Færsluflokkur: Evrópumál
Orkustefna óvita og ESB
4.10.2020 | 15:15
Ríkisstjórnin hefur gefið út orkustefnu til 2050 í 12 "markmiðum", að mestu tekin upp úr tilskipunum frá ESB. Seint í rassinn gripið, mikilvægustu kaupendur íslenskrar orku eru þegar komnir með uppgjafahljóð. Stefnan nær svo langt fram í tímann að höfundar í Brussel og Reykjavík verða ábyrgðarlausir, að mestu búnir að geispa golunni 2050. Markmiðalistinn er án vitlegrar forgönguröðunar og blanda af sjálfsögðum hlutum og tískufyrirbærum:
3- "Orkukerfið fjölbreyttara"- Þetta þýðir aðallega vindmyllur og sólarpanela sem eru slæmir orkugjafar, mjög umhverfisspillandi og verða skammlífir hérlendis.
4-"Ísland er óháð jarðefnaeldsneyti---" Þetta eru tískudillur og draumórar ESB og heimsvaldasinna og geta ekki ræst.
5-"Orkumarkaður er virkur og samkeppnishæfur"- Samkeppnismarkaður orku á Íslandi er samkvæmt tilskipunum frá ESB og ónothæfur hér. Orkuframleiðsla á Íslandi þarf að vera án gróðakröfu og samkeppnishæf við orku landa þar sem eru fyrirtæki í samkeppni við íslensk fyrirtæki. Það er orkan hér ekki lengur vegna langvarandi vanrækslu.
10.-markmiðið er það mikilvægasta en óskilgreint: "Þjóðin nýtur ávinnings af orkuauðlindunum"- Þetta þýðir ef marka má núverandi undirlægjuhátt við ESB, að ríkið selur aðilum þar aðgang að auðlindunum.
Þetta markmið (10.) ætti að vera fyrst á listanum og orðast þannig:
Fallvatns- og varmaorkuauðlindir Íslands verði nýttar af almannafyrirtækjum á sem hagkvæmastan hátt til atvinnusköpunar og fyrir heimili og orkunotendur á Íslandi.
Þannig orðað meginmarkmið er nægilegt og segir að almannafyrirtæki haldi notkunarréttinum á orkuauðlindunum og að afskipti ESB verði afnumin. Sjálfbær_þróun_leiðarljós_í_orkustefnu_til_2050
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Bílar eiga að vera léttir
29.9.2020 | 13:41
Þegar Porsche gamli hannaði Bjölluna, sem varð rúm 700 kíló, grunaði hann ekki að afkomandinn, e-Golf, yrði meir en eitt og hálft tonn vegna baráttunnar við hamfarahlýnun ESB. En farðu ekki á honum upp á heiði í vondu færi og kulda, það gæti klárast af rafhlöðunni.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Grænir málmar
23.9.2020 | 17:15
Ísland framleiðir græna málma (orð úr umhverfisguðspjöllum ESB). Þeir eru að vísu bara silfurglansandi eins og flestir málmar en léttir. Ál gerir bíla og flugvélar létt og orkusparandi, kísilmálmi er blandað í ál (10 þúsund tonn á ári hér) og hann er líka notaður í sólarpanela. Það sem gerir málmana virkilega græna er að koltvísýringur myndast við framleiðslu þeirra, eins og við flestar mannsathafnir, en hann gerir jörðina græna. En því miður er ESB að rústa framleiðslu málmanna og íslenskum iðjuverum.
Áþján EES komin á sjávarútveginn
21.9.2020 | 14:19
Þegar EES var samþykkt var lofað að sjávarútvegurinn væri undanþeginn ESB-valdinu. Það var blekking eins og við var að búast með EES. Ein ógæfulegustu lög sem komið hafa með EES eru samkeppnislög ESB, upprunalega sett 1993. Þau voru stjórnarskrárbrot og hafa staðið í vegi fyrir þróun fyrirtækja hérlendis, þar á meðal sjávarútvegsfyrirtækja.
Í vor sendi Samkeppniseftirlitið frá sér "ákvörðun" um að viðskipti með eignarhlut í sjávarútvegsfyrirtæki gæti valdið skaðlegri samþjöppun. Nú hefur verðbréfafyrirtækið Arev, og Hagfræðistofnun reyndar líka, komist að því að samkeppni er meiri í sjávarútveginum en í öðrum geirum (Mbl.21.9.2020). En hvað komu viðskiptin með eignarhlutina annars samkeppnislögum ESB/EES við, átti sjávarútvegurinn ekki að vera undanþeginn EES-áþjáninni?
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mannaflóð úr suðri
18.9.2020 | 20:19
Ein af aðgerðum ESB til að "sameina Evrópu", s.k. Schengensamningur sem Íslendingar ánetjuðust, var að opna landamæri og afnema vegabréfsáritanir milli aðildarlanda, einnig átti að hafa stjórn á fólksinnflutningi úr suðri inn til ESB-landa. En eins og margar "sameiningaraðgerðir" ESB hefur Schengen farið út um þúfur. Þegar mannasmyglararnir komu af stað flóði af ungum þróunarlandamönnum til Evrópu sumarið 2015 kom í ljós að Schengenkerfið dugði ekki, óþekktur fjöldi flæddi og flæðir enn stjórnlaust til og um Evrópu. Svokallaðar Dublinreglur voru til að hafa einhvern hemil á fólksflutningum. Sum lönd (Svíþjóð, Þýskaland) opnuðu í raun sín lönd, og þarmeð öll Schengenlönd, án þess að spyrja hina leyfis. Þar með opnaðist Ísland líka enda hefur ekki verið mikil stjórn á fólksflutningum milli Norðurlanda lengi. Svíþjóð og Þýskaland ráða illa við óöldina sem af hefur hlotist í sumum borgarhlutum, meira að segja sænska ríkisstjórnin, sem hefur verið stórmeistari í skinhelgi og hylmingum, hefur nú viðurkennt vandann.
Nýjustu fréttir frá ESB eru að Dublinreglurnar verði afnumdar. Schengensamningurinn er löngu ónýtur og ekki batnar það með afnámi Dublinreglnanna. Vont getur lengi versnað hjá ESB sem vill ekki að Íslendingar ráði hverjir búa á Íslandi.
https://www.frjalstland.is/2019/02/19/schengensamningurinn-longu-hruninn/
Evrópumál | Breytt 19.9.2020 kl. 00:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
ESB hótar Bretum fram á síðustu stund
16.9.2020 | 17:32
Orrustan um Bretland 2020 færist nær lokum. ESB hótar að túlka samninginn frá í fyrra, um útgöngu Breta, til þess að hefta viðskipti Bretlands við Norður-Írland. ESB vill líka að Bretar hlýði Mannréttindadómstólnum en hans dómar hafa orðið til þess að Bretland situr uppi með hættulega menn.
Breska stjórnin stendur föst á sínum sjálfstæðisáformum og með þingið á bak við sig. Gæti endað með að Bretar yfirgefi ESB samningslausir en notist við WTO-samningana í staðinn sem margir stuðningsmenn stjórnarinnar telja full gott. ESB hótar Bretum
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 18:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Loftslagsskrumararnir með æðiber
14.9.2020 | 13:29
Falsfréttamiðlarnir eru orðnir hræddir við að Trump vinni kosningarnar og senda nú út lygar um loftslagsbreytingar í stríðum straum en Trump hefur afhjúpað loftslagsskrumið.
"kjarreldar í Kaliforníu vegna loftslagsbreytinga" (USA-miðlar) Eldarnir nú eru minni en þeir hafa verið, áður en byggð fór að þéttast brunnu nærri 5 milljónir hektara árlega. Ástæða eldanna nú er vanræksla við hirðu skóga og kjarrs.
"Risastór ísjaki brotnar frá Grænlandsjökli" hefur einn falsfréttafjölmiðillinn (UK) eftir þýskum "vísindamönnum" en þeir hafa japlað á hvarfi Grænlandsjökuls í áratugi, hann breytist lítið en stöðugt brotnar framan af skriðjöklunum eins og áður.
"Ísland bráðnar" segja falsfréttamenn (UK) og sýna Breiðamerkurlón með fljótandi jökum. Þeir segja ekki að einu sinni voru bóndabæir og gróið land þar sem jökullinn er nú.
Umhverfisöfgalýðurinn æðir um götur nágrannalanda okkar brjótandi og bramlandi, falsfréttamiðlarnir veita þeim samúð og afsakanir.
Hér heima hafa stjórnmálamenn og margir áhrifamenn látið glepjast af loftslagsskruminu: "Orkuskipti í samgöngum forsenda þess að Ísland geti staðið við alþjóðlegar skuldbindingar í loftslagsmálum" (frá ráðstenfnu um "orkuskipti"). Hér er greinilega átt við skuldbindingar gagnvart ESB sem eru ekki alþjóðlegar og ekki að rugla saman við hið alþjóðlega Parísarsamkomulag frá 2015 sem var loforðalisti sjálfstæðra þjóða, Íslands þ.á.m., sem fáar geta staðið við og er því orðið úrelt. Rafbílavæðingin veldur aukinni eiturefnamengun á heimsvísu, breytir heildarkoltvísýringsútblæstri lítið en gerir bílana of þunga sem eykur slit vega, þeir eru varasamir í vetrarveðrum vegna þyngdar og takmarkaðs orkumagns í rafhlöðum, þeir auka hættulega rykmengun og eru óþörf skattbyrði á almenningi.
Evrópumál | Breytt 15.9.2020 kl. 12:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Kolefnissporið góða
9.9.2020 | 15:15
Í Mogga dagsins er ráðherra að setja repjuolíu á díselvél til að minnka kolefnissporið, tilskipun ESB 2018/410. Framleiðsla repjuolíu þarf mikla orku, þar á meðal díselolíu, en gefur lélegra eldsneyti. Útblásturinn breytist því lítið, áhrif ráðherrans á kolefnissporið eru því hverfandi.(Lélegt jurtaeldsneyti) (með kolefnisspori er átt við þann koltvísýring, sem er 27% kolefni, sem sleppt er út í loftið, hann er eina grunnnæring repju og annars gróðurs og lítið (0,04%) af honum í lofthjúpi jarðar). Annar ráðherra hælist um yfir að Ísland nái markmiðum (ESB) um orkuskipti og kolefnishlutleysi. Rafbílavæðingin er þegar orðin baggi á skattgreiðendum (sem eiga líka að borga fyrir Covid), veldur vegasliti og mikilli mengun á heimsvísu.
"Kolefnishlutleysi" er draumsýn umhverfisöfga, of óraunsæ til að geta orðið að veruleika og bætir ekki loftslagið. Það lítur út fyrir að ráðherrarnir þurfi að fara aftur í grunnskóla til að lesa náttúrufræði fyrir byrjendur. Og hætti að lesa ESB-tilskipanir
https://www.frjalstland.is/2020/04/27/michael-moore-afhjupar-graenu-orkuna/
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 15:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dansað eftir pípu ESB
26.8.2020 | 16:34
Uppþotin í Hvítarússlandi (fjármögnuð utan Hvítarússlands samkvæmt rússneskum blöðum), beint og óbeint studd af ESB, munu verða notuð til að reyna að ná Hvítarússlandi undir sams konar braskvæðingu, rányrkju og rupl og öðrum jaðarlöndum ESB. Dæmi er nágrannaland Hvítarússlands, Litháen, lítil þjóð sem missti unga fólkið úr landi, nærri milljón manns, þegar hin lamaða hönd ESB lagðist yfir landið.
Nú ætlar ESB með skinhelgi og hótunum eins og vant er að setja einhvers konar bann á Hvítarússland og fá með sér alla sína leppa. Þar á meðal EES-Ísland. Við álpuðumst með í undirbúninginn að valdaráni auðrónanna í Úkraínu og fengum eina helstu viðskiptaþjóð Íslands, Rússa, á móti okkur fyrir vikið. Kannske ætla okkar máttlitlu stjórnvöld að bæta um betur og hjálpa ESB að koma ruplinu af stað í Hvítarússlandi.
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2020/08/17/funda_vegna_krisunnar_i_hvita_russlandi/
Evrópumál | Breytt 27.8.2020 kl. 00:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Hver fjármagnar uppþotin í Hvítarússlandi?
20.8.2020 | 13:21
Skemmdarverkapeningar frá ESB, Obamastjórninni og auðrónum fjármögnuðu upplausnina í Úkraínu á miðjum áratugnum, löglega kjörin stjórnvöld voru hrakin frá völdum og leppar settir í staðinn. Undirsátar ESB, þar á meðal Ísland, dönsuðu með. Þökk sé Rússum er Úkraína ennþá sjálfstæð.
https://www.frjalstland.is/2018/06/30/esb-akvedur-utanrikisstefnu-islands/
Úkraínuuppþotin gætu verið að endurtaka sig í Hvítarússlandi. Fransk-Þýska veldið, ESB, sér nú möguleikana á að fá þar leppstjórn og opna landið fyrir rányrkju og undirbúa innlimun. Hættan af landvinningastefnu ESB virðist vera að vaxa, mögulega hefur sjálfstæði Breta hleypt hefndarhug og aukið landvinningaþrá ESB-veldisins en það hefur verið sögulegt hlutverk Breta og Rússa að stöðva Franska og Þýska landvinninga.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 13:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)