Schengen orðið dýrkeypt
13.3.2020 | 12:38
Bandaríkin banna nú ferðir fólks frá Schengensvæðinu inn til Bandaríkjanna, áður höfðu ferðir frá Kína verið takmarkaðar enda covid-faraldurin upprunninn þar.
Með Schengen ætlaði ESB að stjórna innflæði fólks til ESB. Það hefur mistekist hrapalega, kerfið hefur verið ónýtt í mörg ár og stjórnlaust innflæði alls kyns fóks hefur verið inn á svæðið. Nágrannar okkar, Bretar, Írar, Færeyingar og Grænlendingar höfnuðu aðild að Schengen en okkar stjórnvöld létu draga sig með eins og í flesta draumóra ESB og EES. Schengen óraunhæft
Eðlileg aðgerð Bandaríkjanna er því að loka á Schengenlöndin meðan covid-faraldurinn herjar. Ef Ísland hefði haft kjark til að standa utan Schengen, eins og okkar nágrannar með sjálfsvirðingu gerðu, væri Ísland ekki í banni Bandaríkjanna. Schengenmistökin hafa lengi verið okkur dýrkeypt en nú keyrir um þverbak.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:07 | Facebook
Athugasemdir
Ráðamenn vissu allan tímann frá því "Ránið" var framið 2008,að flestir Íslendingar kærðu sig ekkert um að líða ESB að vaða hér uppi eins og værum við hertekin þjóð.
Helga Kristjánsdóttir, 14.3.2020 kl. 02:18
Já, það bjargar greinilega Bretum og Írum að standa utan Schengen, eða hitt þó heldur!
Þorsteinn Siglaugsson, 14.3.2020 kl. 17:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.