Erindrekstur fyrir ESB
18.9.2024 | 14:47
Ríkisstjórn Íslands gengur erinda Evrópusambandsins og ætlar að láta Alþingi samþykkja nærri 60 mál, nærri þriðjung þingmálanna í vetur, sem eru EES-fyrirskipanir, sumt mál sem ESA hefur nöldrað um, sum málin eru með mörgum tilskipunum eða reglugerðum frá Brussel. https://www.frjalstland.is/2024/09/17/thingmalaskra-155-loggjafarthings-2024-2025-ees-mal/
EES-tilskipunum er aldrei breytt efnislega þær eru bara þýddar og samþykktar af Alþingi eftirgennslanalaust. Samtök sem studdu aðild Ísland að EES eru nú farin að kvarta yfir að EES-tilskipanirnar séu "innleiddar með meira íþyngjandi hætti" en í ESB og kalla það "gullhúðun". Oft byggt á misskilningi, vandamálið er frekar að eftirlitsstofnanirnar sem eiga að framfylgja reglunum hérlendis taka sér meiri völd en meðalhófi gegnir en þær mega nota tilskipanirnar beint út úr hestmúla Brussel (þegar sameiginlega EES-nefndin hefur stimplað þær) og þurfa því ekki að fletta i því sem ráðuneytin gefa út. Þannig er nú búið að spilla virðingu íslenska Stjórnarráðsins okkar.
Stofnanirnar okkar þekkja ekki vinnubrögð eftirlitsiðnaðarins í Evrópusambandinu en þar eru menn vanir valdboðum frá opinberum skriffinnum sem oftast vita lítið um það sem þeir eru að setja reglur um. Eftirlitsstofnanirnar í Evrópu (það er í stóru skriffinnskulöndunum Frakklandi, Þýskalandi og fleirum) nota yfirleitt aðeins úr þeim það sem eðlilegt má teljast en horfa framhjá hinu. Okkar eftirlitsstofnanir eru svo hræddar við ESB að þær þora ekki að gera það.
Það að fjarlægir skriffinnar sem ekki þekkja íslenskt samfélag setji því reglur er vandamálið með EES-samninginn.
Það er semsagt Evrópusambandið sem segir Alþingi og Stjórnarráðinu fyrir verkum. Íslendingar eru svo hræddir við sambandið að þeir hlýða öllu svamlinu þaðan, miklu þægari en Norðmenn að sögn eins gamals EES-sérfræðings (Baudenbacher, sjá Mbl 16.9.2024)
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 15:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
EES-útboð, EES-ok
16.9.2024 | 12:08
Ein af verstu kvöðunum sem EES-samningurinn kom á var um að verk skyldi bjóða út á EES-svæðinu sem þýðir í raun öllu ESB ef verkin ná tiltekinni stærð. Þetta hefur leitt til ýmissa vandræða. Nú býður Orkuveitan út 18 milljarða verkefni á EES-svæðinu.
Svona útboð eru ekki í samræmi við hagsmuni þjóðarinnar. Íslensk fyrirtæki geta séð um þetta, hvort sem er sjálf eða með þátttöku þeirra sem þau velja sér til samstarfs. Færni og þekkingu á þessu sviði þarf að halda í landinu og byggja frekar upp en ekki fá fjarlæg fyrirtæki í verkin.
Það þarf ekki að vera með æsing út af orkuskorti vegna "orkuskipta" yfir í rafmagn, það liggur ekkert á. "Orkuskiptin" eru byggð á fölsunum en koma að því marki sem þau borga sig með tímanum og þróun tækninnar. Niðurgreiðslur til að koma þjóðinni á rafbíla eru bæði dýrar og hættulegar og taka raforku frá atvinnutækjum landsins. Rafbílavæðingunni þarf að hagræða með því að hætta niðurgreiðslunum. Og taka tíma í að byggja frekar upp nýtingu jarðvarmans til raforkuframleiðslu fyrir fyrirtæki og heimili landsins, bensín og díselolía verða alltaf besti, hagkvæmasti og vistvænsti orkugjafinn fyrir bílana.
Svona verkefni, eins og okkar almannafyrirtæki Orkuveitan ætlar að ráðast í, á auðvita að bjóða út í minni þáttum hér meðal íslenskra verktaka. Þeir eiga að fá verkefnin og eftir þörfum að byggja sig upp og leita samstarfs til að ráða við þau. Það liggur ekkert á þegar mesta auðlind landsins er annars vegar. Orkufyrirtækin eiga ekki að fá að bjóða fjarlægum aðilum að óþörfu til að ná í jarðhita Íslands heldur standa með og byggja upp íslensk fyrirtæki í jarðvarmageiranum. (Mbl 16.9.2024)
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 12:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þórdís boðar 15 mál
13.9.2024 | 12:05
Utanríkisráðuneytið boðar 15 mál til samþykktar Alþingis í vetur, eitt lagafrumvarp og fjórtán þingsályktanir, allar nema 2 EES-fyrirmæli frá Evrópusambandinu https://www.stjornarradid.is/rikisstjorn/thingmalaskra/ Ekki eitt einasta mál frá Íslendingum sem eiga að stjórna Íslandi.
Lagafrumvarpið er hin alræmda bókun 35 til þess að gera lög og reglur Evrópusambandsins æðri íslenskum lögum. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/09/12/thordis_bodar_eitt_frumvarp_bokun_35/ Þingsályktanirnar eru haugur af tilskipunum pakkað saman í 12 mál sem koma í bakið á landsmönnm sem áþján af misskaðlegu og óþörfu regluverki.
Utanríkisráðuneytið er orðið óþarft. Brusselbáknið stjórnar utanríkismálunum alfarið, hvort sem er að fara í stríð eða setja höft á aðrar þjóðir eða koma á reglugerðum sem við þurfum ekki. Best og ódýrast væri að fá Brussel til að senda tilskipanirnar beint til Alþingis til stimplunar.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 23:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ísland á sakamannabekk
12.9.2024 | 15:39
Varðhundakofi EES-samningsins, ESA, á að sjá um að Ísland (og Noregur og Liechtenstein) hlýði fyrirmælum Evrópusambandsins. Reglulega berast þaðan urr og gelt en mest ýlfur. Nú ætlar ESA að kæra Ísland fyrir að gegna ekki tilskipunum ESB um bankastarfsemi.
Eins og kunnugt er olli regluverk ESB/EES, ásamt með græðgisvæðingu og Bretastjórn, hruni íslenska bankakerfisins fyrir 16 árum. Ekki höfum við enn komið í verk að segja EES-áþjáninni upp svo ESB-tilskipanirnar halda áfram að berast. Þær eru ætlaðar bankakerfi hundraða milljóna manna svæðis en ekki smáþjóð og hafa gert mikla bölvun hérlendis. Íslenska bankakerfið getur ekki lengur þjónað Íslendingum skammlaust heldur er látið þjóna dillum ESB, s.s. vörnum gegn peningaþvætti sem er stór atvinnuvegur í skattaáþján ESB-landa. En bankarnir hérlendis geta samt plægt inn klámfenginn gróða á að vaxtaokra á íslenskum viðskipatvinum en geta samt ekki þjónað grundvallarþörfum eins og húsnæðiskaupum unga fólksins af viti.
Og nú hafa Íslendigar látið undir höfuð leggjast að "innleiða" (þýða, afrita og líma í íslenskt regluverk) tilskipanir frá ESB. ESA ætlar að kæra Ísland fyrir EFTA-dómstólnum (EFTA óviðkomandi) https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/09/11/esa_hofdar_mal_gegn_islandi/. Eins og kunnugt er má sá dómstóll segja hvað sem er en hans orð eiga ekki að vera aðfarahæf hér nema stjórnkerfið hér aulabárðist til að beygja sig í rykið. Sem Alþingi hefur reyndar gert með bankatilskipanir https://www.frjalstland.is/2023/11/27/bankarnir-eru-i-hoftum-evropusambandsins/ andstætt stjórnarskránni og því ógildur gerningur ef á reyndi.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 15:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Auðlindunum fórnað
10.9.2024 | 17:06
EES-samningurinn og hin hugmyndafræðilega mengun hnattauðmagnsins sem honum hefur fylgt hefur opnað Ísland fyrir "fjárfestingum" Evrópusambands-fyrirtækja í auðlindum Íslendinga.
Nú vilja afkomendur Ingvars heitins Kamprads, IKEA-kempunnar, og þeirra kumpánar "fjárfesta" í auðsuppsprettum Íslendinga. https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2024/09/10/atta_milljarda_fjarmognunarlotu_lokad/
Ein öruggasta leið minni þjóða til þess að missa sjálfstæðið og steypa landsmönnum í fátækt er að opna sínar dyr fyrir fjárfestingum hnattauðmagnsins í sínum auðsuppsprettum. Mörg lönd hafa gert það undir áhrifum hnattvæðingaráróðursins og mörg hafa orðið fórnarlömb stríðsríkjanna í NATO og ESB sem hafa hafið hernað á löndin til að tryggja sinn aðgang að auðsuppsprettum landanna.
Olíuríki Mið-Austurlanda hafa sætt innrásum og manndrápum stríðsríkjanna í áratugi. Bandaríski herinn stelur um 80% af olíu Sýrlands. Suðurameríkulönd hafa mátt þola eitt valdaránið eftir annað. Ísraelar vilja komast yfir olíu- og gaslindir undan strönd Palestínu og leggja nú landið í rúst. Bandaríkin með NATO og ESB reka hernað gegn Rússum í Donbas m.a. til þess að komast yfir auðlindir svæðisins sem eru trilljarða virði að sögn bandaríska öldungadeildarþingmannsins Lindsey Graham https://english.almayadeen.net/news/politics/graham-urges-more-aid-to--trillion-dollars--worth-of-mineral
Reyndar eiga bandarískir "fjárfestar", s.s. Blackrock, Blackstone, State Street og Vanguard auk annarra hnattvæddra fyrirtækja í ESB og víðar, nú þegar um þriðjung af landbúnaðarlandi Úkraínu. Og sjálfur Rotchildbankinn er farinn að fjármagna nýnasistastjórnina í Kænugarði og fær verðmætar auðsuppsprettur Úrkaínu sem veð! Vanir bankamenn!
Á sama tíma og fjarlægir "fjárfestar" skipuleggja gróðaherferð gegn stærstu auðsuppsprettu Íslendinga til framtíðar eru íslenskir vísindamenn, sem eru meðal þeirra fremstu á heimsvísu i jarðhitarannsóknum og nýtingu, búnir að finna mörg fleiri jarðhitasvæði í landinu. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/09/10/arangur_af_jardhitaleit_kominn_fram_ur_vonum/
Það eru auðvitað þeir sem eiga að sjá um að virkja og nýta jarðhita landsins fyrir okkur og framtíðar íbúa þessa lands. Ef stjórnvöld Íslands skilja þetta ekki eiga þau að fara frá.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Falsfréttamiðlun
8.9.2024 | 14:16
Vestrænir fjölmiðlar bera okkur falsfréttir en þegja yfir raunverulegum fréttum. Þeir segja að Rússar hafi sprengt skóla og sjúkrahús í Poltava. Þeir segja okkur ekki að "skólinn" var þjálfunarstöð NATO fyrir úkraínska hermenn. Þeir þegja um að allir stjórnendur SAAB hergagnadeildarinnar (AEW&C)voru felldir. https://www.facebook.com/groups/298181905998233/posts/541428685006886/?_rdr Þá voru liðin 315 ár frá því að Rússar gersigruðu innrásarher Svía við Poltava 8. júlí, 1709, þar sem þúsundir Svía vor felldir en Svíar hafa síðan þjáðst af ofsóknarbrjálæði gagnvart Rússlandi.
Alls voru 600 felldir og særðir núna 3.september, 2024, að sögn eins af forsprökkum úkraínskra nýnasista. https://www.rt.com/russia/603462-poltava-signal-academy-ukraine/ Líklega fæstir Úkraínumenn, þá er búið að strádrepa eða flæma úr landi. Hermenn /"hersérfræðingar" frá Bretlandi, Póllandi, Frakklandi, Bandaríkjunum, Svíþjóð og fleiri stríðslöndum NATO hafa væntanlega verið í meirihluta í líkpokunum sem voru fluttir frá Poltava.
Utanríkisráðherra Svíþjóðar sagði af sér í kjölfarið. Falsfréttamiðlarnir útvörpuðu að hann hefið talið sig eiga skilið frí, verandi búiin að gera nóg gagn með því að koma Svíþjóð í NATO! Sem eru verstu utanríkispólitísku mistök Svía frá dögum Kalla tólfta. Ástæða brottreksturs hans er auðvitað misheppnaðar stríðsaðgerðir gegn Rússlandi. Poltava 2.
Evrópumál | Breytt 9.9.2024 kl. 00:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Upplausn og endurreisn
7.9.2024 | 16:47
Flokkarnir sem hafa ráðið Evrópu í 80 ár eru að missa völdin. Gömlu stjórnvöldin, sem þriðjungur eða minna af kjósendum styður, eru orðin úrelt en eru þaulsætin og "neita að vinna með" nýju flokkunum jafnvel þó þeir séu stærri.
Í Frakklandi, Þýskalandi, Hollandi og Bretlandi eru farnar kröfugöngur sem enda í götubardögum. Stjórnvöld senda vopnaðar sveitir á mótmælendur og stimpla þá sem "glæpamenn" eða "hægriöfgamenn". Að rökræða við þá um málefni dettur ráðamönnum ekki í hug.
Almenningur í Evrópu hefur verið hrakinn í vaxandi fátækt. https://www.frjalstland.is/2023/07/01/fataektarmenning/ Fyrirtæki sæta höftum á aðföng og orkuöflun er eyðilögð. Regluverkið er orðið of hamlandi. Vind-og sólorkuver og lög gegn eldsneyti hafa sprengt upp kostnað heimila og komið af stað gjaldþrotum iðnaðar og landbúnaðar. Stærsta bílaverksmiðjan er að molna, framleiðir rafbíla sem kaupendur vilja ekki https://fortune.com/europe/2024/09/03/volkswagen-german-factory-closure-ev-layoffs/ Bændurninr koma með mykju í kerrunum og sturta á götur höfuðborganna.
Heimskulegar stríðsæsingar ráðamanna eru afsökun fyrir dýrari heriðnaði og hernaðarrekstri. Óhóflegur innflutningur þróunarlandamanna, sem flúið hafa hernað NATO-landa, er orðinn þjóðfélagsvandamál.
Nýju stjórnmálaöflin (sem sum eru reyndar áratuga gömul en hefur tekist að halda niðri) vilja hverfa frá þessum villum vega og hefja endurreisn. En því miður lítur út fyrir að þurfi að beita valdi til þes að koma úreltum stjórnmálaflokkum úr valdastólunum. Upplausn Evrópu endar þá eins og oft áður með vopnuðum innanlandsátökum sem verða undanfari endurreisnar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
ESB-lög æðri íslenskum?
4.9.2024 | 12:35
Evrópusambandið vill að Alþingi samþykki allsherjarreglu sem segir að verði árekstur milli EES-reglna og landslaga "-skuldbindur Ísland sig til þess að setja lagaákvæði þess efnis að EES-reglur gildi í þeim tilvikum" https://www.frjalstland.is/2020/10/15/esb-log-aedri-islenskum-logum/.
Núverandi ríkisstjórn, sem obbi landsmanna styður ekki, virðist nú ætla að láta Alþingi samþykkja þetta (bókun 35 við EES) svo lítið beri á https://heimssyn.blog.is/blog/heimssyn/entry/2305649/. Samþykktin yrði stjórnarskrárbrot og mundi í raun gera EES-samninginn marklaust plagg.
Stjórnvöld Íslands hafa mótmælt og jafnvel tekist að tefja sum skaðlegustu valdahrifs ESB, sem ESA sér um að nöldra um, þó Alþingi hafi oftast samþykkt EES-lögin möglunarlaust og án faglegs mats. Og Stjórnarráðið hefur gefið út óbreyttar þýðingar á EES-reglugerðum án gilds mats. Frjálst land spurðist fyrir um kröfu ESB um að ESB-fyrirtæki sitji við sama borð og íslensk fyrirtæki við úthlutun nýtingarréttar fallvatna og jarðvarma og svöruðu íslensk stjórnvöld þannig:
"Við skoðun málsins hafa komið fram rökstuddar efasemdir um að þjónustutilskipunin eigi við um raforkuframleiðslu. Íslensk stjórnvöld hafa því ákveðið að fresta fyrirhuguðum lagabreytingum uns betri vissa er fengin fyrir því hvaða þjóðrétarlegu skuldbindingar hvíla á íslenska ríkinu að þessu leyti. Frumvarpið sem vísað er til í þingmálaskrá verður því ekki lagt fram á Alþingi á þesum vetri" (en meiningin hafði verið veturinn 2020 að setja í íslensk lög jafnt aðgengi ESB-fyrirtækja og íslenskra að jarðvarma og fallvötnum landsins) https://www.frjalstland.is/2020/04/10/svar-forsaetisraduneytis-vid-fyrirspurn-um-uthlutun-nytingarrettar-orkuaudlinda/
Ætli núverandi forsvarsmenn Íslendinga viti hvaða valdi hefur verið afsalað til útlanda?
Evrópumál | Breytt 5.9.2024 kl. 11:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Varnir Íslands?
2.9.2024 | 13:15
Friðar-Ísland er nú æfingavöllur fyrir hernað Bandaríkjanna og þeirra leppríkja. Þúsund hermenn æfa hernað hér, herþotur drynja yfir okkur og dýrunum okkar. Utanríkisráðfrúin okkar segir: "Það er augljóst að svona æfing er mikilvægari í þeim raunveruleika sem við horfum upp á í dag, þ.e.a.s. þar sem stórveldi hóf allsherjarinnrás inn í frjálst og fullvalda ríki í Evrópu og er, auðvitað ofan á það, að ástunda fjölþátta ógnir í allnokkrum aðildarríkjum" (hvaða, Evrópusambandsins?)
Raunveruleiki ráðfrúarinnar er eftirgrennslanalaus trú á áróður og lygar. Stórveldið sem hóf innrás í frjálst og fullvalda ríki er einmitt ríkið sem er að æfa hermenn sína og sinna kjölturakka hér á Íslandi: Bandaríki Norður-Ameríku, okkar "herverndarar", það voru einmitt Bandaríkin sem hófu hernað gegn frjálsu og fullvalda ríki, Úkraínu, og lögðu það undir sig veturinn 2014 og hófu síðan hernað gegn rússneskum íbúum þess. https://www.frjalstland.is/2023/12/19/stridsundirbuningur/ Gáfnaljósin í Washington og Brussel hafa nú þanið hernaðinn út og hafið stríð gegn Rússlandi sjálfu, einu helsta kjarnorkuveldi heims.
Mikil stríðsvá steðjar að Evrópu og heimsbyggðinni allri a.m.k. meðan mistakaforsetinn situr í Hvíta húsinu og illa upplýstir leiðtogar hanga á valdastólunum í Evrópusambandinu og Bretlandi.
Á meðan þetta tilgangslausa vopnaskak glymur hér á og við Klakann er Landhelgisgæslan, sem er okkar eini verjandi fyrir raunverulegum hættum, í svelti og getur ekki verndað sæfarendur og varið okkur gegn veiðiþjófum eða glæpalýð. Hvað þá NATO-ríkinu Bretlandi sem er eina ríkið sem hefur sýnt Íslandi fjandskap og otað byssukjöftum að okkur.
(Mbl 31.8.2024)
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 3.9.2024 kl. 15:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Græðum á Klakanum
28.8.2024 | 13:10
Loksins getum við farið að græða á hinni Guðsvoluðu eyðimörk sem Ísland hefur reynst Íslendingum. Samkvæmt hinum alræmda EES-samningi þjóna íslenskir fasteignasalar ekki bara Íslendingum heldur líka ESB- og EES-ingum. Þá vantar land undir t.d. vindmyllur og tískubóluna "kolefnisjöfnun" sem er orðin góð afsökun til að ná undir sig landareignum á Íslandi undir því yfirskini að rækta skóg og vinna gegn hlýrra loftslagi sem Íslendinga hefur dreymt um í 1150 ár.
Meira að segja afdalir á Norðurlandi eru á þeirra áhugasviði (Mbl 28.8.2024). Best að drífa í þessu áður en landabraskararnir komast að því að skógur á Norðurlandi drepst í kuldahretum, það sem er að byrja núna verður búið að drepa flest barrtré á Norðurlandi eftir nokkra áratugi.
En þó einhverjir gróðakeppir geti grætt á að selja land á Klakanum gera bændurnir í Vatnsdalnum meira gagn, þeir útvega landsmönnum hollan mat með því að rækta grænt gras. Grasið tekur up mikið af koltvísýring úr loftinu og skilar okkur honum í góðum mat.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Næsta valdarán
26.8.2024 | 11:51
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 13:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Við styðjum hryðjuverk
23.8.2024 | 12:11
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 12:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Lygar um ríkisfyrirtæki
21.8.2024 | 17:38
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.8.2024 kl. 15:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Innrás í Rússland
19.8.2024 | 14:44
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Koltvísýringur er lífgjafi
17.8.2024 | 17:00
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.8.2024 kl. 00:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)