Stríðsráðið fundar
9.7.2024 | 18:33
NATO heldur nú fund, málefnið er það sama og síðustu 78 árin: Yfirvofandi innrás Rússa í Evrópu. Markmiðið er að auka stríðsæsingarnar og fá Evrópulönd til að koma í alvöru stríð við Rússland. Í því tilefni hafa falsfréttamiðlar þegar verið virkjaðir og bera nú út að Rússar hafi í gær sprengt Okhmatdyt barnaspítalann í Kænugarði! (hið rétta er að það var NASAMS-loftvarnarskeyti sem Úkraína fær frá NATO-löndum sem sprengdi spítalann, mögulega af klaufaskap Úkraínuhers sem staðsetur drápstól í íbúðahverfum)
Þeir einu sem hafa gert árás á Evrópu síðustu 78 árin er NATO sem skaut sprengjum á Belgrað (1999) og Bandaríkin/NATO sem réðust á lögmæta ríkisstjórn Úkraínu í Kænugarði (2014). NATO-lönd láta nú markamiðara sína beina sprengjum Úkraínuhers á Rússland. Það þarf því greinilega að verja Evrópu gegn hernaði NATO og þyrfti að ræða það á stríðsráðsfundinum. https://www.frjalstland.is/2024/06/19/haetulegt-folk-og-bjargvaettir/
Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.7.2024 kl. 10:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Undirokaðir leiguliðar
7.7.2024 | 17:27
Undirokaðir leiguliðar komust ekki úr fátæktinni og ósjálfstæðinu fyrr en þeir urðu sjálfir eigendur sinna bæja. Fram að því hirtu eignamenn afraksturinn af þeirra striti. Um það leyti sem Jón Sigurðsson forseti hóf sína sjálfstæðisbaráttu voru aðeins um 40.000 Íslendingar til, færri en útlendingarnir sem búa hér nú. Hungur, fátækt og vesöld höfðu fellt meirihluta þjóðarinnar.
Núverandi máttlausu stjórnvöld landsins hafa misst stjórn á húsnæðismálum og fjármálum lands og þegna til Brussel svo nú er þróunin afturábak í átt að armæðu fátæklinganna eins og á 18.öld.
Af 1304 íbúðum sem komu til nota á fyrri helmingi ársins (2024) voru aðeins 39 sem keyptar voru af fyrstu kaupendum, eða um 3%, afgangurinn komst í eigu leigusala eða braskara. Á árunum 2018-2021 var árleg fjölgun eiginíbúða 2347 á ári að meðaltali eða meir enn 50% af byggðum íbúðum. Það hefur því orðið algert hrun í eignamyndun unga fólksins í landinu.
Velmegun og menning Íslendinga náði hærra en skyldra landa þegar landsmenn urðu að miklu leyti sjálfstæðir eigendur sinna húsa. Leiguliðar undirokaðir af eignamönnum, bönkum og bröskurum geta ekki stjórnað sínu lífi
(Sjá nánar grein Sigurðar Ingólfssonar í Morgunblaðinu 6.7.2024)
Stjórnmál og samfélag | Breytt 8.7.2024 kl. 11:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Orkuskiptin orðin martröð
4.7.2024 | 15:12
Draumurinn um orkuskipti er að breytast í martröð. https://www.frjalstland.is/2022/02/11/orkuskiptin-eru-draumorar/
Bílaframleiðendur eyða tröllvöxnum upphæðum í hráefnakaup fyrir rafhlöður og rafsnúða sem valda miklum óafturkræfum umhverfisspjöllum. En rafbílarnir seljast verr og verr þar eð bílakaupendur eru farnir að þekkja blekkinguna þó þeir fái ríflegar peningameðgjafir frá almenningi. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/07/04/hrun_i_solu_rafbila/
100% rafbílar (sem ganga eingöngu fyrir rafmagni frá virkjununum) eru 1/2 til 1 tonni of þungir og varasamir og rífa upp malbikið þó þeir borgi engan þungaskatt, komast ekki langt ef eitthvað er að veðri. Ef þeir bila tæmist pyngjan fljótt. Þegar þeir fara í "brotajárn" spilla þeir umhverfinu og létta pyngju skattgreiðenda.
Tvinnbílar, hybrid, eru reyndar allt annar handleggur. Þeir eru með hjálparrafhlöðu sem bíllinn hleður sjálfur en tekur ekki rafmagn frá heimilum og atvinnuvegum landsins. Þeir eru eldsneytisgrannir þó þeir séu með auka kíló og nokkuð dýrir í framleiðslu. En með niðurgreiðslunum hafa þeir getað keppt við bensín og dísilbíla meðan viðgerðakostnaðurinn er ekki farinn að hlaðast á þá.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Valkyrjur í stafni
2.7.2024 | 14:00
Ursula og Kaja verða leiðtogar í skriffinnskubákni ESB. Ursula var hermálaráðherra Þýskalands (þar til hún varð uppvís af að kaupa þjónustu fyrir herinn af vinum og kunningjum). Kaja er forsætisráherra Eista (sem bíða nú í ofvæni eftir að hún fari til Brussel svo hægt sé að hreinsa upp dræsurnar eftir hana).
Tignakerfi Evrópusambandsins tekur ónothæfa stjórnmálamenn aðildarlanda sem eru yfirlýstir "Evrópusinnar" (trúa öllum lygum Evrópusambandsins) og setur þá í embætti í Brussel. Ursula verður áfram forseti framkvæmdastjórnarinnar og Kaja talskona "utanríkismála" ESB (ath að ESB er ekki ríki þó brusselskriffinna dreymi um það)
Kaja hatar Rússa (sögð hafa þá í morgunmat) og Ursula heldur að ESB geti það sem forverar hennar í Whermacht gátu ekki. Þær eru báðar stríðsæsingakonur, þess vegna fá þær hæstu embætti í Brusselbákninu sem vill stríð við Rússland.
Lesendur verða að átta sig á að gáfnaljósin í Brussel eru ekki eins og venjulegt fólk heldur hluti af ímynduðum veruleika (eins og í skáldsögum og Hollywood) þar sem allt er leyfilegt og mögulegt: Evran og kúgun almennings og bænda, hringrásar- og vindmylluhagkerfi, eldsneytisbann, innlimun annarra landa og sigur á kjarnorkuveldinu Rússlandi
https://www.frjalstland.is/2022/05/31/evropusambandid-hervaedist/#more-2672
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mistakaforseti
30.6.2024 | 14:16
Joe Biden hefur nú afhjúpast fyrir augum kjósenda sem vitsmunalega ófær um að gegna embætti forseta hinna miklu Bandaríkja, það gerðist í kappræðum við Donald Trump.
Biden er kominn langleiðina með að draga Bandaríkin í kjarnorkustyrjöld.
Það er því mikill léttir ef ábyrgur forseti kemst aftur til valda sem stöðvar hernaðinn. Og bremsar hraðvaxandi hrörnun hins mikla lands. Stríðsfélagar Bidens í Evrópu eru líka hver af öðrum að afhjúpast og vitrari menn að taka við. Hrópandi undantekning er Evrópusambandið: Verðandi forsvarskvennmenn þess (Ursula og Kaja) eru hættulegir stríðsmangarar á vegum sambands sem sígur dýpra í afturför og fátækt en vaxandi vopnaframleiðslu. https://www.frjalstland.is/2023/12/19/stridsundirbuningur/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Julian slapp
27.6.2024 | 13:12
Maðurinn sem fletti ofan af manndrápum Bandaríkjanna og bandamanna er laus eftir að hafa verið hundeltur af vestrænni réttvísi í 14 ár. Julian Assange var látinn laus gegn því að viðurkenna að hann hafi brotið lög en hann sagðist hafa talið að stjórnarskráin (bandaríska) og hið fjölrómaða "vestræna tjáningarfrelsi" mundi verja hann. Hann hefur verið sviptur frelsinu svo lengi að dómurunum þótti nóg að gert ef hann viðurkenndi sök. Það boðar ekki gott fyrir sannleiksbera. https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/06/26/assange_frjals_madur_og_er_a_heimleid/
En manndrápin hætta ekki. Julian á sem betur fer líkasinnaða: Chelsea Manning, Edward Snowden, Jack Teixeira https://www.foxnews.com/politics/pentagon-leak-suspect-jack-teixeira-appear-federal-court-friday , krakkarnir sem hafa kjark til að fletta ofan af manndrápum okkar bandamanna. https://www.frjalstland.is/2022/08/19/island-tekid-i-strid/#more-2731 Þeir hafa afhjúpað Úkraínustríðið, árásarstríð á vegum NATO og ESB gegn rússneskum íbúum Úkraínu og nú Rússlandi, þangað eru send vopn, miðunartæki, hermenn og vaxandi fjöldi hernaðarsérfræðinga NATO sem hafa stjórnað hernaðinum þau 10 ár sem hann hefur verið í gangi.
Breska frelsishetjan Nigel Farage hefur lagt sannleiksberunum lið við að stöðva manndrápin, lygalaupar og lygaverksmiðjur Breta gelta og urra á hann eins og áður https://news.sky.com/video/nigel-farage-says-west-provoked-russias-invasion-of-ukraine-with-nato-expansion-13156934
Skilurðu sænsku?
25.6.2024 | 14:38
Svíar frændur hafa alla tíð átt mikla hugsuði þó okkur finnist þeim hafi hnignað niður í skrílsmenningu og stríðsæsingar Vesturlanda upp á síðkastið. En það er eins með gáfumennina í Svíþjóð og víðar hér á Vesturlöndum, þeir eru margir útilokaðir frá einokandi falsfréttamiðlunum og ekki teknir í umræðuna.
En hlustaðu á Staffan Mörner útskýra að loftslagsstjórnmál eru að leiða til meiri áfalla fyrir mannkyn en hinar ætluðu loftslagsbreytingar geta nokkru sinni komið af stað. https://swebbtv.se/w/gvPBRY5zdn9acZfcs6NtXe
Loftslagsbreytingarnar eru stöðugt í gangi en mannkyn hefur hverfandi áhrif á þær. Hlýjasta tímabilið frá því Litlu Ísöldinni lauk var um 1940, síðan hefur kólnað. https://www.frjalstland.is/wp-content/uploads/2021/03/Loftslag-%C3%A1-%C3%8Dslandi.pdf
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Evrópuslepjan
23.6.2024 | 14:24
Íslendingar hafa ennþá hæstu tekjur í Evrópu þegar frá eru talin fjársýslulöndin Luxemburg, Sviss, Noregur og Írland. Noregur, Sviss og Ísland eru ekki í Evrópusambandinu og ekki með evru, og Sviss er ekki í EES, sem er hluti af skýringunni. Íslendingar hafa hærri tekjur á mann en allar helstu iðnaðarþjóðir Evrópu (Morgunblaðið 21.6.2024).
Það er löngu ljóst hverjar eru helstu ástæðurnar:
Uppblásið regluverk og stjórnvaldsafskipti eru helsti dragbíturinn á atvinnustarfsemi og þróun í Evrópu. https://www.investopedia.com/terms/e/eurosclerosis.asp Ísland fær mikinn hlua regluverksins gegnum EES og sígur stöðugt á ógæfuhliðina.
Bábiljur um hlýnun loftslags og tilraunir til að afnema eldsneyti hafa spillt orkubúskap V-Evrópulanda. Orkuverð orðið of hátt og orkan óörugg, fátækt og samdráttur afleiðingar.
https://www.frjalstland.is/2023/10/16/loftslagsherferdin-topud/
Viðskiptabönn á Rússland, mikilvægasta birgjann á olíu, gasi, kjarnakleyfi, létt- og sérmálmum og smíðamálmum, hefur valdið iðnaðarsamdrætti og versnandi efnahag.
Menningarupplausn, framandi trúarbrögð, hryðjuverkaógn og lögleysa illviðráðanleg. Fólksfækkun, fátækt, vonleysi og svartsýni og skortur á framtíðarsýn sem dómsdagsspár um loftslagshlýnun og fleiri bábiljur valda.
Flóttamannastraumur frá löndum þar sem Bandaríkin og bandamenn þeirra hafa rekið hernaðarafskipti: Úkraínu, Sýrlandi, Palestínu, Afganistan, Írak o.fl.
Hernaðurinn gegn Rússlandi er baggi á almenningi auk þess að vera stórhættulegur og valda almenningi hræðslu.
Kjósendur í Evrópu eru komnir af stað með að losa löndin við stríðsóðu grænu ráðamennina sem hafa komið þeim í fátækt, orkukreppu og svartsýni. https://www.france24.com/en/live-news/20240610-green-parties-suffer-eu-poll-drubbing
Ísland situr fast í hnignun Evrópusambandsins meðan EES-samningurinn er látinn gilda. https://www.frjalstland.is/2023/07/01/fataektarmenning
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.6.2024 kl. 12:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Útskúfaðar þjóðir
21.6.2024 | 13:57
Norður Kórea og Viet Nam, sem hafa verið útskúfuð í mannsaldra og sætt árásum og manndrápum, hafa nú verið boðin aftur inn í samfélag þjóða. Það gerir Rússland sem hefur stuðning vaxandi fjölda heimsþjóða í baráttu sinni við Bandaríkin sem lögðu þessi lönd í rúst og útilokuðu þau frá umheiminum með aðstoð sinna leppríkja.
Bandaríkin sprengdu Norður Kóreu aftur til steinaldar 1950-1953, ekkert land hefur verið sprengt eins mikið, sem næst allar borgir landsins voru lagðar í rúst. Afskipti Kína og Rússlands urðu svo til þess að gert var vopnahlé. En Bandaríkin og leppar þess hafa haldið Norður Kóreu í höftum og einangrun síðan og rekið áróður gegn landinu. Vestrænir fjölmiðlar eru látnir kalla þjóðina "paría" (ósnertanlega) og landið "útlagaríki". Gleðin var mikil þegar diggustu bandamennirnir, Rússar, komu í heimsókn með stuðning og vinarhug.
VietNam sigraði nýlenduveldið Frakkland 1954 en þá komu bara aðrir stríðsherrar. Bandaríkin hófu brátt manndráp, milljónir voru drepnar áður en Bandaríkin lögðu niður skottið og fóru heim með sína byssumenn. Þá hafði VietNam verið nærri lagt í eyði. Nú hefur Rússland, sem studdi VietNam gegn stríðsherrunum, gert viðskipta- og samstarfssamning við sína fyrrum bandamen, Vietnama.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hættulegt fólk og bjargvættir
19.6.2024 | 13:39
Forustumenn Vesturlanda, margir með takmarkaða þekkingu á sögunni og aldir upp í stríðsæsingum, koma margir fram með eina staðhæfinguna annarri fáráðnlegri og hvetja til meiri blóðsúthellinga. Meira að segja íslenskir ráðamenn verða þjóðinni til skammar með stríðsæsingum frá vopnlausa friðarklettinum Íslandi. https://www.frjalstland.is/2024/06/19/haetulegt-folk-og-bjargvaettir/
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sjálfstæðið varð 50 ára
17.6.2024 | 13:29
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Skattgreiðendur kosta vindmyllur
15.6.2024 | 16:33
Bloggar | Breytt 17.6.2024 kl. 00:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þjófaflokkurinn G7
13.6.2024 | 15:40
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvað eru Bandaríkin að gera í Úkraínu?
11.6.2024 | 13:16
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 13:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Stóri bróðir er óskeikull
9.6.2024 | 14:16
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)