Færsluflokkur: Bloggar

Upplausn og endurreisn

eu-flageurope-1045334_960_720Flokkarnir sem hafa ráðið Evrópu í 80 ár eru að missa völdin. Gömlu stjórnvöldin, sem þriðjungur eða minna af kjósendum styður, eru orðin úrelt en eru þaulsætin og "neita að vinna með" nýju flokkunum jafnvel þó þeir séu stærri.

Í Frakklandi, Þýskalandi, Hollandi og Bretlandi eru farnar kröfugöngur sem enda í götubardögum. Stjórnvöld senda vopnaðar sveitir á mótmælendur og stimpla þá sem "glæpamenn" eða "hægriöfgamenn". Að rökræða við þá um málefni dettur ráðamönnum ekki í hug.

Almenningur í Evrópu hefur verið hrakinn í vaxandi fátækt. https://www.frjalstland.is/2023/07/01/fataektarmenning/ Fyrirtæki sæta höftum á aðföng og orkuöflun er eyðilögð. Regluverkið er orðið of hamlandi. Vind-og sólorkuver og lög gegn eldsneyti hafa sprengt upp  kostnað heimila og komið af stað gjaldþrotum iðnaðar og landbúnaðar. Stærsta bílaverksmiðjan er að molna, framleiðir rafbíla sem kaupendur vilja ekki https://fortune.com/europe/2024/09/03/volkswagen-german-factory-closure-ev-layoffs/ Bændurninr koma með mykju í kerrunum og sturta á götur höfuðborganna.

Heimskulegar stríðsæsingar ráðamanna eru afsökun fyrir dýrari heriðnaði og hernaðarrekstri. Óhóflegur innflutningur þróunarlandamanna, sem flúið hafa hernað NATO-landa, er orðinn þjóðfélagsvandamál. 

Nýju stjórnmálaöflin (sem sum eru reyndar áratuga gömul en hefur tekist að halda niðri) vilja hverfa frá þessum villum vega og hefja endurreisn. En því miður lítur út fyrir að þurfi að beita valdi til þes að koma úreltum stjórnmálaflokkum úr valdastólunum. Upplausn Evrópu endar þá eins og oft áður með vopnuðum innanlandsátökum sem verða undanfari endurreisnar.


Orkuskiptin orðin martröð

rafbílarcar-3117778_640Draumurinn um orkuskipti er að breytast í martröð. https://www.frjalstland.is/2022/02/11/orkuskiptin-eru-draumorar/

Bílaframleiðendur eyða tröllvöxnum upphæðum í hráefnakaup fyrir rafhlöður og rafsnúða sem valda miklum óafturkræfum umhverfisspjöllum. En rafbílarnir seljast verr og verr þar eð bílakaupendur eru farnir að þekkja blekkinguna þó þeir fái ríflegar peningameðgjafir frá almenningi. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/07/04/hrun_i_solu_rafbila/

100% rafbílar (sem ganga eingöngu fyrir rafmagni frá virkjununum) eru 1/2 til 1 tonni of þungir og varasamir og rífa upp malbikið þó þeir borgi engan þungaskatt, komast ekki langt ef eitthvað er að veðri. Ef þeir bila tæmist pyngjan fljótt. Þegar þeir fara í "brotajárn" spilla þeir umhverfinu og létta pyngju skattgreiðenda.

Tvinnbílar, hybrid, eru reyndar allt annar handleggur. Þeir eru með hjálparrafhlöðu sem bíllinn hleður sjálfur en tekur ekki rafmagn frá heimilum og atvinnuvegum landsins. Þeir eru eldsneytisgrannir þó þeir séu með auka kíló og nokkuð dýrir í framleiðslu. En með niðurgreiðslunum hafa þeir getað keppt við bensín og dísilbíla meðan viðgerðakostnaðurinn er ekki farinn að hlaðast á þá.


Sjálfstæðið varð 50 ára

skjaldarmerkiFyrir 80 árum varð Ísland sjálfstætt lýðveldi og hófst þá mesti uppbyggingartími sögunnar.  En máttlitlir leiðtogar afsöluðu sjálfstæðinu til fjarlægra valdabákna. Strax eftir 5 ár missti landið hluta af utanríkismálunum til hernaðarfélags. Og eftir 50 ár, 1994, fékk valdabákn í Vesturevrópu alsherjarvöld yfir Íslandi. Íslendingar misstu stjórn á sínum helstu málum, landið var opnað og er að yfirfyllast af erlendu fólki, bankakerfi landsins leystist upp í regluverki frá Vesturevrópu, helstu fyrirtæki í eigu þjóðarinnar voru afhent óskyldum og avinnuuppbyggingin varð happa-og-glappa. Evrópubáknið tók upp umhverfsisbábiljur öfgafélaga og leggur þungar og tilefnislausar byrðar á Ísland. Nýting mestu auðlinda landsins, orkulindanna, hefur stöðvast Og siðmenningarupplausnin hefur verið að festa rætur á þjóðþinginu og öðrum stofnunum Íslands

Hernaðarfélagið og evróspka valdabáknið hafa leitt landið í stríðsrekstur og stefna nú hraðbyri í heimsstyrjöld.

https://www.frjalstland.is/2022/12/16/utanrikismal-i-ogongum/


Skattgreiðendur kosta vindmyllur

windmillsunnamedHvað skyldu vindmyllurnar kosta skattgreiðendur? Í Bretlandi fá vindmyllurnar allt að 100 pund á megavatttímann, svipað og heildsöluverðið á markaðnum. https://www.ft.com/content/cb351788-377b-4ea7-aa0a-9bcc28293e7d Það samsvarar nærri 18 krónum á kílóvattstundina (hvað borgar þú? Ef það er mikið meir en 10 kall skaltu kvarta https://www.on.is/verdskra/)

Ástæða orkukreppunnar er hin vitfirrta stefna að afnema eldsneyti og kjarnorku í nafni ruslvísinda. Orkuverð í Bretlandi er orðið svo hátt að stór hluti þjóðarinnar hefur ekki efni á að kaupa orku þó Bretland eigi gas- og oliulindir, kolalög og hafi átt öflugt kjarnorkuverakerfi.

Enda eru núverandi stjórnvöld Bretlands að missa völdin https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/06/14/flokkur_farage_tekur_fram_ur_ihaldsflokknum/

Nú ætlar franskt fyrirtæki með aðstoð sinna sendla hérlendis að reisa vindmylluskóga hér (sjá Mbl i dag) sem verður að verulegu leyti á kostnað íslenskra skattgreiðenda samkvæt EES. Eins og kunnugt er á Ísland samkvæmt hinum glórulausa EES-samningi að auka "græna orkuframleiðslu" sem þýðir að skattgreiðendur verða að taka á sig þungar byrðar við rekstur vindmylla þar eð langt er í frá að þær geti keppt við fallvatnsokru og jarðvarma. https://www.frjalstland.is/2024/04/16/vaxandi-andstada-gegn-vindmyllum-og-solorkuverum/


Eyðileggjum Úkraínu

fallensoldierspexels-photo-10550031Ríkisstjórn Íslands ætlar að eyða milljörðum króna árlega í hernaðarrekstur NATO-ESB í Úkraínu gegn "tilefnislausum" árásum Rússa. https://tuckercarlson.com/tucker-show-jeffrey-sachs

Blómi ungra Úkraínumanna, sem voru gerðir að stríðsverktökum fyrir NATO-ESB, er fallinn. Um helmingur Úkraínumanna er farinn, flestir til Rússlands. "Fjárfestar", braskarar og þjófar NATO-ESB-landa eiga þegar nærri þriðjung landbúnaðarlands Úkraínu sem er eitt það besta í heimi. Og stóran hluta auðlinda og fyrirtækja sem einhver framtíð er i.

 Eyðilegging Úkraínu er komin langt. Landið er ekki lengur sjálfstætt þjóðríki með lögmætan forseta, kjörtímabil hans er liðið. Íbúar austurhlutans hafa klofið sig frá og ákváðu eftir 10 ára ofsóknir Kænugarðsstjórnarinnar að sameinast Rússlandi.

 Máttlaus stjórnvöld Íslands eyða fé landsmanna í að eyðileggja gamalt vinaland og opna það fyrir ruplurum og þjófum NATO-ESB-landa. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/05/31/bjarni_raeddi_vid_selenski_ukraina_tharf_taeki_og_t/

https://www.frjalstland.is/2024/02/29/ukraina-logd-i-rust/


Ísland í undirróðri

dollar-1362244__340Utanríkisráðfrú Íslands æðir um heiminn til þess að styðja hernað og undirróður. Núna er hún í Georgíu en þar hafa "sjálfstæð félagasamtök" (NGOs frá NATO/ESB-löndum) og þeirra óeirðaseggir reynt að stöðva ný lög sem setja takmarkanir á undirróður erlendra NGOs.

Um er að ræða eðlilega lagasetningu ríkja sem ekki vilja of mikil erlend áhrif á sjálfstæði þeira. Þessi NGOs vaða uppi og koma af stað óeirðum eða valdaráni með peningum, þau eru oft leynilega á vegum Bandaríkjastjórnar eða annarra NATO-landa  (s.s. Konrad-Adenauer Stiftung) og þykjast vera að berjst fyrir opinni umræðu og frelsi og geta verið skráð sem sjálfstæð góðgerðafélög eða hugveitur.

Rockefeller Foundation, Ford Foundation og fleiri hafa unnið með CIA við að brjóta niður Suður-Ameríkulönd. NED (National Endowment for Democracy) og Atlantic Council vinna nú að sundrungu Georgiu og Hvítarússlands með hjálp utanríkisráðfrúar Íslands. Þau fjármagna undirróður og glæpastarfsemi í Rússlandi, m.a. Navalny-ekkjuna.

Rússar hafa barist við þessa drauga í meir en 75 ár og þekkja þá. Þeir kölluðuðu Bandaraísku sendifrúna (Lynne Tracy) á teppið fyrir forsetakosningarnar síðustu og sögðu henni að vinna ekki með NGO-lýðnum, American Councils for International Education og Institute for International Education, við að hafa áhrfi á forsetakosningarnar í Rússlandi.

Óháðir niðurrifsfjárfestar eru líka í leiknum, t.d. George Soros (Open Society Foundation). Það er Julian Assange og Wikileaks sem hefur afhjúpað þessa starfsemi enda situr Julian nú í fangelsi.

Eitthvað af þessu undirróðursfé seitlar til Íslendinga sem sækjast eftir valdastöðum og þarf þvi að fylgjst með þeirra fjármögnun og láta þá auglýsa í smáatriðum hvaðan þeir fá féð.


Samtíðarverur í kuldanum

LebotullierÞrösturpexels-photo-929386Lífverurnar sem deila með okkur Jörðinni hafa frá Skaparans hendi sama rétt til að lifa og við samtíðarmenn þeirra.

Við höfum tilhneigingu til þess að hrifsa allt sem við girnumst en okkar samtíðarverur í dýraríkinu þurfa oft að berjast hart fyrir sínu lífi. Ekki síst fuglarnir, versnandi kuldavetur verða þeim erfiðari en þeir reyna margir að draga fram lífið hér í staðinn fyrir að fara til Skotlands. Í frosthörkum, snjó og klaka deyja margir úr kulda og hungri.

Það er til gott og hugulsamt fólk sem gefur fuglunum og reynir að vernda þá. Það er mikil ánægja af því og börnin njóta þess og læra að skilja dýrin. Fuglarnir þiggja molana sem af borðum okkar detta, venjulegu matarafgangana þó sumt sé betra en annað fyrir þá, ýmsar leiðbeiningar eru til frá fuglavinum um hvað er best. Brauðafgangar og korn hverfa fljótt í bæði smáfugla og stærri og krummi étur ýmisslegt og er hrifinn af eplum. Fuglarnir eru ekki mikið öðruvísi verur en við, þeir borða meira að segja sama mat og við. Og syngja, kvaka og krunka!

Við getum minnkað matarsóun og gefið fuglunum.

https://m.facebook.com/groups/2702405353225254/posts/3038093812989738/

https://www.mbl.is/frettir/burdargrein/2023/01/18/fuglar_frjosa_fastir_i_frostatidinni/

https://fuglavernd.is/tegundavernd/gardfuglar/fodrun-gardfugla/?cn-reloaded=1


Að drepa í eyðimörkinni

fireapocalypse-2273069_960_720Stríðsrikið skýtur nú sprengjum á Írak, Sýrland og Jemen til þess að hefna fyrir árásir heimamanna á olöglegar bandarískar herstöðvar sem stríðsríkð hefur notað til að drepa hundruðir þúsunda manna og stela olíu síðustu áratugina.

Þessi lönd eru sjálfstæð ríki og hafa sagt Bandaríkjunum að fara burt með sinn her enda komið nóg af drápum og þjófnaði. Framverðir stríðsríkisins hafa þegar rústað stórum hluta af Palestínu og drepið þúsundir barna. Stríðsríkið, eða réttara sagt hættulegir núverandi leiðtogar þess, stefna heimsbyggðinni í stórstyrjöld.

https://twitter.com/RobertKennedyJr/status/1753549305292402838


Bankarnir eru í höftum EES

eu-flageurope-1045334_960_720Við erum öll fjármálalögga! (Ingvar Smári Birgisson Mbl 27.11.2023)(við vorum einu sinni öll almannavarnir)!

Íslenskir bankar eru pikkfastir í reglugerðakviksyndi Evrópusambandsins/EES sem stjórnar því með einum 6 stofnunum. Evrópusambandið er svo hrætt við peningaþvætti að það hefur sett tímafrekar og þungar kvaðir á ekki bara banka heldur líka á almenning og fyrirtæki um að sjá um löggæslu og skriffinnsku gegn peningaþvætti. Þetta stjórnkerfi er al-evrópskt,  ættað frá Austur-Þýsku leyniþjónustunni STASI.

Árangurinn er höft á nauðsynlegar fjárfestingar og viðskipti og eykur enn á fjármögnunarerfiðleika unga fólksins sem þarf húsnæði. Ekki á bætandi, regluverkið um byggingaframkvæmdir (smitað af EES-tilskipunum) er orðið svo umfangsmikið og kostnaðaraukandi að margir venjulegir borgarar geta ekki keypt þak yfir höfuðið (Gylfi Gíslason, Mbl 27.11.2023)

https://www.frjalstland.is/2023/11/27/bankarnir-eru-i-hoftum-evropusambandsins/


Gullhúðun EES-kvaða

eu-flageurope-1045334_960_720Þeir sem dýpst hefur verið sökkt í reglugerðakviksyndi EES kvarta nú yfir að Stjórnarráðið innleiði tilskipanirnar með viðbótum frá íslenskum skriffinnum sem gera þær meira íþyngjandi en þær eru í ESB: Gullhúðun!

Í mörgum tilvikum er þetta á algerum misskilningi byggt, reglugerðirnar koma beint frá miðstjórninni í Brussel og verða að íslensku regluverki óbreyttar um leið og Sameiginlega EES-nefndin í Brussel hefur stimplað þær. Sú nefnd hefur ekki lýðræðislegt umboð til þess að setja lög og reglur og breytir ekki tilskipununum efnislega. Ráðuneytin þurfa í raun ekki að koma nálægt, íslensku eftirlitsstofnanirnar geta vísað beint í textann frá Brussel ef þær eru í vafa og fyrirtækin geta vísað í hann til að verjast.

Nú ætlar ráðuneyti utanríkismála að stofna enn einn starfshópinn til að skoða umfangið. Góðra gjalda vert en ekki líklegt til neins árangurs, vandamálin eru reglugerðirnar sjálfar og að Brussel skuli yfir höfuð skrifa reglugerðir fyrir Ísland. Í ESB-löndum eru menn víða vanir ofurskriffinnsku og hunsa Brusselfarganið þegar þeim hentar, ekki okkar stofnanir, þær eru katólskar og reyna að koma öllu EES-svamlinu yfir landsmenn.

Það er auðvitað EES-samningurinn sjálfur sem er vandamálið, eindfaldasta og besta mótaðgerðin er einfaldlega að segja honum upp, með eins árs fyrirvara, og færa reglusmíðina heim.

https://www.frjalstland.is/2022/10/08/evropusambandid-setur-islandi-log/

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband