Hamslaus hamfarahlýnun
20.3.2023 | 14:39
Loftslagssérfræðingar Sameinuðu þjóðanna geta ekki haldið höfðinu köldu.
Meðan hitastigið hér við Atlantshafið heldur áfram að lækka og frostið liggur yfir mánuðum saman og klakinn heldur bátunum föstum í höfnunum, kemur enn ein "skýrslan" frá einni afkastamestu ruslvísindaútgáfu heimsins, IPCC, milliríkjanefnd sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar.https://www.bbc.com/news/science-environment-65000182
Nú á að setja kraft í að hræða unglingana (og stjórnmálamennina) til að hlýða niðurrifsöflunum sem ætla að koma á fátækt og skaffa sér meiri völd (og peninga) áður en allur heimurinn veit að ógnin um loftslagshlýnun er ekki raunveruleg heldur aðeins til í höfðinu á undirmálsvísindamönnum og illa upplýstum fjölmiðla- og ráðamönnum. https://www.frjalstland.is/loftslagsvisindi-hrjad-af-folsunum/
Á sama tíma hefir sjálft Evrópusambandið, ein helsta miðstöð ruslvísinda um loftslag, endurskilgreint jarðefnaeldsneyti (jarðgas) sem "grænt" og sett í gang aukið kolanám.
Hugmyndin um kolefnishutleysi hefur þannig afhjúpast sem draumur sem aldrei rætist og sumir helstu loftslagsskrumararnir eru hættir að reyna að sýnast.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)