Ónýt utanríkisstefna
30.8.2021 | 13:21
Rússlandsmarkaður keypti mikið magn og greiddi gott verð. Vörur sem áður fóru til Rússlands hafa í staðinn leitað inn á markaði m.a. í Afríku þar sem ómögulegt er að fá jafn hátt verð. Á þessum sex árum hefur rússneskur sjávarútvegur styrkst töluvert og ég hugsa að það sé enginn sérstakur áhugi þar fyrir því að fá innfluttan íslenskan fisk í samkeppni við innlenda framleiðslu (Úr viðtali við Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóra Ísfélags Vestmannaeyja, Mbl.28.8.2021)
ESB kallaði sína undirsáta á fund í Brussel í mars 2014 til að samþykkja refsiaðgerðir gegn Rússum eftir að Úkraína neitaði að sækja um aðild að ESB í nóvember 2013. Rússum var kennt um. Þeir svöruðu í sömu mynt og settu viðskiptabönn á ESB og undirsáta.
En Færeyingar héldu sig fyrir utan. Þeir flytja nú út mikið af fiskafurðum til Rússlands, hin fámenna þjóð þorir að verja sína hagsmuni á meðan við látum ESB véla okkur í als kyns vitleysu eftir glas af frönsku víni.
Því verr gefast heimskra manna ráð sem fleiri koma saman (Úr Laxdælu)
https://www.frjalstland.is/2018/06/30/esb-akvedur-utanrikisstefnu-islands/
Meginflokkur: Evrópumál | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 19:52 | Facebook
Athugasemdir
Nákvæmlega þess vegna er Sigmundi Davíð og Gunnari Braga bandamanni hans ekki treystandi.
Þeir félagarnir lögðu aldrei uppsögn aðildarumsóknarinnar fyrir Alþingi, þannig að m.a. Logi og fleirri álíta að hún standi enn og bíði einungis eftir að rykið sé dustað af henni.
Jónatan Karlsson, 30.8.2021 kl. 17:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.