Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Niðurdæling dýr mistök
2.11.2024 | 15:38
Forráðamenn Orkuveitunnar okkar halda að þeir geti grætt milljarða á að dæla reyk frá Evrópusambandinu niður í hraunið. Þeir þurfa að vita að niðurdæling/koltvísýringsförgun í jörð hefur verið reynd víða í áratugi en yfirleitt farið í vaskinn.
Nýlegir kollhnísar:
-Petra Nova í Texas átti að vísa veginn en hefur verið lokað
-San Juan í Nýju Mexíkó er á sömu leið
-Orkuráðuneyti Bandaríkjanna eyddi 6,9 milljörðum dala í þróun
-Aðeins 4% áætlaðra verkefna 2014-2026 komust í framkvæmd
-Af 13 stórverkefnum vestra fóru 10 í vaskinn.
https://www.foodandwaterwatch.org/2022/09/27/carbon-capture-failures/
Förgun koltvísýrings í berg er mjög orkufrek og hefur þurft að reisa ný orkuver til þess að knýja niðurdælinguna. Vestra hefur það valdið meiri koltísýringslosun en bindingu þar eð mörg orkuveranna eru brennslisknúin!
Leka- og mengunarhætturnar eru margar en árangurinn er hverfandi enda Jörðin sjálf að losa (og binda) heilt teratonn á ári. "Carbon capture"-gæluverkefni OR yrði dýr kollhnís á kostnað okkar eigenda almannafyrirtækisins OR. Ef þeir ætla að treysta á "losunarkvótakerfi" ESB til að borga eru þeir á hálum ís, ETS-kerfið er ósjálfbært, byggt á blekkingum og hrjáð af svindli og á leið að flosna upp enda mikið af fyrirtækjum ESB að nálgast "grænt" og kolefnislaust gjaldþrot. https://thebulletin.org/2022/09/plagued-by-failures-carbon-capture-is-no-climate-solution/
Orkuveitan hefur lengi dælt niður jarðvarmagasi til þess að losna við hverafýluna , brennisteinsvetnið, það er vitleg aðgerð sem hefur gengið vel enda brennisteinsvetnið hvarfgjarnt og binst vel við hraunlögin.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Brjóstvörn
30.10.2024 | 18:20
Útrunni fv. forseti Úkraínu segist vera "brjóstvörn vestrænna "gilda" (mbl.30.10.2024) og Vesturlanda sjálfra gegn landvinningastefnu. Rússa! Han snýr þessu auðvitað á haus eins og honum hefur verið kennt enda leppur mestu lygasmiðja heims í Washington og London.
Lögleg stjórn Úkraínu hafnaði aðild að NATO 3.6.2010 og að ESB 21.11.2013 en þá settu "friðarbandalögin" (NATO og ESB) af stað árás á stjórnvöld landsins til að koma þeim frá.
Það var Obama/Biden-stjórn Bandaríkjanna sem framdi vopnaða valdaránið í Úkraínu, byssumenn þjálfaðir af CIA í Póllandi drápu mikinn fjölda stjórnarstarfsmanna auk venjulegra borgara. Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna kom til valda leppstjórn með aðstoð úkraínskra nýnasista sem hóf strax í febrúar 2014 borgarastyrjöld með hernaði gegn rússneskum svæðum Donbas. Þegar NATO og ESB höfðu svikið alla samninga við Rússland og fyllt Úkraínu af vopnum skarst rússneski herinn í leikinn 2022 og er nú smám saman að frelsa svæðin sem leppstjórnin hefur undirokað með landvinningahernaði NATO og ESB en þau lýstu yfir sjálfstjórn þegar séð var fram á að leppar NATO og ESB mundu taka völdin.
Fjárfestar og hrægammar Ameríku (s.s. Black Rock) hafa þegar náð undir sig miklu af auð Úkraínu, meir en þriðjungi landbúnaðarlands, þess besta í Evrópu. Rotchildbankinn er farinn að fjármagna hernað leppstjórnarinnar að hluta enda alvanur að fjármagna stríð. Bidenfeðgar bröskuðu líka í skjóli spillingar valdsins. Þegar endurreisn Úkraínu hefst verður erfiðast að losna við ruplarana frá Vesturlöndum. Þeir einu sem kunna það eru Rússar enda hundeltir af þjófum Vesturlanda í mannsaldra.
En Zelenski væri góður sem brjóstvörn Úkraínumanna gegn vestrænum svikurum og ræningajalöndum sem hafa þegar stolið 600 milljörðum dala frá Rússum og láta nú leppstjórnina í Úkraínu fórna blómanum úr úkraínsku þjóðinni við að berjast fyrir "vestrænum gildum"!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ómarktækur EES-samningur
26.10.2024 | 21:50
Guðmundur Alfreðsson, lögfræðingur í þjóðarétti hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði þegar EES-samningurin komst á dagskrá að hann samrýmdist ekki stjórnarskránni. Um bókun 35 sagði hann að samningsloforð um forgang EES-reglna væri ekki marktækt https://www.frjalstland.is/2024/10/26/ees-samningurinn-er-ekki-marktaekur/
Þetta var þaggað niður af þeim sem vildu koma Íslandi undir erlent vald og álit 4-manna nefndar þáverandi utanríkisráðherra tekið fram yfir. Það álit reyndist rangt.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.10.2024 kl. 13:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Órar OR
24.10.2024 | 15:44
Nú ætlar Orkuveitan að fara að græða almennilega, 350 milljarða, á loftslagssvindlinu og ekki seinna vænna meðan margir trúa ennþá lygunum um skaðsemi koltvísýrings og fjárplógskerfi ESB um losun koltvísýrings (ETS) er enn ekki dautt. Leikfélagar OR ætla að dæla reyk frá Evrópusambandinu niður í karsprungið Reykjaneshraunið og vonast til að hann komi ekki upp aftur þegar hann hefur eyðilagt ferskvatnið í Reykjanesinu.
Það er borin von, sá hluti reyksins sem binst myndar s.k karbónöt en það eru einmitt þau sem valda gríðarlegri losun koltvísýrings úr hrauninu í kvikuumbrotum á Reykjanesi. Og koltvísýringsgasið seitlar upp úr sprungum ásamt með menguninni sem fylgir því frá ESB.
Aðferð Carbfix við að binda koltvisýring er óreynd og mjög takmörkuð og skiptir engu máli um loftslagið. Jörðin sjálf gleypir um 1000.000.000.000 tonn (þúsund gígatonn) af koltvísýring árlega en CarbfixOR ætla að byrja með um milljón tonn sem mótsvarar einum milljónasta hluta af því sem jörðin bindur án þatttöku OR eða ESB. Aðrar aðferðir eru betri, þekktari og öruggari, þar á meðal ræktun, s.s. skógrækt.
Verkefni stjórnenda OR er að einbeita sér að því að útvega okkur orku og koma í veg fyrir heitavatns- og rafmagnsskort í staðinn fyrir að leika sér við loftslagsloddara sem véla sveitamenn í glæfraverkefni (Mbl. 23.10.2024)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hættuleg ríkisstjórn
16.10.2024 | 14:18
Ein hættulegasta ríkisstjórn sem komist hefur til valda í landinu er nú loksins að fara frá. Hún hefur komið landinu í stríð við vina-og viðskiptþjóð af uppspunnu tilefni sríðsæsingamanna NATO og Evrópu-sambandsins/EES. Hinn heimatilbúni óvinur er enginn annar en eitt helsta kjarnorkuveldi heims!
https://www.frjalstland.is/2022/08/19/island-tekid-i-strid/
Hún eyðir skattfé landsmanna í vopn og stríðsaðföng.
Hún stundar refsingar gegn vinveittum þjóðum og veldur hruni útflutningstekna og gjaldþroti fyrirtækja.
Hún hefur komið yfir landið vaxandi fjölda af lögum og reglum Evrópusambandsins/EES um orkumál og umhverfismál sem stöðva uppbyggingu hérlendis.
Hún hefur sökkt landinu dýpra í okurdýrar en óþarfar, gagnslausar og barnslegar "loftslagsskuldbindingar" sem Evrópusambandið stjórnar og hirðir fé af.
Hún hyggst láta Alþingi samþykkja að lög Evrópusambandsins, sem er nú að breytast í hernaðarsamband, sem berast með EES-tilskipunum, séu æðri landslögum. Og brjóta þannig stjórnarskrána einn ganginn enn.
Hún og núverandi Alþingisheimur þurfa að koma sér burt áður en meiri skaði skeður. Við skulum vona að landsmenn beri gæfu til þess að kjósa sér betri fulltrúa til Alþingis í komandi kosningum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.10.2024 kl. 01:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Danskur vindur
13.10.2024 | 15:21
Nú stendur til að auka "samvinnu" Dana og Íslendinga í "grænum verkefnum" og orkuöflun. Hvergi í heimi er orka dýrari og óhagkvæmari en í Danmörku enda Danir lengi virkir þátttakendur í "loftslagsmálum"!
Danska ríkið á meirihluta í stærsta sjóvindmyllufyrirtæki heims, Örsted, stærsti vindmylluframleiðandinn er líka Danskur, Vestas. Risaverkefni Örsted hafa verið að stöðvast eitt af öðru þegar menn hafa áttað sig á hvert stefndi (vindmyllur ganga ekki fyrir vindi heldur ríkisstyrkjum!) https://www.theguardian.com/environment/2023/nov/01/rsted-cancels-two-us-offshore-windfarm-projects-at-33bn-cost
Í Svíþjóð keyrði stórt "rafeldsneytisverkefni" Örsted í strand í sumar. Þar átti að framleiða "rafeldsneyti", tréspíra úr rafgreiningarvetni og koltvísýring eins og í Carbon Recycling í Svartsengi. https://www.frjalstland.is/2022/02/11/orkuskiptin-eru-draumorar/ Það var auðvitað allt byggt á óskhyggju, það þarf tvöfalt meiri orku til að framleiða bara vetnið en sem fæst svo úr spíranum. Og ekki bætir úr skák að vindmyllurafmagnið í vetnisframleiðsluna er of dýrt og stopult. https://www.spglobal.com/commodityinsights/en/market-insights/latest-news/energy-transition/081524-orsted-scraps-swedish-flagshipone-e-methanol-project-under-development
Það er ekkert vitlaust að vinna með Dönum, bara ekki í orkumálum eða "grænum verkefnum"! https://www.frjalstland.is/2024/10/13/danskur-vindur/
Friðrik Daníelsson, efnaverkfræðingur
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Meiri hamfarahlýnun!
11.10.2024 | 15:15
Síðasta sumar var það kaldasta síðan 1992 í Reykjavík. (Mbl 10.10.2024). Loftslagslygasmiðjurnar (SÞ-UNEP, -IPCC, -WMO, NOAA, NASA-Giss, EU-Copernicus, CRU ofl.) halda sleitulaust áfram að gefa út falskar fullyrðingar um loftslag "-síðasta ár var það hlýjasta frá upphafi mælinga-"! hefur verið endurtekið í aldarþriðjung.
Kuldaskeiðið 1965-1995 var tími áfalla, fiskileysis, auðlindaafsals, kalinna túna, svartsýni og framtaksleysis, stjórnunarmistaka og loks sjálfstæðismissis 1993. Þegar svo fór að hlýna undir aldarlokin tók velsældin kipp upp á við. En loftslagskólnunin kemur alltaf aftur (eins og 1150 og 1965) og er orðin greinileg síðasta áratuginn með minni fiskafla og uppskerubresti þó vöxtur koltvísýringsins í loftinu gefi betri uppskeru sumstaðar ennþá. Útbreiðsla hausthafíssins komst ekki niðurfyrir 4 milljónir ferkílómetra í ár eins og árið 2012. https://www.frjalstland.is/wp-content/uploads/2021/03/Loftslag-%C3%A1-%C3%8Dslandi.pdf
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Slök leskunnátta
9.10.2024 | 13:13
Frú ráðherra Þórdís telur að alþingismenn kunni ekki að lesa en Evrópusambandið sendi enn einn bleðilinn um að leskunnáttu væri hér ábótavant (Písa) en það átti reyndar bara við um unglingana okkar! Þórdís ætlar að láta alþingismen afsala löggjafarvaldi Alþingis endanlega þó standi að lesa í starfslýsingu þeirra: "Alþingi og forseti fara saman með löggjafarvaldið" sem þýðir að ef Alþingi reynir að gera löggjafarvald Evrópusambandsins æðra sínu eigin yrði það marklaus gerningur nema stjórnarskránni https://www.althingi.is/lagas/nuna/1944033.html yrði breytt en það tekur ár og dag og þá gæti verið búið að leggja Evrópusambandið niður.
Reyndar hefur Alþingi hingað til samþykkt möglunarlaust allt tilskipanafarganið frá Evrópusambandinu vegna EES þó einhverjar túlkanir hafi ekki verið í anda Brussel og einstöku glórulaus mál látin hanga á horriminni enda íslenska stjórnkerfið of lítið til að kyngja öllu EES-svamlinu. Það gerir því ekki mikið til þó alþingismenn kunni ekki að lesa, Evrópusambandið stjórnar áfram meðan landsmenn kjósa sér máttlaust Alþingi og ráðherrar eins og Þórdís fara með stjórnvald hér. Nú standa aðeins eftir 20% kjósenda sem styðja núverandi ríkisstjórn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýr Göbbels?
3.10.2024 | 17:20
Hernaðarklúbburinn NATO hefur nú fengið nýjan framkvæmdastjóra í staðinn fyrir Stoltenberg sem minnti mikið á Göbbels í sínum stríðsæsingaræðum. Mark Rutte er ekki mikið líkur Göbbels nema kannske í sinni. https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/10/01/rutte_hefur_engar_ahyggjur_af_trump/
Rutte og hans meðreiðarsveinar töpuðu síðustu kosningum í Hollandi sem gerði lítið til, úreltu flokkarnir í Evrópusambandslöndum hafa getað haldið svo kölluðum "hægri öfgaflokkum" og "populistum" (það eru flokkarnir sem kjósendur vilja frekar en þá úreltu) frá völdum með ólýðræðislegum aðferðum (Frakkland, Þýskaland, Austurríki, Svíþjóð ofl.)
Ástæða þess að Rutte er gerður að NATO-framkvæmdastjóra er að hann er haldinn ólæknandi Rússahræðslu enda frá Hollandi, næsta nágrenni Bretlands þar sem Churchill hóf Kalda Stríðið gegn Rússum strax eftir að Rússar höfðu ráðið niðurlögum Nasistanna í Berlín vorið 1945. https://www.frjalstland.is/2024/03/30/ovinur-buinn-til/
https://www.frjalstland.is/2024/07/19/ognin-vid-heimsfridinn/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Erum við heimsk þjóð?
28.9.2024 | 14:18
Eða eru það kannske bara okkar forustumenn sem eru heimskir og fákunnugir um söguna? Af hverju tekst okkur ekki að koma þeim frá? Þeir ætla að henda skattfé okkar fimmta árið í röð í hernað stríðsþjóðanna og nú á að dobla það! Hildur Þórðardóttir gerir grein fyrir þáttöku Íslands í henaði NATO/ESB gegn Rússlandi í Morgunblaðinu í dag, 28.9.2024.
Litla friðsama Ísland sturtar milljörðum í stríð sem Bandaríkin og ESB-lönd hófu (2014) og reka nú áfram af vaxandi stríðsæsingi, með vopnum, miðunartækjum í NATO, hermönnum, sérfræðingum, peningum og lygum. Árásirnar á rússneskan almenning verða sífellt hryðjuverkakenndari.
Tilgangur stríðsins kemur Íslandi ekki við og Úkraínu ekki heldur. Það er græðgi NATO- og ESB-manna sem er á bak við stríðsreksturinn sem saklausir (eða heimskir?) skattgreiðendur NATO/ESB borga. Það á að opna Úkraínu og Rússland fyrir rupli fyrirtækja í NATO/ESB.
https://www.frjalstland.is/2024/02/29/ukraina-logd-i-rust/
https://www.frjalstland.is/2024/08/15/nidurrif-russlands/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)