Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Stríðsríkisstjórn

peace-dove-2667123_960_720Nýja ríkisstjórnin hefur haft tvo mánuði til að sanna sig en hefur nú sýnt að hún er ekki ábyrgðinni vaxin. Frú forsætisráherra hennar fór til hins stríðandi lands, Úkraínu, og lofaði áframhaldandi stuðningi. (Mbl 24.2.2025) Það þýðir á mannamáli beina aðild að stríðsrekstri Kænugarðsstjórnarinnar en bandarískir embættismenn hafa nú viðurkennt að Rússland hafi ekki verið upphafsaðili stríðsins."Rússar voru egndir í stríð" segir Steve Witkoff.

Meðan okkar stríðsríkisstjórn álpast til að blanda íslensku þjóðinni í stríð í fjarlægum löndum eru okkar mikilvægustu bandamenn, Bandaríkjamenn, að reyna að stöðva vopnasendingarnar til striðsins og koma á friði. Líklega hefur þessi framgangsmáti ábyrgðarlausu stríðsríkisstjórnar Íslands ekki verið ræddur við Bandaríkin.

Landsmenn spyrja sig nú, hvernig hefur ríkisstjórn Íslands fengið umboð til þess að blanda íslenskri þjóð í stríð? Sem vinnur gegn okkar mikilvægustu bandamönnum?


Kristrún ruglar

sniper-1009657_960_720"Það fer ekki á milli mála hver árásaraðilinn sé í innrásarstríði Rússlands í Úkraínu-" segir frú forsætisráherra sem ætlar til Úrkaínu til að sýna landinu stuðning. https://www.mbl.is/frettir/erlent/2025/02/21/kristrun_fer_ekki_a_milli_mala_hver_redst_a_hvern/

Þetta er sami uppspuninn og lygasmiðjur NATO- og ESB-landa hafa haldið að okkur á annan áratug.

Það sem Kristrún þyrfti að vita er að þennan dag, 22. febrúar árið 2014 var löglega kjörinn forseti Úkraínu flæmdur úr embætti af vopnuðum sveitum ríkisstjórnar Obama. Aðstoðarutanríkisráherra hans, Victoria Nuland, sá um framkvæmdina sem hafði verið lengi í undirbúningi og kostað 5 milljarða dollara. Þátt tóku nýnasistar Úkraínu en nasistinn Stefan Bandera er þjóðhetja landsins. Ýmsir aðilar í ESB og NATO voru líka þátttakendur. https://www.frjalstland.is/2022/05/05/bloduga-valdaranid-i-ukrainu/

Leppstjórnin sem var komið að völdum eftir valdaránið hóf innrásarstríð gegn Donbasshéruðunum sem höfðu lýst yfir sjálfstæði enda útlit fyrir að nýnasistar og erindrekar USAID og CIA tækju völdin. Kænugarðsstjórnin setti af stað kúgunaraðgerðir gegn Rússum Úkraínu sem varð til þess að gerðir voru samningar, Minsk I og II,  um réttindi þeirra 2014 og 15. Þeir samningar voru þverbrotnir án tafar eins og loforð NATO um að þenja hernaðarbandalagið ekki til Austur-Evrópu.

Árið 2021 fengu rússnesk yfirvöld njósnir af áætlunum Bandaríkjanna um að setja upp herstöðvar í Austur-Úkraínu. Í febrúar 2022 var Rússneski herinn sendur inn í Úkraínu, aðallega til hjálpar Donbassbúum en einnig til að reyna að afvopna Kænugarðsstjórnina. Hún hafnaði fyrirliggjandi friðarsamningum vorið 2022 að fyrirmælum bresks fulltrúa frá NATO.

Í janúar sl. urðu þau straumhvörf í Bandaríkjunum að til valda kemur forseti sem tekur til við að vinda ofan af Rússahatrinu sem hefur stjórnað utanríkismálum Vesturlanda síðan á dögum Trumanns og Churchill. Hann hefur nú ákveðið að stöðva Úkraínustríðið sem hefur verið stríð Bandaríkjanna frá upphafi. Það er auðvitað mistök hjá okkar ráðherra að fara til Úkraínu til þess að styðja stríð sem er ekki þeirra stríð og Bandaríkin eru að stöðva.


Yfirvofandi hætta

EUflag-3370970_960_720Hætta á að nýju ríkisstjórninni takist að láta Alþingi afsala sínu löggjafarvaldi endanlega til Evrópusambandsins er nú yfirvofandi.

Ábyrgir Íslendingar spyrja sig hvernig það gat skeð að svona óábyrgt og kjarklaust fólk komst á valdastóla Íslenska lýðveldisins.

Augljóst svar er að 39% landsmanna (sem kusu stjórnarflokkana) hafa ekki vit á hagsmunamálum Íslands.

Þingmálaskrá stjórnarinnar sýnir að hún mun ekki gera neitt sem til frambúðar horfir en gutla með skítareddingar í í EES-tilskipanakraðakinu sem sett hefur verið í lög og reglur Íslands. https://www.frjalstland.is/2025/02/11/thingmalaskra-156-logjafarthings-2025-ees-mal/


Lygaframleiðsla

pinocchio-2917652_960_720Hin alræmda bandaríska "alþjóða-þróunarstofnun", USAID, er nú í afhjúpun hjá Trump. USAID fjármagnar m.a. lygar fjölmiðla. The New York Times fékk t.d. milljónir dollara fyrir að gefa út lygasögu um "illvirki Rússa" í Bucha þar sem Úkraínumenn settu á svið ummerki um fjöldamorð á götum bæjarins. BBC kom líka og útvarpaði sömu skáldsögu https://www.bbc.com/news/world-europe-60967463 Þarmeð var hægt að afsaka meiri vopnasendingar frá NATO/ESB. BBC er einn helsti móttakandi lygapeninga frá USAID.

Mikið flóð er af lygum um Rússa en illvirkjum Úkraínumanna er leynt, nú síðast morðum í Rússlandi og fjöldadrápum í Kurskhéraði landsins.

Frægar eru lygarnar um afskipti Rússa af forsetakosningunum 2016 þar sem Politico og fleiri fjölmiðlar gengu í samsæri með USAID um lygadreifinguna og yfirhylminguna um Hunter Biden.

Fjölmiðlar Úkraínu eru reknir að mestu leyti með fé frá USAID og mynda víðfeðmt lyganet sem heldur Úkraínsku þjóðinni í blekkingum vestræns gerviheims og stríðsæsinga.

USAID hefur fjármagnað valdarán, mútur, kúgun og manndráp og unnið með annari álíka kræsilegri stofnun, CIA. Frægir niðurrifsmenn, m.a. Georg Soros, vinna með USAID að lygadreifingu, óeirða- og manndrápaaðgerðum  í ýmsum löndum. Frægt er blóðuga valdaránið í Úkraínu fyrir 11 árum sem markaði upphafið að stríði sem varir enn. https://www.frjalstland.is/2022/05/05/bloduga-valdaranid-i-ukrainu/

Falsréttamiðlar NATO- og ESB-landa hafa nú risið upp á afturlappirnar og ráðast með urri og gelti á Trump og Musk fyrir að dirfast að afhjúpa þá.

Því miður er ekki líklegt að Trump nái að afhjúpa kraðakið af breskum lygamiðlum (og um leið ESB- og Norðurlandafalsarana) en þeir eru jafnvel enn lygnari og verr haldnir af ofsóknaræði en þeir amerísku.

 


Borgarstjóri með vit

Einar Þorsteinsson gerði Reykvíkinga svo hissa að margir eru ekki enn búnir að ná sér. Hann vill hafa Reykjavíkurflugvöll á sínum stað. Og auk þess telur hann að of hart sé sótt að fjölskyldubílnum!

Að heyra borgarstjóra Reykjavíkur tala af viti um stærstu mál Reykvíkinga er alveg nýtt, slíkt hefur ekki heyrst í áratugi. Reykvíkingar sjá nú fram á betri tíð á nothæfu gatnakerfi og minni tímaeyðslu og orkusóun í umferðateppur. Íbúar höfuðborgarsvæðisins geta nú líka farið að vona að þeir þurfi ekki að eyða sínum frítíma í að labba út í boragarlínuskýli, detta í hálkunni og fá kvef meðan þeir eyða tímanum í að bíða eftir borgarlínuvagninum.

catchcoldpexels-photo-10560904

 


Trump byrjar að afhjúpa

tank-5125073_960_720Trump er ekkert að leyna tilganginum með stríðsrekstri Bandaríkjanna, né heldur aðferðunum.

-Palestína: Bandaríkin eiga að hirða Gasa og byggja fyrirmyndar "Rivieru Miðausturlanda" á rústunum og flytja Palestínuþjóðina burt https://apnews.com/article/trump-netanyahu-washington-ceasefire-1c8deec4dd46177e08e07d669d595ed3

Gaslindir Gasa verða Bandarísk/Ísraelsk eign. https://daysofpalestine.ps/stolen-treasure-all-eyes-on-gazas-gas-fields/

-Úkraína fær árfamhaldandi "stuðning" við að reka hernað gegn Rússum ef Úkraína afhendir Bandaríkjunum verðmæt jarðefni. https://www.theguardian.com/world/2025/feb/04/ukraine-war-briefing-trump-demands-rare-earths-from-kyiv-in-exchange-for-aid Vopnasendingarnar stöðvuðust snöggvast þegar Trump tók við embætti en hafa nú komist í fyrra horf, hernaðarbákn Bandaríkjanna græðir nú á tá og fingri og ætlar að koma af stað stórstyrjöld með aðstoð ESB og NATO hvað sem Trump segir!

-USAID: Eitt afkastamesta gjöreyðingarvopn Bandaríkjanna, glæpsamleg stofnun sem splundrar og hleypir upp samfélögum, fjármagnar valdarán og stríð https://abcnews.go.com/Politics/turmoil-inside-usaid-doge-reps-offices-senior-officials/story?id=118368900


Dósasöfnun DúnuToggu

hydrogen-bomb-63146_960_720Rússarnir eru að koma eins og okkar "varnarsérfræðingar" hafa japlað á í 80 ár. Þeir og ráðherrarnir/frýrnar sem fara með varnarmál segja okkur nú að búa okkur undir stríð. Þ.e. safna niðursuðudósum. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/02/01/aukin_ahersla_a_samtal_um_varnarmal/?origin=helstu

Best væri að grafa jarðhús sem hægt er að skríða ofaní áður en kjanorkusprengjurnar lenda á Kanahreiðrinu í Keflavík.

Áróður varnarsérfræðinganna er að sjálfsögðu tilefnislausar stríðsæsingar ættaðar frá NATO-bullum, og fjármagnaðar af heriðnaðarsamstæðum Bandaríkjanna, Bretlands og Frakklands. Og í seinni tíð hvattar áfram af skrækjum frá Eystraseltingum (bæði Tataralýðveldunum og Norðurlöndunum) þar sem geðheilsunni hefur hrakað mjög.

Upphlaupin og ásakanirnar  út af skemmdarverkum Rússa eru eins og venjulega byggð á lygum, áróðri og ágiskunum:

-Skip með rússneskri áhöfn sem Eystraseltingar sögðu að skemmdi kapla var fært til hafnar í Noregi en sleppt aftur þar eð engar vísbendingar um skemmdarstarfsemi fundust. https://maritime-executive.com/article/norway-detains-reefer-cargo-ship-for-investigation-into-cable-damage

-Njósnarbúnaður við Skotland, sem Bretar sögðu að væri Pútíns, var hvalur að leysa vind. https://www.thesun.co.uk/news/32995393/navy-fears-russian-drones-farting-whale/

-Kjarnorkukafbátar NATO að verja okkur koma svo nálægt strönd að strákar að veiða festa veiðarfærin í þeim. https://www.thebarentsobserver.com/security/norwegian-fishermen-snagged-us-nuclearpowered-submarine/420357

-Bandaríkin og Noregur sprengdu gasleiðslu Rússa í Eystrasaltinu https://www.youtube.com/watch?v=rPvfqm_XmaQ

 


Loftslagsmartöð Noregs

stortingsbygningen_sommer_840x450_foto_stortinget.jpgNorska ríkisstjórnin er í fallhættu, kratarnir vilja lögleiða 4. orkupakka ESB/EES sem er ótrúlegt samsafn af draumórum sem geta aldrei ræst en mundu stefna Noregi og ESB í enn meiri orkuskort og fátækt. Miðflokkurinn, hinn stjórnarflokkurinn, vill ekki sjá 4. orkupakkann.

https://www.consilium.europa.eu/en/policies/green-deal/

https://wayback.archive-it.org/12090/20241209144917/https://energy.ec.europa.eu/topics/energy-strategy/clean-energy-all-europeans-package_en

(tilskipanapakkarnir frá Evrópusambandinu eru oft langir með mörgum valdboðum og óþörfu skriffinnasvamli og erfitt að átta sig á hvað þeir raunverulega segja, ákvarðanir ESB í "loftslagsmálum" eru orðnar margar)

Nú hafa þau vatnaskil orðið að helsta iðnaðarland heims hefur stöðvað loftslagssvindlið þarlendis sem verður þess valdandi að feigðarflan ESB í "loftslagsmálum" mun fjara út. Hvort Norðmenn komast fram með að hafna 4. orkupakka EES á eftir að koma í ljós en ljóst virðist að Noregur er á leið að losa sig undan áþján Evrópusambandsins og segja EES-samningnum upp, fyrr eða síðar.

Ísland ætti að taka frumkvæðið og vera á undan, brýn nauðsyn er orðin fyrir Ísland að aflétta EES-samningnum, hér þarf að fara að virkja en til þess þarf að afnema lög úr EES-tilskipunum sem hafa gert íslenskt lagasafn martröð líkast.


Loftslagssvindlið strand

eiffelpexels-photo-11299696Bandaríkin segja nú upp aðildinni að Parísarsakomulaginu. Tíu ár eru liðin frá því boðað var til múgsefjunarsamkundu í París yfir glösum af frönsku víni þar sem ríki heims "skuldbundu" sig til að draga úr nýtingu jarðefnaeldsneytis.

Skemmst er frá að segja að engin ríki, nema þau sem eru í hraðri hrörnun eins og ríki Evrópusambandsins, hafa getað staðið við "skuldbindingarnar" sem voru í raun bara óskhyggja. Notkun mannkyns á jarðefnaeldsneyti hefur aldrei verið meiri en nú! Samt er loftslagið ekkert að hlýna. Það er að kólna! Parísarsamkomulagið var byggt á fölskum forsendum.

Það var alltaf ljóst að þyrfti öfluga leiðtoga eins og Trump til þess að stöðva loftslagssvindlið. Það verður spenandi að sjá hvaða leiðtogi verður næstur (nú eru 4 ríki utan samkomulagsins).


Bábiljustjórnmál

telephone-3-1546866Við höfum greinilega fengið enn einn bábiljuráðherrann/frúna í utanríkismálin. Ferilinn byrjaði hún með að hringja í útrunna stjórn Úkraínu til þess að lofa stuðningi við árásarstríð NATO og ESB gegn Rússum sem Úkraínustjórn hefur látið sína hermenn heyja í ellefu ár. Hún sagði Rússa stærstu ógnina við Evrópu https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2024/12/31/Thorgerdur-Katrin-raeddi-vid-utanrikisradherra-Ukrainu/

(Eins og kunnugir vita eru Rússar langstærsta þjóð Evrópu og meir en 40% af Evrópu er Rússland. Rússar hafa aldrei ógnað Vestur-Evrópu en þurft að stugga burt manndrápaskríl þaðan, Kalla 12, Napoleon og Hitler til baka heim til sín. Stærsta ógnin við Evrópu eru spilltir og fákunnugir forustumenn Evrópusambandsins og NATO)

Svo hringdi hún í utanríkisráðhera Noregs og lofaði samvinnu um EES, fullveldisafsalssamninginn sem er að gera Ísland að fátækralandi eins og Evrópusambandið. Hún lýsti sinni þrá eftir Evrópusambandsaðild sem Norðmenn hafa hafnað rækilega í tvígang https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/01/06/thorgerdur_greindi_eide_fra_aaetlunum_rikisstjornar/

Það þarf greinilega að veita utanríkisráherrrum/frúm lágmarks skólun í utanríkismálum.

https://www.frjalstland.is/2024/01/27/vaxandi-hernadur-gegn-russlandi/

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband