Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Óðir hundar
28.2.2022 | 13:40
Leiðtogar NATO- og ESB-landa gelta nú eins og óðir hundar á Rússland sem hefur skorið upp herör. Þeim er nær, þeir hafa með undirróðri, mútum og vopnaskaki króað Rússa út í horn og færa sín vopnahreiður sífellt nær landamærum Rússlands (úkraína er rússneska og þýðir landamærasvæði). NATO hefur herjað víða um heim síðustu hálfa öldina án árangurs en sóað þúsundum mannslífa. Ekki líklegt að afskipti NATO af Úkraínu verði öðruvísi
ESB- og NATO-lönd brjóta nú alþjóðasamninga á Rússum hvert í kapp við annað, banna yfirflug, taka eignir þeirra, banna bankaviðskipti.
Obama-stjórnin eyddi 5 milljörðum dollara og skemmdarverkafjárfestar frá NATO-löndum fúlgum í að koma löglegri stjórn Úkraínu frá völdum 2014 vegna þess að hún vildi ekki ganga í ESB og NATO.
Falsfréttamiðlar í ESB og NATO eru í essinu sínu og dreifa fölsunum og áróðri gegn Rússum, að segja frá aðdraganda og ástæðum er handan þeirra gáfnafarslegu getu og sanngirni. Lygaherferð gegn Rússum hefur verið lengi í gangi, dæmi:
"Rússar innlimuðu Krím". Það var Úkraínustjórn sem innlimaði Krím ólöglega í mars 1995. https://www.refworld.org/docid/469f38ec2.html Krímbúar kusu svo lýðræðislega að sameinast Rússlandi 2014 eftir að leppar NATO og ESB höfðu hrifsað völdin í Kænugarði.
"Aðskilnaðarsinnar í Austur-Úkraínu í hernaði" Það er leppstjórn ESB og NATO í Kænugarði sem hefur níðst á rússneskumælandi íbúum og sent á þá hersveitir.
"Pútín hótar kjarnorkustríði" Rússar hafa sett sinn fráfælingarherafla (deterrent force) í viðbragðsstöðu sem þýðir að hann er viðbúinn ef NATO gerir árás, eftir að utanríkisráðherra Breta, Liz Truss, talaði af sér.
NATO sendir mú "stuðning" og vopn inn fyrir landamæri Úkraínu og hermenn að landamærunum. Hættan á kjarnorkustríði eykst.
ESB ákvedur utanríkisstefnu Íslands
.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.3.2022 kl. 14:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þingmenn í sóun
24.2.2022 | 16:48
Sigurð Inga dreymir um að losna við bensín- og díselbíla, landsmenn sem hafa sæmilegt vit dreymir um að losna við Sigurð Inga áður en hann rústar bílaflotanum til að þjónkast við ESB.
Guðrúnu Hafsteinsdóttur dreymir um að braskvæða mikilvægustu eign landsmanna, Landsvirkjun, eins og bankana, fjárfestingasjóðina, áburðarverksmiðjuna, sementsverksmiðjuna, kísilgúrverksmiðjuna, leiðarakerfi og fleiri verðmætar þjóðareignir sem braskarar fengu að hirða og sólunda í eigin þágu.
Daða Kristófersson dreymir um að taka vatnsréttindin af þjóðarfyrirtækinu Landsvirkjun, þannig er hægt að hlýða EES-fyrirmælum um að fyrirtæki í ESB fái sama rétt og íslensk almannafyrirtæki til að virkja íslenskar orkuauðlindir (Fréttablaðið 24.2.2022).
Íslensk lepphræðsla
21.2.2022 | 15:49
Íslenskir ráðamenn endurvarpa rangfærslum NATO og ESB um Úkraínu af skyldurækni: -" mér finnst að okkar rödd hafi lengi verið skýr alveg frá því Krímskagi var innlimaður-" (fréttir Mbl 21.2.2022).
Þeir sem hafa sæmilegt minni vita að það var Úkraínustjórn en ekki Rússland sem innlimaði Krímskaga ólöglega 17.3.1995 og reyndu að myrða forsetann. Íslenskir ráðherrar, NATO og ESB, fóru ekki í refsiaðgerðir gegn Úkraínu út af því, þá var nefnilega meiningin, og er enn, að innlima Úkraínu í NATO og ESB.
En það er ekki innlimunin sem Úkraínustjórn framkvæmdi ólöglega sem íslenskir leppar hafa áhyggjur af, það er innlimun Rússa sem var framkvæmd lýðræðislega, samkvæmt þjóðaratkvæðagreiðslu íbúa Krím 2014.
ESB ákveður utanríkisstefnu Íslands
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1200 blaðursíður
13.2.2022 | 14:51
Virkjanir tefjast, Landsvirkjun þarf að sækja um leyfi hjá skriffinnum eigneda sinna. Hvammsvirkjun er búin að vera í skriffinnsku í 20 ár samkvæmt lögum frá ESB um mat á umhverfisáhrifum, hefur tvisvar farið í umhverfismat. Orkustofnun hefur verið að stauta sig framúr 1200 blaðsíðum í 8 mánuði meðan orkuskortur herjar. Svo þarf að auglýsa í Lögbirtingi. Svo fá kvartarar 3 vikur. Svo þarf að svara. Svo þarf að sækja um framkvæmdaleyfi. Svo þarf --- (Mbl 10.2.2022)
Nýjustu viðbótinni við lögin um umhverfismat (ESB-tilskipun 2014/52) var mótmælt harðlega: "-Samtök atvinnulífsins og Samband íslenskra sveitarfélaga eru því andvíg frumvarpi umhverfis- og auðlindaráðherra í heild-". Og Verkfræðingafélagið sagði að þyrfti "-að fækka möguleikum til að vera með tilhæfulausan málflutning á grundvelli þessara laga-". Flókið og kostnaðarsamt umverfismat hægir á þróun byggðar
Nýjustu viðbótinni við regluverkið um starfsleyfi (ESB-tilskipun 2010/75 ofl.) var líka mótmælt harðlega: "Afstaða sambandsins (íslenskra sveitarfélaga) er sú að alls ekki sé til bóta að búa til svo viðamikla reglugerð þar sem blandað er saman lítt skyldum efnisreglum og leitast þurfi við að halda reglum um starfsleyfisútgáfu eins einföldum og aðgengilegum og frekast er kostur-". Hamlandi starfsleyfisreglur
Ríkisstjórn og Alþingi hunsa allar athugasemdir þegar ESB sendir EES-tilskipanir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Græn iðnbylting
11.2.2022 | 16:10
Samtök iðnaðarins og ríkisstjórnin ætla að gera "græna iðnbyltingu" til þess að draga úr "losun kolefnis", auðvitað samkvæmt tilskipunum ESB þar sem græna kreppan er skollin á (hafið þið heyrt áður um ráðherra og félög úti í bæ sem gera byltingu?) Orkuskiptin eru draumórar
Miðstjórn grænu byltingarinnar mætti á Hellisheiði (Mbl 11.2.2022) þar sem ein fyndnasta tilraunin er í gangi með að ræna jurtir jarðarinnar næringunni, sem kemur úr jarðhitanum og þær eiga tilkall til, og dæla henni niður í hraunið. https://www.carbfix.com/
Og jafnvel er líka verið að stela næringunni úr loftinu þaðan sem jurtirnar fá hana. Sem betur fer verður Carbfix-árangurinn aldrei mælanlegur, 77.000 tonn á 7 árum á sama tíma og jurtir jarðar hafa bundið 6.000.000.000.000 tonn (sexþúsundmilljarða!).
"Grænar fjárfestingar" eru þekktar fyrir plat-verkfræði en er haldið uppi með almannafé. Eða af snobbuðum auðmönnum til að afla vinsælda hjá krökkunum og umhverfistrúarsöfnuðunum.
En það er vel hægt að byggja áfram upp arbæran iðnað á Íslandi ef "grænu fjárfestingunum" er hafnað Hvernig á að nýta islenska raforku
Okkar stjórnvöld verða að segja okkur svo skiljist hvað mikið af okkar peningum fer í "grænu" málin, loftslagssvindlið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sjálfstæð þjóð?
9.2.2022 | 14:29
Refsiaðgerðum Íslands gegn Rússlandi "vegna ástandsins í Úkraínu" er stjórnað í Brussel. Nýjasta tilskipanadræsan sem okkar ráðherrar eru látnir gefa út sem íslenska reglugerð, er frá 11. janúar, nr/0066-2022
Þar er meðal annarra "ákvörðun ráðsins" um "þvingunaraðgerðir vegna ólöglegrar innlimunar Kríms og Sevastopol"
Eins og fróðir menn þekkja er þetta stöðluð ESB-lygi. Það var Úkraína sem innlimaði Krím ólöglega og afnam stjórnarskrána 17. mars 1995 og reyndi að ráða forseta Krím, Yuriy Meshkov, af dögum. ESB og NATO komu ekki á refsiaðgerðum þá heldur þögðu. En það var svo eftir að löglega kjörin stjórnvöld Úkraínu neituðu að sækja um aðild að ESB 2013 sem Obamastjórnin og peningaöfl í NATO og ESB fjármögnuðu óeirðaseggi til að kynda elda í Kænugarði og flæma löglega kjörinn forseta frá völdum. Þar með sauð uppúr í Austur-Úkraínu og Rússum kennt um eins og venjulega. Það er "ástandið í Úkraínu", afleiðing afskipta ESB og NATO-landa. Og ESB og NATO létu okkur setja viðskiptabönn á Rússland. "Sjálfstæða" Ísland fórnaði einu besta viðskiptalandinu fyrir lygar frá NATO og ESB. https://www.frjalstland.is/2021/07/02/island-i-erindrekstri-fyrir-esb/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
NATO æsir til stríðs
7.2.2022 | 14:58
Áróðursmenn helstu NATO-landa dreifa nú áróðri um að Rússar ætli að ráðast inn í Úkraínu. NATO neitar að semja við Rússa um að minnka vopnaskak nálægt landamærum Rússlands. Við undirlægjurnar á Norðurlöndum dönsum með.
Þessi áróður er hreinar stríðsæsingar sem eru til þess að leiða athyglina frá miklum vanda sem þessar ríkisstjórnir NATO-þjóða eiga við að stríða. Bandaríkjastjórn gefst upp í Afganistan, ræður ekki við glæpagengin, vergang heimilislausra og síhækkandi orkuverð heimafyrir vegna heimskulegrar barátu gegn eldsneyti. Í Bretlandi segja menn að Boris eigi ekki að drekka bjór grímulaus í garðveislum en óvinsældir ríkisstjórnarinnar stafa af síhækkandi orkuverði vegna grænna stefnumála og meðfylgjandi dýrtíðar ("cost of living crisis").
Hvort NATO tekst að æsa Rússa upp í að taka Úkraínu, sögulega hérað í Rússaveldi, getur verið spurning um heimsstyrjöld eða frið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Rannsóknir bannaðar
4.2.2022 | 15:49
Bábiljur sértrúarsöfnuða eru farnar að stjórna landinu. Ríkisstjórnin ætlar að láta Alþingi banna rannsóknir á olíu- og gassvæðum Íslands.
https://www.frjalstland.is/2022/02/04/rannsoknir-bannadar/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Draumur skriffinnanna
2.2.2022 | 13:43
ESB setur eina álöguna eftir aðra, nú kemur CBAM "-best lýst sem draumi hvers skriffinns í Brussel - Vandinn við ETS, (viðskiptakerfi ESB fyrir "losunarheimildir" koltvísýrings) er að fyrirtæki utan ESB/EES greiða lítið sem ekkert fyrir losun - ætlunin er að láta fyrirtæki utan ESB/EES greiða losunargjöld af þeim afurðum sem fluttar eru til ESB/EES- Ef framleiðslukostnaður hækkar innan ESB/EES skapast hætta á að fyrirtæki flytji starfsemi sína út fyrir ESB/EES-" (Pétur Blöndal, ViðskiptaMbl 2.2.2022)
Íslensk fyrirtæki þurfa að borga vaxandi milljarðaupphæðir í braskkerfi ESB, ETS. Nýja CBAM er viðbót við síbólgnandi fargan frá Brussel: ETS tottar flug og iðjuver, ESR tottar vegna allra hinna, LULUCF tottar bændur. Öll kerfin eru fjárplógsstarfsemi ESB sem hafa ekkert með loftslag að gera.
https://www.frjalstland.is/2019/12/09/island-flaekt-i-loftslagsblekkingar-esb/#more-1698
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hafísinn farinn 2014
29.1.2022 | 15:25
Þessi fleygu orð eru frá þekktasta falsspámanni og Nóbelsverlaunahafa um loftslag, þau féllu á loftslagssirkusnum í Köben 2009. https://www.thetimes.co.uk/article/arctic-summer-ice-may-be-gone-in-five-years-al-gore-warns-tqxrj9chvfn
Loddararnir, loftslagslíkönin og yfirlýsingar ESB og SÞ um hamfarahlýnun stjórna ekki hafísnum. Snjó- og ísmælingar Bandaríkjanna (31.12.2021) sýna að hann hefur ekki verið meiri í nærri 2 áratugi. http://nsidc.org/arcticseaicenews/
Hafísinn lónar nú norðvestan við mynni Ísafjarðardjúps https://www.vedur.is/hafis/tilkynningar
Falsspámenn eru búnir að telja okkur trú um að sé að hlýna svo við erum illa undirbúin hrollinum. Ísfirðingar fá ekki nóg rafmagn, það fer í óþarfa rafbíla og myntgröft. En Ísfirðingar vissu líklega að hverju stefndi. Þeir eru með olíukatlana tilbúna og geta nú haft heitt í húsunum þó landsins forni sé kominn aftur með hroll.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)