Koltvísýringur er lífgjafi
17.8.2024 | 17:00
Koltvísýringur er útmálaður sem mesta vá mannkyns og alls lífs á jörðinni. Þeir sem einhverja þekkingu hafa á umhverfi Jarðaryfirborðsins vita að andstæðan er sönn: Koltvísýringur er grunnefni lífsins á jörðinni og getur alrei orðið of mikill, áhrif hans á hitafar Jarðar eru mettuð.
Lofttegundin er mikilvægasta sporefnið í andrúmsloftinu þó hún sé aðeins 0,04% af loftinu, en þó hefur verið nærri 20-sinnum meira á blómatíma gróðursins síðustu 500 milljón árin.
Gróðurhúsaræktendur vita þetta. Þeir reyna að fá koltvísýring á hagstæðu verði en gróðurvöxturinn stóreykst hjá þeim ef þeir auka koltvísýringinn í gróðurhúsinu.
En staðan er orðin þannig að þeir verða að kaupa fokdýran koltvísýring á tönkum af Evrópusambandsfyrirtæki sem hefur náð einokun hér. Mikilli orku hefur verið eytt í að þrýsta koltvísýringnum á tankana sem gerir hann óhagkvæman.
Í landi þar sem hver einasti hver og gufuvirkjun blæs út koltvísýringi í miklu magni er þetta vægast sagt þjóðlegur ræfildómur. Það á að hreinsa koltvísýringinn frá gufuvirkjunum og leiða hann í rörum á lágum þrýstingi, og þar með lágu verði, til góðurhúsasvæðanna. Þau hafa þegar varma og jafnvel rafmagn frá jarðhitanum, viðbótin með koltvísýringinn yrði hagkvæm. Og góð fyrir grænmetisneysluna og lýðheilsuna í landinu.
(Sjá Bændablaðið 15.8.2024)
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.8.2024 kl. 00:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Niðurrif Rússlands.
15.8.2024 | 18:00
Tilraunir Bandaríkjanna og þeirra bandamanna til að rífa niður Rússland hafa staðið lengi, eru reknar áfram af fjármagnseigendum, stórfyrirtækjum og bönkum.
Í áætlunum Bandaríkjanna, sem lesa má um í skýrslum Rand Corporation, um hernað, kúgun og yfirgang við önnur lönd, er að finna smáatriðalýsingar á aðgerðum. Ein aðferð við að veikja Rússland felur í sér að fórna Úkraínumönnum í stríði við Rúsland eins við erum vitni að nú.
https://www.frjalstland.is/2024/08/15/nidurrif-russlands/
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Óþarfur dómstóll
13.8.2024 | 16:42
Svo kallaður EFTA-dómstóll var settur á með EES-samningnum og er úrskurðaskrifstofa fyrir meint brot á honum. EES-samningurinn átti að ná yfir allt EFTA en stærsta landið hafnaði honum og er því laust við dómstólinn. Nafnið á honum er því rangnefni.
EFTA-dómstóllinn var frá byrjun óþarfur. Það eru aðeins íslenskir dómstólar sem hafa lögsögu til að fella aðfarahæfa dóma á Íslandi. Að láta erlendan dómstól hafa dómsvald hér samrýmist ekki stjórnarskránni sem þýðir að "dómar" EFTA-dómstólsins hafa ekkert gildi hér nema íslensk stjórnvöld samþykki þá. Íslenskir dómstólar eiga að fjalla um EES.
Evrópusambandið þenur stöðugt út sitt vald yir EES-löndunum. Þekkt er valdahrifsið í orkumálum og meðfylgjandi orkuskortur og orkuokur. Afskipti ESB af s.k. "loftslgsmálum" eru hrein vitfirring og mjög dýrkeypt. Óheillavænleg afskipti Brussel af utanríkismálumm hefur eyðilagt gróið friðarmannorð Íslands. Hernaðarbrölt og stíðsæsingar ESB eru komnar út í rakalausar öfgar og skapa vaxandi stríðshættu.
Dómarar EFTA-dómstólsins vilja fjölga dómurum vegna aukinna verkefna og benda á innlimun alskyns nýrra samninga í EES: Schengen, Dyflinarsamkomulagið, handtökuskipanasamninginn, Lugani samninginn sem setja alls kyns óþarfar og skaðlegar kröfur ESB á Ísland (sjá frétt í Morgunblaðinu 9.8.2024)
Frambúðar lausn til þess að stöðva valdahrifs Evrópusambandsins hér (og í Noregi og Liechtenstein) í skjóli EES-samningsins er að segja samningnum upp og leggja þar með EFTA-dómstólinn niður.
Evrópumál | Breytt 14.8.2024 kl. 00:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þýskir skriðdrekar komnir aftur til Kursk
10.8.2024 | 17:35
NATO lét sína nýnasistísku stríðsverktaka í Úkraínu gera árás á Rússland á þriðjudaginn var, inn í Kursk hérað. Þar var stærsta skriðdrekaorusta sögunnar sumarið 1943 þegar Þjóðverjar réðust inn í Kursk-hérað. Rússar gersigruðu innrásarher Þjóðverja og héldu áfram að reka flóttann þar til er búið var að eyða nasistunum í Berlín tveim árum síðar.
Rússar þekkja sína sögu vel, þeim varð um og ó þegar þýskir skriðdrekar birtust aftur á þriðjudaginn á sláttum Kursk. Það er málaliðaher margra NATO-þjóða sem berst, þeir taka af sér herklæði sinna landa og fara í feluföt og fá borgað fyrir að koma til Úkraínu og skjóta á Russa.
Menn spyrja sig nú hvort Rússarnir geri aftur eins og þegar þeir sigruðu þýsku nasistana: Reki flóttann (til Brussel) og láti NATO/ESB gefast upp skilyrðislaust.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 17:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Falskar vonir
7.8.2024 | 15:31
Ein draumkenndasta EES-tilskipunin er nú í rörunum frá ESB: https://gagnagrunnur.ees.is/32024r1735. Reglugerð til að auka kolefnisfría framleiðslu https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/HTML/?uri=OJ:L_202401735,
síðasta valdboð frá ESB í langri röð gegn evrópskum iðnaði og velmegun.
Eins og lesendum er kunnugt er Evrópusambandið að spilla fyrir þarlendum iðnaði með reglugerðakraðaki gegn m.a. kaupum á hagkvæmri orku, gegn notkun eldsneytis og með byggingu óhagkvæmra vindorkuvera. Eins og fleira frá ESB er þessi reglugerð sýndarmennska. Lönd ESB eru í óða önn að gangsetja kolaorkuver og gaslindir af því að almenningur hefur ekki efni á draumóraorkunni. En við Klakabúar höldum að ESB sé að undirbúa framtíðina og setjum allt EES-farganið á okkar reglubækur.
Efnahagshrörnun Evrópusambandsins er óstöðvandi. https://www.frjalstland.is/2023/07/01/fataektarmenning/#more-3092
Það eru aðeins tvö af löndum ESB sem hafa hærri rauntekjur á mann en Ísland (það eru peningasýslulöndin Luxemburg og Írland, við þekkjum hvers vaxtaokrið er megnugt fyrir eignamennina!) https://en.wikipedia.org/wiki/List_of_countries_by_GDP_(nominal)_per_capita
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 15:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Venezúela
5.8.2024 | 18:41
/ Myndin er úr Best Diplomats https://bestdiplomats.org/largest-oil-reserves-by-country/
Nicolas Maduro, hinn nýkjörni forseti Venezúela, sætir nú vaxandi árásum af hendi stríðsríkja NATO og ESB. Falsfréttamiðlar hafa verið virkjaðir.
Hin ríku Vesturlönd, sem við héldum vað væru heimili lýðræðis og sanngirni, hafa haldið mörgum fátækari löndum í örbirgð og einangrun með viðskiptahöftum, valdaránum og manndrápum. Og nú á að leggja áherslu á undirokun Venezúela, olíuríkasta lands heims. https://www.frjalstland.is/2024/08/05/venezuela/
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 6.8.2024 kl. 16:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ríkisstjórn vantar
3.8.2024 | 14:06
Nú hafa 73% kjósenda áttað sig á að núverandi ríkisstjórn er ónýt.
Hún ræður ekki við vaxtaokrið og bankana sem stjórnast af ESB/EES-regluverki og geta akki þjónað almenningi, bara plægt inn ofsagróða. Hún ræður ekki við braskið með íbúðirnar og uppsprengt íbúðaverð, unga fólkið er verið að festa í fátækt. Vildarvinum áfram afhentar arðbærar ríkiseignir.
Og ekki er einu sinni reynt að losa landið undan áþján ESB/EES. Gagnslausar álögur "loftslagsmála" ESB eru komnar út úr kortinu og afætum sem selja orku frá virkjunum almennings fjölgar. Ekkert ræðst við stjórnlausan fólksinnflutning og þar með útgjöld, glæpi og öryggisleysi. Ríkisstjórnin lætur herlausa Ísland taka þátt og eyða miklu skattfé í svívirðilegan hernað í skjóli ESB og NATO.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/08/02/stundum_otharflega_margradda_rikisstjorn/
En hvað tekur við? Útlitið er ekki sérlega gott, stjórnmálaflokkarnir eru flestir villuráfandi eða ónýtir þó einhverjar undantekningar séu. Stóra spurningin er hvort kjósendum tekst eitthvað betur næst við að velja sér Alþingi og þar með nothæfa ríkisstjórn? Svinnir menn bíða og vona!
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Íslenskir útsendarar
1.8.2024 | 13:36
Ísland sendir nú erindreka til þess að hjálpa til við að innlima Úkraínu í Evrópusambandið. Löglega kjörin stjórn Úkraínu hafnaði Evrópusambandsaðild 21. nóvember, 2013, og var þá steypt af stóli af Bandaríkjunum og Evrópusambandinu í blóðugu valdaráni.
Í Úkraínu herskar nú ólögleg stjórn, kjörtímabil forsetans rann út í maí siðastliðnum. Íslensk stjórnvöld leggjast svo lágt að gerast útsendarar ríkjasambandsins ESB sem traðkar á sínum aðildarríkjum, hunsar alþjóðasamþykktir og lætur ólöglega stjórn Úkraínu reka hernað gegn eigin þegnum. Afsökun útsendaranna er að Ísland hefur reynslu af EES (hvílík blessun!)
Það nær auðvitað engri átt að Ísland sé að leggja landvinningum Evrópusambandsins (og um leið hernaðarklúbbnum NATO) lið í Úkraínu. Úkraínumenn eiga um sárt að binda vegna ófriðar sem hefur geisað þar síðan valdaránið í febrúar 2014. Þeir (það er um helmingur þeirra enn eftir í landinu) bíða eftir að ESB og NATO hætti hernaðarrekstrinum í Úkraínu, þá munu manndrápin hætta.
(Sjá frétt Mbl 30.7.2024)
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 14:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Frönsk (ó)menning
29.7.2024 | 11:16
Ólympíuleikarnir í París voru opnaðir með ókræsilegri dragsýningu. Bandaríska forsetafrúin var á staðnum og fagnaði. https://www.foxnews.com/politics/first-lady-jill-biden-praises-olympics-opening-ceremony-mocked-last-supper
Það er ekki nóg með að Ólympíuleikarnir verði ómarktæk montsýning þar sem ein helsta íþróttaþjóðin er útilokuð heldur verða leikarnir líka sýning á hrörnandi menningu gamla herveldisins. Alþjóða Ólympíunefndin er búin að taka dragsýninguna út af YouTube.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ómarktæk Ólympía
27.7.2024 | 13:50
Ólympíuleikarnir í París verða ómarktæk montsýning. Mesta íþróttaþjóðin, sú sem ætíð vann flest gull, er meinað að taka þátt vegna óhlýðni við gamla herveldið Frakkland og stórveldin í Norðurameríku og Vesturevrópu og meintrar tilefnislausrar innrásar Rússa í Úkraínu. Ísrael fær aftur á móti að vera með þó að þeir drepi börn í tugþúsundavís í Palestínu.
Það eru mótshaldararnir Frakkar og aðrar stríðsþjóðir Vesturevrópu og Ameríku í NATO og ESB sem útiloka stærstu íþróttaþjóðina, Rússa, frá ólympíuleikunum og bera við fölskum rökum um "tilefnislausa innrás Rússa í Úkraínu"
Það voru ærin tilefni til afskipta Rússlands af manndrápum NATO/ESB í Úkraínu: Obama-stjórn Bandaríkjanna rak löglega ríkisstjórn Úkraínu frá völdum með blóðugu valdaráni 2014 og kom af stað hernaði leppstjórnarinnar, sem sett var á koppinn eftir valdaránið, gegn rússneskum íbúum Austurúkraínu. NATO, ESB og Úkrínuleppstjórnin sviku alla samninga við Rússland um útþenslu NATO og ofsóknir gegn Úkraínurússunum. Eina úrræði Rússa var að koma Úkraínurússunum til varnar.
Það eru 10 ár síðan her leippstjórnarinnar í Úkraínu gerði árás á almenna borgara i borginni Gorlovka í Donesk, sem varð 22 að bana og særði marga, í byrjun hernaðarins gegn Úkraínurússunum.
Hræsnin og tilefnislausar stríðsæsingar NATO- og ESB-landa haldast í hendur og friðsama Ísland tekur þátt í ómarktækum ólympíuleikum stríðsþjóðanna.
Sjá mynd á framsíðu Morgunblaðsins 27.7.2024.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í klóm braskara
25.7.2024 | 17:33
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.7.2024 kl. 14:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Loftslagslygastofnun ESB
23.7.2024 | 20:14
Von að vestan, vol að austan
19.7.2024 | 13:27
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.7.2024 kl. 13:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ógnin við heimsfriðinn
14.7.2024 | 14:34
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 14:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ísland kært
11.7.2024 | 14:36
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)