EES-sullið á bílana

green-gas-pump-nozzle-7434375_1365052.jpgEldsneytið sem bensínstöðvarnar selja á bílana þarf að vera minnst 5% lífeldsneyti (vínandi og jurtaolíuefni, EES-tilskipun 2009/28)sem gefur dýrara og lélegra eldsneyti og veldur fleiri ferðum á bensínstöðina. Skattgreiðendur blæddu 7 milljörðum í ívilnanir fyrir innflutning lífeldsneytis síðustu 5 árin. Hin ennþá dýrkeyptari (og vanhugsaðri) rafbílavæðing hefur lítil áhrif haft á innflutning lífeldsneytis. (Sigríður Andersen alþingismaður, Mbl 3.7.2020).

Lífeldsneyti er framleitt úr landbúnaðarafurðum, það þarf að jafnaði meiri díselolíu á dráttarvélar og fleiri tæki við framleiðsluna en lífeldsneytið sem verður til. Dæmigerð uppskrift úr umhverfistrúarguðspjöllum ESB. https://www.frjalstland.is/2018/04/05/dyrt-og-lelegt-bensin-veldur-umhverfisalagi/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

EES sullið er líka komið í veglagningarefnin - hefur nýlega kostað 2 mannslíf.  Hvenær kveikja ráðamenn á perunni sinni?

Kolbrún Hilmars, 3.7.2020 kl. 17:03

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það er auðvitað galið að sóa matvælum í eldneytisframleiðslu.

Gunnar Heiðarsson, 3.7.2020 kl. 18:04

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Vald íslenska ríkisins var framselt til Brussel með aðild ríkisins að Evrópska efnahagssvæðinu (EES) fyrir meira en aldarfjórðungi. cool

Og enginn stjórnmálaflokkur sem á sæti á Alþingi vill segja upp aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu, ekki einu sinni Miðflokkurinn eða Flokkur fólksins.

Davíð Oddsson var forsætisráðherra þegar Ísland fékk aðild að Evrópska efnahagssvæðinu 1. janúar 1994 og Schengen-samstarfinu 25. mars 2001.

Og ef einhverjir Mörlendingar vilja segja upp aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu geta þeir að sjálfsögðu gengið í Íslensku þjóð"fylkinguna", sem
fékk 0,2% atkvæða í alþingiskosningunum í október 2016. cool

Þorsteinn Briem, 4.7.2020 kl. 12:57

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Með aðild Íslands og Noregs að Evrópska efnahagssvæðinu (EES) eru þau ríki de facto einnig í Evrópusambandinu en án atkvæðisréttar í sambandinu. cool

Þar að auki eru langflest ríki Evrópusambandsins í NATO, eins og Ísland og Noregur.

"Túlkun Dómstóls Evrópusambandsins á Evrópurétti er bindandi fyrir aðildarríkin."

"Þá kemur fram í 3. og 6. gr. EES-samningsins að EES-ríkin skuldbindi sig til að skýra og beita ákvæðum samningsins í samræmi við úrskurði og dóma Dómstóls ESB og EFTA-dómstóllinn vísar nær alltaf til fordæma Dómstóls ESB í niðurstöðum sínum." cool

Þorsteinn Briem, 4.7.2020 kl. 13:00

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

Eiríkur Bergmann Einarsson forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst:

"Til að mynda er Svíþjóð aðeins gert að innleiða hluta af heildar reglugerðaverki Evrópusambandsins.

Og ... okkur Íslendingum er nú þegar gert að innleiða ríflega 80% af öllum þeim lagareglum Evrópusambandsins sem Svíum er gert að innleiða." cool

Þorsteinn Briem, 4.7.2020 kl. 13:02

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

"EES-réttur öðlast ekki bein réttaráhrif með sama hætti og bandalagsréttur.

Hins vegar er skylt að taka hann í landslög í þeim mæli sem nægir til þess að hann geti öðlast sambærileg áhrif að þessu leyti og bandalagsréttur." cool

Stefán Már Stefánsson lagaprófessor, Evrópusambandið og Evrópska efnahagsvæðið, bls. 168.

"Schengenríki sem ekki eru í Evrópusambandinu (Noregur, Ísland og Sviss) hafa engin formleg völd þegar ákvarðanir eru teknar sem varða samstarfið og hafa í raun aðeins kost á því að taka upp þær reglubreytingar sem því fylgja eða segja sig úr því ella." cool

Schengen-samstarfið

Þorsteinn Briem, 4.7.2020 kl. 13:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband