/weather/record-highest-temperatures-by-state

Vilhjálmur Stefánsson útskýrði fyrir National Geographic 22.8.1922 af hverju hár hiti væri ekki óvenjulegur á norðurskaustssvæðinu, WMO hefur líklega ekki lesið vísindi Vilhjálms.

2-Hitamet var slegið á Suðurskautinu.

Það rétta er að síðasti vetur var sá kaldasti sem mælst hefur á Suðurskautinu.https://notrickszone.com/2021/11/09/temperature-bottom-falling-out-antarcticas-coldest-half-year-since-measurements-began-60-years-ago/

https://www.ruv.is/frett/2021/12/14/haesti-hiti-a-nordurslodum-stadfestur


Búið af batteríinu

Norðmenn og Svíar, miklar umhverfistrúarþjóðir, þurfa nú að senda björgunarsveitir til að bjarga saklausum borgurum sem voru vélaðir til að aka á rafbílum. Þegar frostið fer niðurí 7 stig minnkar drægni rafbílanna um helming. Þeir sem sitja fastir í...

Erfðasilfrinu sóað

Iðnaðarráðuneytið stjórnaði aðal framtíðarauðlind Íslands en var lagt niður af ráðamönnum sem vissu ekki hvað þeir voru að gera. Uppbygging orkukerfisins hefur strandað í rammaáætlun og umhverfistrúar-bábiljum. EES-tilskipanirnar hafa splundrað...

Er aflskortur Landsvirkjunar leikrit?

Spilar Landsvirkjun "skammtímaskort" á almenning og stjórnvöld til að stýra hækkun á rafmagnsverði, eða hvað? Nýir orkusamningar Landsvirkjunar síðustu ár hafa fyrst og fremst verið við Bitcon gagnaver (og í raun á kostnað orku til vöruframleiðslu eins...

Lýðræði? Nei, forræði.

Lýðræði? Ekki lengur, það fór í úreldingu. Lýðurinn fær þó áfram að kjósa sér fulltrúa en þeir ráða litlu. Forræði embættismanna, nefnda og ráða, er tekið við, ábyrgðarlausir aðilar, oft valdagráðugir, vanhæfir og spilltir og til bölvunar. Þeir fara oft...

Orkuskortur?

Landsvirkjun annar ekki lengur eftirspurn eftir raforku. Uppbygging orkukerfisins lenti í klóm afturhaldsins með s.k. "rammaáætlun" sem reyndist sandkassi umhverfistrúarsöfnuða og hefur sett höft á uppbygginguna. Og nú er ekki nóg jöklabráðnun (vantar...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband