Íslensk lepphræðsla
21.2.2022 | 15:49
Íslenskir ráðamenn endurvarpa rangfærslum NATO og ESB um Úkraínu af skyldurækni: -" mér finnst að okkar rödd hafi lengi verið skýr alveg frá því Krímskagi var innlimaður-" (fréttir Mbl 21.2.2022).
Þeir sem hafa sæmilegt minni vita að það var Úkraínustjórn en ekki Rússland sem innlimaði Krímskaga ólöglega 17.3.1995 og reyndu að myrða forsetann. Íslenskir ráðherrar, NATO og ESB, fóru ekki í refsiaðgerðir gegn Úkraínu út af því, þá var nefnilega meiningin, og er enn, að innlima Úkraínu í NATO og ESB.
En það er ekki innlimunin sem Úkraínustjórn framkvæmdi ólöglega sem íslenskir leppar hafa áhyggjur af, það er innlimun Rússa sem var framkvæmd lýðræðislega, samkvæmt þjóðaratkvæðagreiðslu íbúa Krím 2014.
ESB ákveður utanríkisstefnu Íslands
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 22:17 | Facebook
Athugasemdir
Íslendingar þola það ekki lengi hér eftir.
Helga Kristjánsdóttir, 22.2.2022 kl. 01:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.