Minni fyrirtæki þarf að örva
23.1.2020 | 13:17
Bjarni Benediktsson vill örva minni fyrirtæki, þau skapa flest störf (Morgunblaðsfrétt 21.1.2020). Í Bandaríkjunum hefur efnahagslífið eflst mikið eftir að afnumdar hafa verið íþyngjandi reglugerðir. Ísland býr við mjög íþyngjandi reglugerðir, að mestu vegna EES, sem bitna harðast á minni fyrirtækjum. Kostnaður vegna regluverksins hefur verið áætlaður um 165 milljarðar króna á ári (sem dygði í ein 10 jarðgöng!)
Þegar íslenskt atvinnulíf þróaðist hraðast, áratugina eftir lýðveldisstofnunina, voru reglugerðir hóflegar og atvinnustarfsemi fékk að vera í friði. Það var heldur enginn virðisaukaskattur eða tryggingagjald eða staðgreiðsla eða lífeyrissjóðakvöð eða starfsleyfiskvöð eða kvóti. Atvinnuleysið var hverfandi.
Eitt það fyrsta sem Bretar gera með útgöngunni úr ESB er að ræsta fram reglugerðakviksyndið frá Brussel. Og ekki þarf að bíða, fyrirtæki í ESB standa nú þegar í biðröðum til að fá að starfa í Bretlandi. Besta leiðin til að örva minni fyrirtæki á Íslandi er að afnema íþyngjandi EES-reglugerðir og skatta sem teknir hafa verið upp eftir fyrirmynd frá mismikið stöðnuðum ESB-löndum.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 13:24 | Facebook
Athugasemdir
Það örvar engin Islensk fyrirtæki að allar vörur eru fluttar inn frá barnaþrælkunarlöndum.
Ofurskattar og þvælureglugerðir- Bjarni ætti að skoða það.
Erla Magna Alexandersdóttir, 23.1.2020 kl. 19:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.