Undirgefin Nobelstofnun

alfred-nobel-294365_960_720Rússlandi er ekki boðið á afhendingu Nóbelsverðlauna. https://www.svd.se/a/mQ452l/nobelstiftelsen-backar-bjuder-inte-in-ryssland-iran-och-belarus

Nóbelstofnunin er nú orðin ber að því að vera handbendi hernaðarvaldsins í Washington. Friðarverðlaunin hafa upp á síðkastið farið til aðila í Úkraínu og Hvítarússlandi sem eru Bandaríkjastjórn, NATO og ESB þóknanlegir og berjast gegn Rússum.

Evrópusambandið sem ásamt með NATO rekur hernað gegn Rússum, en þykist vera að styðja lýðræðið, fékk líka Nobelsverðlaun fyrir að hafa -"stuðlað að friði, sáttum og lýðræði í Evrópu-"! Eins og lesendur vita eru þetta hrein öfugmæli.

Obama Bandaríkjaforseti fékk líka friðarverðlaun Nobels, kannske stigu þau honum til höfuðs, stjórn hans koma af stað Úkraínustríðinu 2014 með blóðugu valdaráni og hernaðarárásum á rússnesku íbúa Austur-Úkraínu

Þrátt fyrir að Rússland hafi lagt heimsyggðinni til fjölda afburðamanna hefur Nobelstofnunin oft gegnið framjá þeim. Leo Tolstoy fékk ekki Nóbelsverðlaun. Dimitri Mendelejeff fékk aldrei Nóberlsverðlaun.

Norræna undirlægjumenningin gagnvart stríðsþjóðunum er að ná áður óþekktum hæðum. Nobelstofnunin verðlaunar varasama loddara, tískuhreyfingar og ófriðaröfl á vegum Bandaríkjanna og Vestur-Evrópu sem heimsbyggðin er í vaxandi mæli farin að sjá í gegnum og vinna gegn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

Svíar voru mestu Vopnaframleiðendur heims i tugir ára, og horfðu á fólk strádrepið með þessum sömu vopnum, en á sama tíma og yfir altl tímabilið, þá voru sviar að úthluta 

FRIÐAR VERÐLAUNUM NOBELS !!!!!!

Sviar þekkja hræsnina. 

oj bara. 

Lárus Ingi Guðmundsson, 4.9.2023 kl. 10:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband