Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Nýtt stríðsbandalag

macrongsm161dmq.jpgStríðsveldi Vestur-Evrópu (Þjóðverjar, Bretar, Frakkar) hittust í lestinni til Kænugarðs, núverandi fulltrúar þeirra hafa nú myndað nýtt stríðsbandalag til þes að ráðast á Rússland. https://www.youtube.com/watch?v=-Sz6cIACfB0.

Bandaríkin hafa fyrirskipað Evrópulöndum að auka útgjöld til hermála mikið. Það er til þess að þau geti tekið við stríðsrekstrinum gegn Rússlandi. Bandaríkin hafa önnur mikilvæg verkefni sem þarf að sinna samkvæmt utanríkisráðherranum og eru hvort sem er búin að tapa Úkraínustríðinu eftir ellefu ára hernað og stjarnfræðileg útgjöld.

Ef við Íslendingar fáum ekki vitiborna fulltrúa verður Ísland fljótlega tekið í stríð austur í álfu, ekki bara með því að ausa tugum milljarða í nýnasistaklíkuna í Kænugarði eins og núverandi íslenskir ráðamenn gera, heldur með þáttöku íslenskra "hermanna" á vígvellinum.


Bandaríkin um öryggi Evrópu

Hvítahúsiðpexels-photo-129112"Stærsta ógnin sem Evrópa stendur frammi fyrir er ekki Rússland eða Kína heldur hætta innanfrá" https://www.frjalstland.is/2025/05/18/bandarikin-og-oryggi-eropu/


Falsfréttamennska

RÚVimagesRÚV getur ekki hætt að útvarpa falsfréttum og óhróðri um Rússland. Í mörg ár var Donald Trump helsti skotspónninn en þá voru Rússar líka sakaðir um að reyna að koma honm í forsetastólinn. Það hefur nú sannast að var lygaherferð. Engar sannanir, aðeins viðtöl við einhverja áróðursbelgi. Og nú segir Fals-RÚV að meira að segja Trump trúi lygum Rússa (það er lygi sem er komin beint úr lygamúlum útrunnu Selenskistjórnarinnar)

Þegar Trump afhjúpaði USAID varð uppvíst að stofnunin hafði fjármagnað lygaherferðir gen Rússlandi. Fals-RÚV lepur upp óstaðfestan óhróður frá Úkraínustjórn, Utanríkisráðuneytum Bretlands og Bandaríkjanna, Mi5, CIA, féttastofum AP, AFP, Reuters, Bloomberg eða frá CNN, NYT og BBC sem líklega á heimsmetið í lygaútvarpi. https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/frettir/30762/b0j8im

Stórir, þekktir og vinsælir rússneskir fjölmiðlar eiga mjög stóran áhorfendahóp um heim allan þar sem herstjórn NATO-ESB hefur ekki tekist að loka þá úti. Fréttir RT, Tass, Sputnik eru virtar og oftast áreiðanlegri en fréttir vestrænna fjölmiðla þó einhverjir sakleysingjar lendi í gerfigreindaráróðri.

Útvarpsráð RÚV þarf að sjá til þess að RÚV sé miðill landsmanna en ekki áróðursútvarp ESB/NATO og þeirra erindreka hér.


Að endurtaka mistök

skjaldarmerkiBankar þjóðarinnar voru afhentir bröskurum, einkavæddir á lygamáli, sá fyrsti, Útvegsbankinn (eldgamli Íslandsbanki), fyrir 35 árum, Landsbankinn og Búnaðarbankinn fyrir 25 árum. Góðir fjárfestingasjóðir lentu líka hjá bröskurum, s.s. Fiskveiðasjóður og aðrir lánasjóðir atvinnuveganna. Þeir höfðu fjármagnað uppbyggingu Íslands úr örbirgð í velsæld eins og í lygasögu.

Afsökun þáverandi stjórnvalda landsins var að "ríkið ætti ekki að vasast í rekstri", frægt heimskuraus nýfrjálshyggjupostula (sumir bestu bankar heims eru í ríkiseigu). Og endirinn á einkavæðingunni varð eins og vænta mátti að íslenska ríkið fékk bankana í fangið haustið 2008 þegar þeir höfðu spilað rassinn úr buxunum og verið settir á hausinn.

Bankar eru löggild gróðafyrirtæki, skylt að ávaxta pund innistæðueigenda. En í framkvæmd, eins og reynslan 2008 sýndi, eru einkabankarnir á ábyrgð ríkisins sem fær hræin í fangið þegar hluthafarnir og vildarvinirnir eru búnir að naga allt innan úr þeim.

Íslenskir ráðamenn hafa ekki enn þroskast upp úr bábiljum nýfrjálshyggjunnar, þeir ætla nú að "selja" Íslandsbanka. https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2025/05/08/timasetning_solunnar_fin/ Hann á verða hreinn hlutafélagabanki sem er þó orðið nóg af í landinu nú þegar.

Þetta eru endurtekin aldafjórðungsgömul mistök.

Ríkið á auðvitað að leggja Íslandsbankahlutinn inn í Landsbankann sem á að vera 100% þjóðarbanki og stór til þess að keppa við vaxandi kraðak af einkabönkum og fjármálfyrirtækjum og geta skilað ríkissjóði alvöru arði.


Straumlaust

windmill-4550711_640Heppni að sólin skein glatt á Spáni, rafmagnið fór af og slokknaði á öllum græjunum. En Spánarsólin náði ekki að kynda sólorkuverin og gefa nóg rafmagn! Og vindmyllurnar voru litlu betri.

Og vararafstöðvarnar ekki tilbúnar svo rafmagnið fór af Spáni. Grænorkuverin eru þannig að það þarf jafn stór alvöru orkuver (olíu-, gas-, kola-, kjarnorku- eða vatnsorkuver) við hliðina til að taka upp sólar- og vindleysið þegar slokknar á grænorkuverunum.

Vind-og sólorkuver eru dýr í rekstri, stopul, bilgjörn og þola illa truflanir en koma oft af stað truflunum í rafkerfinu. Flókin stýritæki ruglast, flutningskerfið hættir að virka.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/04/29/hefdbundnu_virkjanirnar_redu_ekki_vid_verkefnid/

https://www.frjalstland.is/2024/04/16/vaxandi-andstada-gegn-vindmyllum-og-solorkuverum/

https://www.frjalstland.is/2024/10/13/danskur-vindur/


Endalok leppanna í Úkraínu

BRflag-1177326_960_720Endalok leppstjórnar NATO/ESB í Kænugarði eru nú óumflýjanleg. Trump hefur lagt fram friðartillögur sem leppstjórnin hafnar.  Evrópusambandsbullurnar ætluðu að láta Bandaríkin samþykkja glórulausa "friðarsamninga" og "friðargæslusveitir NATO" á fundi í London í dag. En hvorki utanríkisráðherra Bandaríkjanna né samningamaður Trump mættu.

En varaforseti Trump sagði: "Annaðhvort samþykkið þið þessar friðartillögur eða Bandaríkin hætta að reyna að miðla!" https://www.foxnews.com/video/6371825132112

Meira að segja alræmdustu falsfréttamiðlarnir (s.s. BBC) eru farnir að átta sig á hægt og hægt hvað er að gerast í þessu 11 ára gamla stríði NATO-ESB gegn Rússlandi sem þeir hafa stöðugt útvarpað rangfærslum um https://www.bbc.com/news/articles/c78jx68d922o

Krímverjar hafa reynt að losa sig frá Kænugarðsstjórninni alveg síðan Ráðstjórnarríkin leystust upp en sætt ofbeldi og morðtilraunum á sínum forustumönnum. En þegar nýnasistarnir og Obamastjórnin höfðu framið valdarán í Úkraínu 2014 héldu Krímverjar þjóðaratkvæðagreiðslu 16.3.2014 og ákváðu með miklum meirihluta að sameinast Rússlandi sem falsfréttamiðlarnir kölluðu "innlimun Rússa"! Evrópusambandið ætlaði sér að innlima Krím og sendi Íslandi tilskipanir um að fara í refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna "innlimunar Krím" sem svo varð til þess að Ísland missti eina sína bestu viðskiptaþjóð! Hversu heimskir mega íslenskir stjórnendur vera?


Fá landsölumenn eyjarnar?

pasturepexels-photo-440731Nú eru okkar óforsjálu stjórnvöld að undirbúa að eyjar við Ísland verði eign manna, landeigenda, sem geta braskað með þær, en ekki eign þjóðarinnar. Með því er verið að bjóða heim samskonar braski með íslenskar landareignir og auðlindir og gráðugir landeigendur, landsölumenn, hafa stundað eftir að okkar stjórnvöld misstu stjórn á eignum landsmanna með EES-samningnum 1993.

Um leið og landareignir EES-landa verða einkaeign eru þær orðnar aðgengilegar hvers kyns gróðabröllurum og erlendum aðilum, óþjóðhollir og gráðugir landeigendur selja landareignir Íslands hæstbjóðanda eins og dæmin sýna. Stjórnvöld geta ekkert gert nema setja einhver sýndarlög sem engu breyta.

"Óbyggðanefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að hluti krafna ríkisins um að eyjar og sker við landið verði þjóðlendur eigi ekki við rök að styðjast og er vísað í því samhengi til ákvæða í lögbókinni Jónsbók sem leidd var í lög árið 1281".

Þetta eru slæm rök. Þó gömlu lögbækurnar, Grágás og Jónsbók,  séu mun betri en lagaflækjunar sem við fáum með EES-tilskipununum, þá er Jónsbók lögleidd eftir að Noregskóngar höfðu tekið völdin á Íslandi og því ekki með hagsmuni íslenskrar þjóðar að leiðarljósi. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/04/19/a_lika_vid_um_vestmannaeyjar/ir

 


Mannfórnir

terroristexercise-862266_960_720Kænugarðsstjórnin fórnar almennum borgurum og kennir Rússum um dauða þeirra

-Um mánaðarmótin mars/apríl 2022 fundust hundruðir líka í bænum Bucha eftir morðæði úkraínskra hermanna. Upptökum af sviðsetningunni var dreift til falsfréttamiðla á Vesturlöndum. Úkraínustjórn kenndi Rússum um sem varð til þess að NATO (Boris Johnson) bannaði Zelenski að skrifa undir Istambul-friðarsamningana.

-Í byrjun mars 2025 skutu Rússar flugskeytum á verustað NATO-hermanna í Krivoy Rog og felldu um 85 en Kænugarðsstjórn sá til að almennir borgarar voru nálægt svo að um tveir tugir þeirra týndu lífi.

-Á sunnudaginn var (pálmasunnudag) sprengdu Rússar um 60 NATO-hermenn, málaliða og Úkraínuhermenn sem safnað hafði verið saman í Sumy við landamæri Kursk þar sem Úkraínuher hafði stundað manndráp frá því í ágúst leið. Yfirmenn hersins sáu til þess að fundarstaður hermanna var á svæði almennings þó að svæðisstjórn Sumy hafi sagt þeim að halda ekki herfundi á svæðum almennings. Þingmenn Úkraínu kenna herstjórninni um hvernig fór og Zelensky varð að reka svæðisstjóra hersins. https://www.rt.com/russia/615758-sumy-strike-nato-ukrainian-officers/

Úkraínuleppstjórnin fórnar almennum borgurum til þess að geta kennt Rússum um. Zelenskistjórnin stendur ekki við neina samninga, síðast braut hún samning Trump og Putin um að sprengja ekki orkuinnviði. Tilgangurinn er að spilla friðarumleitunum.

Hvað Ísland varðar er ógnvekjandi að þrælslund utanríkisráðherra/frúar Íslands er að láta ESB/NATO bullurnar kjafta Ísland inn á stríðsmangið og áframhald Úkraínustríðsins.

Merz, kanslari Þýskalands er kominn í lið Makronapoleons og Breta-Starmerar, og ætlar að senda langdrægar flaugar til Úkraínunasistanna. https://www.youtube.com/watch?v=FSWzBTN18Bc.

Rússar segja að hann sé nasisti, þeir gleyma ekki að þýskir nasistar drápu 27 milljónir Rússa í síðasta stríði.

Það gegnur hægt hjá Trump að stöðva "stríð Biden og Zelenski" eins og hann kallar það. Trump er vel kunnugt um að það var ríkisstjórn Barak Obama og Joe Biden sem hóf stríðið með valdaráni og árásum á rússneska íbúa Austur-Úkraínu fyrir 11 árum. Og Biden efldi það eftir að honum hafði verið svindlað á forsetastólinn 2020 og beitti kabaretleikaranum og nýnasistunum í Kænugarði sem verktaka.

Trump gæti auðveldlega stöðvað stríðið með því að stöðva vopnasendingar og kalla sína hermenn og ráðgjafa heim. En djúpríki Bandaríkjanna er enn ekki búið að viðurkenna að stríð Obama, Biden og Zelenski er tapað. Og NATO og ESB-pótentátarnir skilja ekki enn að þeim hefur mistekist að innlima Úkraínu í sín úreltu samtök.


ESB fjármagnar áróðurinn

RÚVimagesÁróður RÚV fyrir Evrópusambandið og EES-tilskipanirnar þaðan um "umhverfismál" er meiningin að Evrópusambandið fjármagni með miklum styrkjum. Ingvar Smári Birgisson, stjórnarmaður RÚV, varar við þessum afskiptum af dagskrá RÚV:

"Með því að þiggja styrki frá Evrópusambandinu í tengslum við umfjöllun um innleiðingu tilskipana getur stofnunin eðli málsins samkvæmt rýrt trúverðugleika sinn síðar meir - Það er alltaf varhugavert að taka við styrkjum frá sjóðum erlendra ríkja sér í lagi ef umræddir sjóðir hafa verið notaðir til að fjármagna áróðursstarfsemi" https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/04/14/evropustyrkir_til_ruv_athugaverdir/

Trúverðugleika RÚV þyrfti að efla en ekki rýra enn meir. Það er af nógu að taka í áróðursdagskrám RÚV, ekki síst um sk. umhverfismál og ekki allt frá ESB. Oft koma náttúrulífsmyndir  frá t.d. BBC, tæknilega fullkomnar og með rödd umhverfistrúarpávans David Attenborough, þær enda jafnan á að hann segir að allt náttúrulífið sé dauðadæmt vegna koltvísýringslosunar mannkyns!

ESB fjármagnar margs konar "verkefni" hér sem eru í þágu þess og oft notuð til áróðurs eða vinaöflunar. Háskólarnir ættu að leggja sína "verkefna-" og áróðursfjármögnun á borðið svo fólk viti hvaðan hún kemur. Og fleiri sem áhrif og völd hafa í íslensku þjóðlífi þyrftu að útskýra sína fjármögnun.

 


Stríðsæsingar Breta

Cettafree-photo-of-ddayHarry Bretaprins er kominn til Úkraínu, ekki seinna vænna, allir helstu ráðherrar Breta hafa heimsótt nýnasistaklíkuna í Kænugarði og jafnvel gert "varnarsamning" við þá. Úkraína gerði friðarsamning við Rússa 2022 en þá kom Boris Johnson og sagði þeim að skrifa ekki undir.

Forsætisráðherra Breta og forseti Frakklands, leiðtogar sem minna en 1/4 þjóða þeirra styður, boða sína trúfélaga til sifelldra funda til þess að safna liði til að senda inn í Úkraínu undir yfirskini "friðargæslu". Okkar frýr eru látnar mæta. Búið er að tryggja eina 4 þátttakendur sem eru auðvitað Bretar, Frakkar og svo einhver Tataralýðveldi við Eystrasaltið. Allt NATO-lönd illa haldin af Rússahræðslu.

Bretar hafa verið að taka við hernaðinum í Úkraínu gegn Rússlandi af Bandaríkjunum smám saman. Þeir stjórna árásum og útvega vopn og hermenn sem kunna á vopnin, og njósnir. Meðan breska þjóðin sekkur í æ dýpra í volæði, kolefnishlutleysi og orkuskort geta stjórnvöld eytt síðustu aurunum í hernað. Eins og Bretastjórn hefur reyndar gert í ein 500 ár, þeir missa ekki af tækifærum til að komast í strið! https://www.thetimes.com/uk/defence/article/the-untold-story-of-british-military-chiefs-crucial-role-in-ukraine-3j2zpgrxg


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband