Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál
Friðarbarátta er dauðasynd
11.9.2025 | 11:30
Charlie Kirk, einn af helstu stuðningsmönnm Donalds Trump, var drepinn í gær og þar með þaggað niður í einum helsta andstæðingi Úkraínustríðs Bandaríkjanna. https://www.rt.com/news/624491-charlie-kirk-ukraine-threat/
Charlie Kirk hefur afhjúpað þá sem græða á stríðinu og orðið fyrir morðhótunum frá Úkraínustjórn að sögn. Ekki ólíklegt, leppstjórnin í Úkraínu er með leigumorðingja og hryðjuverkamenn á sínum snærum, ekki bara í Rússlandi heldur líka í Evrópu, Ameríku, og jafnvel Afríku.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 11:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Refsiaðgerðir
8.9.2025 | 17:51
Refsiaðgerðir og viðskiptahöft Evrópusambandsins og Bandaríkjanna kosta meir en hálfa milljón mannslífa á ári, svipað og mannfall í stríðsátökum samkvæmt læknatímaritinu Lancet.
Evrópusambandið, sem er samband fyrrum heimsvelda, og Bandaríkin, sem eru fyrrum evrópskar nýlendur, þykjast þess umkomin að segja þjóðum heims fyrir verkum með refsiaðgerðum, þvingunum og hernaði.
Við Íslendingar þurfum að fara að átta okkur á í hvaða félagsskap við höfum lent og byrja að velja og hafna í hvaða "aðgerðum" á vegum okkar "bandamanna" við tökum þátt. Í ljós hefur komið að framferði okkar helstu "bandalagsþjóða" er jafn mikil orsök ótímabærs dauða Jarðarbúa og stríð. https://www.thelancet.com/action/showPdf?pii=S2214-109X%2825%2900189-5
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 9.9.2025 kl. 01:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þýskur her
28.8.2025 | 19:02
Þýski herinn vildi samvinnu við Ísland um varnarmál, forustumenn þjóðverja vöruðu við hættunni af Rússlandi. Forustumenn Íslands sögðu nei! Það var 1939. Þá voru ábyrgir menn í forustu landsins.
Þýski herinn vill samvinnu við Ísland um varnarmál, yfirmaður þýska heraflans varar við árás Rússlands á NATO-ríki innan fjögurra ára. Forustufólk Íslands segir já! Það er 2025! Og óábyrgt fólk í forustu Íslands.https://www.ruv.is/frettir/erlent/2025-06-02-yfirmadur-thyska-heraflans-varar-vid-aras-russa-a-nato-riki-innan-fjogurra-ara-445150
Sama rullan, sami stríðsæsingurinn, sömu blekkingarnar, sama lygin og sama þjóðin sem hóf síðustu heimsstyrjöld.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 30.8.2025 kl. 14:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tekst ESB að spilla friðarsamningi?
18.8.2025 | 15:57
Nokkrir forsprakkar Evrópusambandsins sækja nú að Bandaríkjunum að halda áfram Úrkaínustríðinu. Trump vill hætta sem eru miklar fréttir, það var Bandaríkjastjórn Barak Obama sem hóf stríðið með valdaráni (21.11.2013-25.2.2014) og hernaðarrekstri nýrrar leppstjórnar sinnar gegn rússneskum íbúum Úkraínu.
Forsetarnir sem komu á eftir Obama (Biden, Trump) héldu áfram að reka hernaðinn með Úkraínuher sem verktaka og nú gerir leppstjórnarherinn stöðugar árásir, ekki bara á Donbass heldur líka sjálft Rússland, stjórnað frá herstöð Bandaríkjanna í Wiesbaden í Þýskalandi. Og gáfnaljós Evrópusambandsins, frá stríðsþjóðunum Þýskalandi, Frakklandi og Englandi, með um 20% sina þjóða á bak við sig, vilja ólmir komast í stríð.
Rússar hafa komið upp sterkum vörnum gegn árásum leppstjórnarinnar, Trump sér að enginn ávinningur yrði af áframhaldandi stríði og vill semja frið áður en Rússar láta Úkraínustjórn leggja inn skilyrðislausa uppgjöf. Eða kjarnorkustyrjöld brýst út þegar ESB- og NATO- vitfirringarnir ráðast inn í Úkraínu.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 19.8.2025 kl. 00:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bomban
9.8.2025 | 18:09
Nagasaki með íbúum var jöfnuð við jörðu fyrir 80 árum. Það var Stríðsríkið sem varpaði kjarnorkusprengju á borgina. Afsökunin var að það þyrfti að enda seinni heimsstyrjöldina á Kyrrahafssvæðinu með því að láta Japan kenna á voðavopni Bandaríkjanna.
Þetta var upplogin afsökun. Ástæða þess að Japan gafst upp var að Rússarnir voru á leiðinni. Japanskir ráðamenn vildu með engu móti fá sömu útreið og Þjóðverjar https://www.fhtimes.com/stories/us-atomic-bombings-didnt-save-lives-or-end-world-war-ii,604784
Kjarnorkusprengjurnar sem varpað var á Hírósíma og Nagasaki voru óþarfar til þess að enda stríðið en drápu milljónarfjórðung manna.
Kjarnorkustríðið sem gæti orðið afleiðing af "stuðningi" Evrópusambandsins og Íslands við Úkraínu yrði margfalt dauðlegra. https://www.frjalstland.is/2025/04/19/staersta-ognin-vid-island/
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 10.8.2025 kl. 19:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skemmdarverk undirbúin
4.8.2025 | 14:52
Hin heimsþekkta lygasmiðja, Greenpeace, segir að Rússar reki 192 skipa "skuggaflota" til þess að flytja út olíu framjá þvingunum Evrópusambandsins, "gömul" og hættuleg skip, meir en 15 ára og geta vadlið umhverfisslysi! https://www.greenpeace.org/static/planet4-sweden-stateless/2024/10/fb3d5709-greenpeace-shadow-fleet-baltic-tankers-list.pdf
Komandi frá grínpiss hljómar þetta eins og hótun um skemmdarverk til að valda olíuleka. Stjórnvöld NATO- og ESB-landa útvarpa samskonar hótunum og segja þörf á "varnaraðgerðum" og gætu verið að undirbúa sviðsetningu á olíuslysi í anda skemmdarverksins á Nord Stream gaslögninni sem komst fljótt upp um. Sjálfdauða heimsveldið, Bretland, er þar fremst í flokki stríðsæsinganna eins og fyrri daginn og nauðsyn fyrir Ísland að fylgjast vel með "vörnum" þeirra gegn "skuggaflotanum"!
Skuggaflotagrýlan er að sjálfsögðu hreinn stríðsáróður. Eðlilegur endingartími olíuskipa er 20-30 ár. https://vesselblenders.com/blog/how-many-years-does-an-oil-tanker-vessel-last/
En Ísland þarf að hafa augun opin, við megum ekki við einhverjum striðsleik með olíuskip á okkar hafsvæði.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 15:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fjórða Ríkið
2.8.2025 | 14:40
Stofnun Fjórða Ríkisins er hafin. Það verður stríðsríki eins og Þriðja Ríkið sem hefur það eitt að markmiði að fara í stríð við Rússland. Okkar ósjálfstæðu fulltrúar eru teknar með í undirbúninginn. https://www.frjalstland.is/2025/07/17/islendingar-verda-ad-vara-sig-a-stridsaesingnum/
Þriðja Ríkið olli dauða 80 milljóna manna, það Fjórða gæti haft vinninginn upp á hundruðir milljóna manna.
Utanríkisráherra Rússlands, Sergey Lavrov sem er alinn upp við íslenskar sögur, segir að Þýskalnd ásamt með Evrópusambandinu séu að koma á fót Fjórða ríkinu. https://tass.com/politics/1996763
Móðir Lavrovs, Kalería Lavrova, var forstöðumaður í utanríkisviðskiptaráðuneytinu í Moskvu og hélt viðskiptasamstarfi Íslands og Rússlands gangandi um áratuga skeið sem bjargaði Íslandi frá efnahagsþrengingum vegna ofríkis NATO-og ESB-landa. Hún fékk íslensku fálkaorðuna árið 2006. https://olafur.forseti.is/Falkaordan/Falkaordan2006/index.html
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 15:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hamskipti ESB
21.7.2025 | 14:31
Hið mikla friðar- og samvinnubandalag, ESB, hefur nú haft hamskipti og er nú orðið stríðsbandalag. Kveikjan að því var að Úkraína hafnaði aðild að ESB (nóvember 2013) sem sýndi að hervald var eina leiðin til þess að innlima Úrkaínu í ESB. ESB-lönd gengu því í lið með Bandaríkjastjórn Obama, sendu vopnaða menn inn í Ukraínu og frömdu blóðugt valdarán
Í framhaldi af valdaráninu hóf leppstjórn þeirra hernað gegn Donbass-héruðunum sem höfðu lýst yfir sjálfstæði. Rússar svöruðu síðan með hernaði gegn innrásarliði Úrkaínu sem þá hafði ásamt með ESB-löndum og Bandaraíkjunumm brotið alla samninga við Rússland. Þar með skapaðist tækifærið sem stríðsmangarar ESB og NATO höfðu beðið eftir að kenna Rússum um "tilefnislausa innrás" og stríðið sjálft sem Obama og ESB-lönd hófu.
Stríðið sem ESB og NATO hafa dregið vanhæf íslensk stjórnvöld með í og gert Ísland meðsekan stuðningsaðila í, hefur nú verið belgt út og er orðið að meiriháttar styrjaldarvá í höndum lýðræðisfirrtra Evrópusambandsforsprakka.
https://www.frjalstland.is/2025/07/17/islendingar-verda-ad-vara-sig-a-stridsaesingnum/
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 14:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stríðsfrúin komin
17.7.2025 | 14:51
Hún ætlar að ræða "varnarmál" við okkar frýr þó henni komi þau ekki við, þau eru á milli okkar og Bandaríkjanna sem við erum með varnarsamning við Evrópusambandinu óviðkomandi.
Hún mun væntanlega reyna að tæla okkar kvennastjórn í Evrópusambandið með þekktum fagurgala og lygum.
https://www.frjalstland.is/2025/07/17/islendingar-verda-ad-vara-sig-a-stridsaesingnum/
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 14:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það var mikið!
3.7.2025 | 12:24
Loksins eru Bandaríkn að hætta vopnasendingum til nýnasistaklíkunnar í Úkraínu. Það var alltaf ljóst að stöðvun vopnasendinganna var það eina sem þurfti til þess að stöðvca stríðið sem Bandaríkin hafa rekið í 11 ár. Trump ætlar að standa við orð sín þó tafir hafi orðið. https://www.theguardian.com/world/2025/jul/02/us-halts-ukraine-weapons-shipments
Þó Evrópusambandið og Bretar hafi rótað upp stríðsæsingum og ætli að eyða fúlgum í stríð við Rússland er ekki líklegt að það endist mjög lengi, Evrópusambandið og Bretar hafa ekki einir efni á stríði jafnvel þó Brusselgáfnaljósin ætli að eyða 800 milljörðum evra í það og okkar strengjabrúðustrjórnmálamenn ætla að láta Ísland vera með!!
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 13:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)