Græn iðnbylting
11.2.2022 | 16:10
Samtök iðnaðarins og ríkisstjórnin ætla að gera "græna iðnbyltingu" til þess að draga úr "losun kolefnis", auðvitað samkvæmt tilskipunum ESB þar sem græna kreppan er skollin á (hafið þið heyrt áður um ráðherra og félög úti í bæ sem gera byltingu?) Orkuskiptin eru draumórar
Miðstjórn grænu byltingarinnar mætti á Hellisheiði (Mbl 11.2.2022) þar sem ein fyndnasta tilraunin er í gangi með að ræna jurtir jarðarinnar næringunni, sem kemur úr jarðhitanum og þær eiga tilkall til, og dæla henni niður í hraunið. https://www.carbfix.com/
Og jafnvel er líka verið að stela næringunni úr loftinu þaðan sem jurtirnar fá hana. Sem betur fer verður Carbfix-árangurinn aldrei mælanlegur, 77.000 tonn á 7 árum á sama tíma og jurtir jarðar hafa bundið 6.000.000.000.000 tonn (sexþúsundmilljarða!).
"Grænar fjárfestingar" eru þekktar fyrir plat-verkfræði en er haldið uppi með almannafé. Eða af snobbuðum auðmönnum til að afla vinsælda hjá krökkunum og umhverfistrúarsöfnuðunum.
En það er vel hægt að byggja áfram upp arbæran iðnað á Íslandi ef "grænu fjárfestingunum" er hafnað Hvernig á að nýta islenska raforku
Okkar stjórnvöld verða að segja okkur svo skiljist hvað mikið af okkar peningum fer í "grænu" málin, loftslagssvindlið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sjálfstæð þjóð?
9.2.2022 | 14:29
Refsiaðgerðum Íslands gegn Rússlandi "vegna ástandsins í Úkraínu" er stjórnað í Brussel. Nýjasta tilskipanadræsan sem okkar ráðherrar eru látnir gefa út sem íslenska reglugerð, er frá 11. janúar, nr/0066-2022
Þar er meðal annarra "ákvörðun ráðsins" um "þvingunaraðgerðir vegna ólöglegrar innlimunar Kríms og Sevastopol"
Eins og fróðir menn þekkja er þetta stöðluð ESB-lygi. Það var Úkraína sem innlimaði Krím ólöglega og afnam stjórnarskrána 17. mars 1995 og reyndi að ráða forseta Krím, Yuriy Meshkov, af dögum. ESB og NATO komu ekki á refsiaðgerðum þá heldur þögðu. En það var svo eftir að löglega kjörin stjórnvöld Úkraínu neituðu að sækja um aðild að ESB 2013 sem Obamastjórnin og peningaöfl í NATO og ESB fjármögnuðu óeirðaseggi til að kynda elda í Kænugarði og flæma löglega kjörinn forseta frá völdum. Þar með sauð uppúr í Austur-Úkraínu og Rússum kennt um eins og venjulega. Það er "ástandið í Úkraínu", afleiðing afskipta ESB og NATO-landa. Og ESB og NATO létu okkur setja viðskiptabönn á Rússland. "Sjálfstæða" Ísland fórnaði einu besta viðskiptalandinu fyrir lygar frá NATO og ESB. https://www.frjalstland.is/2021/07/02/island-i-erindrekstri-fyrir-esb/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
NATO æsir til stríðs
7.2.2022 | 14:58
Áróðursmenn helstu NATO-landa dreifa nú áróðri um að Rússar ætli að ráðast inn í Úkraínu. NATO neitar að semja við Rússa um að minnka vopnaskak nálægt landamærum Rússlands. Við undirlægjurnar á Norðurlöndum dönsum með.
Þessi áróður er hreinar stríðsæsingar sem eru til þess að leiða athyglina frá miklum vanda sem þessar ríkisstjórnir NATO-þjóða eiga við að stríða. Bandaríkjastjórn gefst upp í Afganistan, ræður ekki við glæpagengin, vergang heimilislausra og síhækkandi orkuverð heimafyrir vegna heimskulegrar barátu gegn eldsneyti. Í Bretlandi segja menn að Boris eigi ekki að drekka bjór grímulaus í garðveislum en óvinsældir ríkisstjórnarinnar stafa af síhækkandi orkuverði vegna grænna stefnumála og meðfylgjandi dýrtíðar ("cost of living crisis").
Hvort NATO tekst að æsa Rússa upp í að taka Úkraínu, sögulega hérað í Rússaveldi, getur verið spurning um heimsstyrjöld eða frið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Rannsóknir bannaðar
4.2.2022 | 15:49
Bábiljur sértrúarsöfnuða eru farnar að stjórna landinu. Ríkisstjórnin ætlar að láta Alþingi banna rannsóknir á olíu- og gassvæðum Íslands.
https://www.frjalstland.is/2022/02/04/rannsoknir-bannadar/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Draumur skriffinnanna
2.2.2022 | 13:43
ESB setur eina álöguna eftir aðra, nú kemur CBAM "-best lýst sem draumi hvers skriffinns í Brussel - Vandinn við ETS, (viðskiptakerfi ESB fyrir "losunarheimildir" koltvísýrings) er að fyrirtæki utan ESB/EES greiða lítið sem ekkert fyrir losun - ætlunin er að láta fyrirtæki utan ESB/EES greiða losunargjöld af þeim afurðum sem fluttar eru til ESB/EES- Ef framleiðslukostnaður hækkar innan ESB/EES skapast hætta á að fyrirtæki flytji starfsemi sína út fyrir ESB/EES-" (Pétur Blöndal, ViðskiptaMbl 2.2.2022)
Íslensk fyrirtæki þurfa að borga vaxandi milljarðaupphæðir í braskkerfi ESB, ETS. Nýja CBAM er viðbót við síbólgnandi fargan frá Brussel: ETS tottar flug og iðjuver, ESR tottar vegna allra hinna, LULUCF tottar bændur. Öll kerfin eru fjárplógsstarfsemi ESB sem hafa ekkert með loftslag að gera.
https://www.frjalstland.is/2019/12/09/island-flaekt-i-loftslagsblekkingar-esb/#more-1698
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Græðgi og gervimennska
31.1.2022 | 09:21
Paul Krugman segir: " Ef hlutafjármarkaður er ekki efnahagslífið,..sem hann er ekki,..þá eru gervimynt eins og Bicoin það heldur ekki. Samt eru gervimyntir orðar ansi stór eignaflokkur (og skilaði mörgum kaupendum miklum söluhagnaði); síðasta haust hafði samanlagt markaðsvirði gervimynta náð tæpum 3 billjónum dollara.." nytimes.com
Gervimennskan og græðgin hafa skapað eitthvað sem gráðugt fólk verslar með og hefur náð Landsvirkjun til að selja sér orku til gagnavera á Íslandi til að "grafa" eftir Bitcoin og skapa rafmagnsskort í kerfinu.
Orkustofnun telur í nýrri spá 2021-2060, að orkuþörf gagnaveranna muni halda áfram að aukast og árið 2022 verði aflþörf gagnavera orðin um 1.260 GWst. Það er 20% meiri rafmagnsþörf en til heimila (823 GWst) og landbúnaðar (230 GWst) samanlagt á Íslandi.
Bitcoin framleiðsla er skemmdaverkastarfsemi sem kemur í veg fyrir vöxt verðmæta og atvinnusköpunar alvöru framleiðslufyrirtækja. Hver er ábyrgð Landsvirkjunnar?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hafísinn farinn 2014
29.1.2022 | 15:25
Þessi fleygu orð eru frá þekktasta falsspámanni og Nóbelsverlaunahafa um loftslag, þau féllu á loftslagssirkusnum í Köben 2009. https://www.thetimes.co.uk/article/arctic-summer-ice-may-be-gone-in-five-years-al-gore-warns-tqxrj9chvfn
Loddararnir, loftslagslíkönin og yfirlýsingar ESB og SÞ um hamfarahlýnun stjórna ekki hafísnum. Snjó- og ísmælingar Bandaríkjanna (31.12.2021) sýna að hann hefur ekki verið meiri í nærri 2 áratugi. http://nsidc.org/arcticseaicenews/
Hafísinn lónar nú norðvestan við mynni Ísafjarðardjúps https://www.vedur.is/hafis/tilkynningar
Falsspámenn eru búnir að telja okkur trú um að sé að hlýna svo við erum illa undirbúin hrollinum. Ísfirðingar fá ekki nóg rafmagn, það fer í óþarfa rafbíla og myntgröft. En Ísfirðingar vissu líklega að hverju stefndi. Þeir eru með olíukatlana tilbúna og geta nú haft heitt í húsunum þó landsins forni sé kominn aftur með hroll.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
NATO að villast
27.1.2022 | 16:42
NATO var stofnað til að berjast gegn Moskvu-kommúnismanum, við vorum með. Bardaginn vannst jólin 1991 en NATO hélt að það væri ómissandi og hélt áfram að berjast gegn Moskvu, kommúnistalausri, og tók að leggja A-Evrópu undir sitt hernaðarbrölt.
Norðurlandakratar hafa reynst sauðtryggir stríðsmangarar fyrir NATO sem hótar nú áður rússnesku héraði, Úkraínu, innlimun í NATO, safnar liði til innrásar og sendir þangað vopn. Rússar vilja ekki láta sitt gamla hérað undir ruplarana í Brussel og Washington en elliæra kratastjórnin, sem er sest í stólana þar, skilur það ekki og segist ætla að "verja Úkraínu"!
Úkraína hefur verið hluti af Rússaveldii, sem stofnað var í Úkraínu 882, lengur en elstu menn muna. Við eyjarskeggjar fórum ekki með í NATO til að verja Úkraínu fyrir Rússum. NATO á að vera varnarsamtök Atlantshafslanda, ekki stríðsæsingabákn valdagráðugra stórvelda. Við vorum ekki með í að stofna svoleiðis félagsskap.
NATO ætti að einbeita sér að því að verja Atlantshafsþjóðirnar fyrir glæpagengjum, ofsatrúarmönnum, hælisleitendaflóðinu, hryðjuverkamönnum eða sjóræningjum. Og mögulegum hernaðarárásum, þær koma ekki frá Rússlandi. Nema bröltið í Biden og NATO flæmi Rússa í faðm Kínverja. Þá fara stríðsmangarar í felur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Orkukreppusmit ESB er komið
22.1.2022 | 16:43
Smitið af orkukreppu ESB er komið alla leið frá Brussel mörg þúsund kílómetra til Ísafjarðar en Ísfirðingar voru skynsamir og förguðu ekki olíukötlunum og geta nú haft heitt í húsunum. Raforkukerfi Íslands ræður ekki við orkuþörfina, það þarf að skammta raforkuna meðan virkjanir eru í umhverfisvafstri og orkuskiptin í gangi.
https://www.frjalstland.is/2022/01/22/island-smitad-af-orkukreppu-esb/
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Orkukreppan hætt að bíða
20.1.2022 | 18:34
"Losun á að minnka um 55% fyrir árið 2030" segir Gulli ráðherra sem stjórnar loftslagi með harðri hendi ESB. "-það þarf 50% meiri orku í orkuskiptin" segir Landsvirkjun sem á ekki einu sinni nóg núna. "Orkuskortur vofir yfir" segir Moggi (Mbl 20.1.2022)
Regluverkið frá ESB og afturhaldsöflin á þingi hafa tafið virkjanir. Það fer líka of mikil orka í óþarfa, rafbíla og rafmyntagröft, meðan vinnustaðir eru straumlausir. Gulli og félagar verða að gerast sjálfstæðir menn og stjórna orkumálunum fyrir Íslendinga. Hin glórulausu orkuskipti verða að bíða þar til orkukreppan hættir eða stjórn landsins færist í eðlilegt horf. https://www.frjalstland.is/2019/12/09/island-flaekt-i-loftslagsblekkingar-esb/
Flytja til Spánar
18.1.2022 | 13:51
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Áburðarframleiðsla
15.1.2022 | 17:01
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.1.2022 kl. 10:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Rafbílavandinn
13.1.2022 | 17:56
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.1.2022 kl. 14:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það hlýnar í Evrópusambandinu
10.1.2022 | 20:24
Stjórnmál og samfélag | Breytt 12.1.2022 kl. 13:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Spillt alþjóðastofnun
8.1.2022 | 13:33
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)