Fótasár ESB

shot in the footistockphoto-487526123-612x612Evrópusambandið er búið að skjóta sig svo oft í fótinn að batahorfur eru litlar. Stærsta skotgatið er frá því það bannaði sínum meðlimum og leppum að versla við Rússland vegna stríðsins í Úkraínu þó það hafi sjálft átt upptökin ásamt með Obamastjórninni. https://www.frjalstland.is/2022/05/05/bloduga-valdaranid-i-ukrainu/

Fyrirtæki í V-Evrópu verða nú að kaupa dýrari orku og aðföng frá fjarlægari stöðum

Annað stórt skotgat á fæti ESB, gamalt en ógróið, er græna vitfirringin gegn eldsneyti sem hafði eyðilagt orkumál ESB áður en sambandið lokaði á Rússland. Þegar svo ESB og NATO reyndu að véla heimsbyggðina til að styðja stríðsreksturinn í Úkraínu skaut sambandið sig enn einu sinni í fótinn. Heimsbyggðin mest öll hunsaði Vesturlönd enda þekkja mörg lönd hernaðarfýsn, valdagræðgi, lygaherferðir og græna eyðileggingarofbeldi Vesturlanda.

Vesturlönd eru að einangrast frá öðrum löndum jarðarkringlunnar með valdagræðgi og stríðsórum og eru búin að króa stærstu þjóð Evrópu út í horn með svikum, lygum og vopnavæðingu fasista og vígamanna. Heimsbyggðin utan Vesturlanda er nú í óða önn að bindast hagsmunaböndum gegn hernaðarbrölti og valdagræðgi ESB og NATO-landa https://impakter.com/brics-expansion-five-new-members-in-2023/

Úthafseyjan Ísland, sem lenti undir valdi ESB/EES og er þar enn, dregst með í stríðsreksturinn andstætt hagsmunum og öryggi landsins.

https://www.frjalstland.is/2022/05/31/evropusambandid-hervaedist/


Skattfé í drekana

batterycar-7235247_960_720Þú getur keypt niðurgreiddan rafdreka (á hjólum) án þess að taka þinn þátt í að borga vegaslit þó drekinn þinn sé 1/2-1 tonni of þungur og spæni upp malbikinu. Ef þú átt alvöru bíl og borgar skattinn þinn borgar þú bæði kostnaðinn af þínum bíl og líka af rafdrekum hinna.

-Tekjur ríkissjóðs af gjöldum á bíla minnka um 20 milljarða á árinu vegna örrar fjölgunar rafbíla- (Fréttablaðið  21.7.2022)

Nú ætla okkar stjórnvöld, sem eru flækt í neti loftslagsvitfirringar ESB/EES, að leggja ný gjöld á bíla til þess að borga fyrir niðurgreiðslurnar á rafdrekunum sem þó bjarga loftslaginu ekki eins og rannsóknir Hagfræðistofnunar sýna (Mbl.22.7.2022) en þeir valda meiri og meiri skemmdum á umhverfi Jarðarinnar.

https://www.frjalstland.is/2019/10/29/rafbilavaedingin-vanhugsud/


Geislahætta af Úkraínu

nuclear powerplantpxclimateaction-4168906_960_720Leppstjórn ESB og NATO í Úkraínu heldur áfram hryðjuverkum gegn Rússum Úkraínu með aðstoð öfgaflokka. Manndrápin hafa nú staðið yfir í 8 ár og 8 mánuði slétta. Nú fær leppstjórnin ný vopn frá húsbændunum í Washington og Brussel sem þeir nota til að drepa óbreytta borgara rússnesku héraðanna https://www.rt.com/shows/news/559237-rtnews-july-20-16msk/.

Að berjast við rússneska herinn geta þeir ekki.

Síðustu tilraunir leppstjórnarinnar í Úkraínu til hryðjuverka eru að sprengja risa-kjarnorkuverið í Zaporozhye.

https://www.rt.com/russia/559319-zaporozhye-nuclear-power-plant-attacked/

ATH! Vestrænir fjölmiðlar segja aðeins frá árásum sem hægt er að ljúga upp á Rússa, rússneski fjölmiðillinn RT er oft með fyllri og sannari umfjöllun um aðalatriði en þeir vestrænu. 


Vindrellur og rafeldsneyti

windmilldeathgrulla-montes-cierzoGulli loftslagsráðherra (loftslagi óviðkomandi) telur vera hraða þróun í vindmyllum. Hann telur erfitt að ná "loftslagsmarkmiðum Íslands" nema með nýtingu vindokru (Mbl.13.7.2022). "Loftslagsmarkmið Íslands" eru tilskipanir frá þéttbýlum Evrópulöndum og hafa komið af stað lífskjarakreppu þar.

Þróun vindmylla hefur aðallega verið vaxandi kostnaður og tíðari lokanir, þær eru byggðar og reknar með fjáraustri frá skattgreiðendum og gefa dýrasta rafmagnið. Þær skemma umhverfi, landsfegurð og heilsu manna og dýra og særa fugla og eru léleg orkumannvirki.

Að framleiða rafeldsneyti með vindmyllum er ósjálfbært á báðum hæðum. Vindmyllurafmagnið er of dýrt og rafeldsneyti (rafgreiningarvetni) þarf tvöfalt meiri orku en það gefur af sér, það verður aldrei samkeppnishæft við jarðgasið.

Orkukerfi Íslands yrði fljótt að verða baggi á landsmönnum ef menn treysta á að ESB kaupi vetni til frambúðar á verði sem borgar framleiðslukostnaðinn (og landskemmdirnar). ESB stimplar jarðgas "grænt" þegar íbúarnir fara að krókna úr kulda (ath. að stimplanir ESB eiga ekkert skylt við verkfræði). Það er til ofgnótt af jarðgasi um alla Jörð, það er ódýrt og hagkvæmt. Nóg er til af kolum, notkun þeirra eykst nú í ESB.

Loftslagsmarkmið Íslands (Evrópusambandsins) hafa ekkert með loftslag að gera en eru ofurdýrar fátæktargildrur fyrir Íslendinga sem eru handhafar heimsmets í reyklausri orku. Vitfirringunni lýkur ekki fyrr en EES hefur verið aflétt.

https://www.frjalstland.is/2021/10/08/vindmyllur-og-orkukreppan/


Óráðherra?

fuel-1596622_960_720Moggi (11.7.2022) hefur eftir Þórdísi: "Viðskipti við Rússland ekki verið af hinu góða"

Rússland bjargaði Íslandi frá efnahagshruni eftir fjandsamlega efnahagsárás NATO-ríkis árið 1952. Rússar keyptu íslensku vörurnar handa almenningi og seldu okkur olíuvörur allt þar til EES-ruglið skall á 1994. Hagstæð, smurð og snurðulaus viðskipti í 40 ár. Viðskipti við Rússland héldu áfram allt til vors 2014 að Ísland fékk fyrirmæli frá ESB/NATO, byggð á lygum, um að setja viðskiptabann á Rússland.

Það þarf að koma ábyrgð á stjórnmálaflokka, sem treyst er fyrir ráðherrastólum, að þeir sjái til þess að þeirra fulltrúar hafi lágmarks þekkingu og verði marktækir og upplýstir og fari ekki með óráð um málefni íslenskrar þjóðar.


Boris búinn

union_jackistockphoto-616242056-1024x1024.jpgHávaðasamasti stríðsæsingamaður Evrópu, einleikari í eigin leikþætti valdagræðginnar, er búinn, hættan á kjarnorkustríði hefur minnkað um sinn þar með. Boris var mikill tilþrifamaður og gerði það sem aðrir gátu ekki. Hann frelsaði Breta frá ESB. En þegar lífskjör almennings hrundu, verð á lífsnauðsynjum var komið upp úr getu almennings, lífskjarakreppan lagðist yfir, lauk leikþætti Bórisar. Það var græna blaðran, vitfirringin um að banna eldsneyti og kjarnorku, sem varð Boris að falli. Æsifréttamiðlarnir flýttu bara fallinu.  Með vindmyllum og sólorkuverum skall á orkukreppa, of dýr orka og orkuskömmtun. Vöruverð fylgdi á eftir, nauðsynjar urðu of dýrar. https://www.frjalstland.is/2022/04/03/vaxandi-fataekt/

Boris reyndi að kenna Rússum um kreppuna en landar hans sáu í gegnum það. Öfgafull framganga hans gegn Rússlandi og stríðsmangið með leppstjórninni í Úkraínu minnkuðu fylgi hans meðal vitiborinna Breta. Stríðsórar gegn Rússum eru að vísu hluti af breskri menningu en þeir yngri trúa þeim ekki lengur og treysta ekki fjölmiðlum, hvað þá stjórnmálamönnum.


NATO út úr skápnum

soldier-4771921_960_720Aðalritari NATO (sá sem kemur í sjónvarpið með stríðsæsingar á holræsa-ensku og minnir á Göbbels) viðurkenndi á blaðamannafundi (ekki mikið sagt frá honum í falsfréttafjölmiðlum ESB og NATO-landa) að NATO hafi síðan 2014 verið að undirbúa að nota Úkraínu í umboðsstríð við Rússland.

"Raunveruleikinn er að við höfum verið að undirbúa þetta síðan 2014-" https://www.azerbaycan24.com/en/us-led-bloc-has-been-preparing-since-2014-to-use-ukraine-for-proxy-conflict-with-russia/

Hann minntist ekki á þátt þátt NATO i valdaráninu í Kænugarði í febrúar 2014 sem var upphafið að Úkraínustríðinu.

https://www.frjalstland.is/2022/05/05/bloduga-valdaranid-i-ukrainu/


NATO og Joe fram yfir dag

war-venue-494345_960_720Verkefni NATO lauk 26.12.1991, þá átti að leysa bandalagið upp. Í staðinn gerðu Bandaríkin og Evrópustríðsveldin það að stríðsfélagi með útþenslu og sundurlimun Rússlands sem markmið. Þau sviku samninga sem gerðir voru við Rússa, s.s. 1997-samning um að Bandaríkin mundu ekki hafa fasta nærveru margra hermanna í Póllandi. Árangurinn varð óhugnanlegur stríðsrekstur NATO-landa og ESB með Úkraínu sem lepp og unga Úkraínumenn sem byssufóður.

"Bandaríkjamenn vilja ekki stríð við Rússland en NATO og okkar eigin heimsku leiðtogar eru að draga okkur inn í stríð sem enginn mun vinna. Mögnun stríðs vegna Úkraínu, sem er ekki í NATO, skapar hættu á kjarnorkustríði, það er valdabrölt sem setur allan heiminn í hættu. Við ættum að draga okkur úr NATO" (Majorie Taylor Greene) https://www.newsweek.com/marjorie-taylor-greene-nato-war-russia-war-ukraine-conflict-mtg-1720627

Jon Voight vill ákæra Joe Biden. "Látið ekki þennan forseta, Joe Biden, rífa niður með lygum hverja tommu sem kostuðu fórnir með blóði, svita og tárum" (Jon Voight). https://www.newsweek.com/jon-voight-seeks-president-joe-biden-impeachment-twitter-video-gop-democrats-republicans-1720729

bloggið skrifar Friðrik Daníelsson


Ísland í stríð?

explosion-67557__480EES-samningurinn hefur valdið miklum usla í islensku þjóðfélagi og hefur nú orðið til þess að Ísland hefur dregist með í stríðsrekstur. Ísland hefur tekið þátt í viðskiptabönnum og flutningi vopna til stríðssvæðisins. Íslenska þjóðin hefur ekki fengið að segja hvort hún vill taka þátt í stríðsrekstri.

Með tilskipanavaldinu sem EES-samningurinn færði ESB, stjórnar sambandið viðskiptabönnum á Rússland. Tilskipanirnar fóru að flæða í mars 2014, sú fyrsta 18.mars um "þvingunaraðgerðir - í ljósi ástandsins í Úkraínu"! https://www.frjalstland.is/2022/03/07/utthensla-nato-og-esb-orlagarik-mistok/

"Ástandið" samkvæmt ESB var "innlimun Rússa á Krím", kunnugleg ESB-rangfærsla, Krím ákvað að sameinast Rússlandi í þjóðaratkvæðagreiðslu 16. mars. 2014. En hið raunverulega neyðarástand varð þegar Obama/Biden-stjórnin og sendlar þeirra í ESB og NATO frömdu blóðugt valdarán eftir að lögleg stjórn Úkraínu hafnaði aðild að ESB. Valdaræningjarnir komu til valda leppstjórn, studda af öfgahreyfingum, sem hóf strax í febrúar 2014 árásir á eigin borgara: Borgarastyrjöld.

EES-samningurinn er farinn að valda hættu á að Ísland dragist inn í stórstyrjöld vegna þáttöku í umboðsstríði ESB gegn Rússlandi. Það er orðin þjóðarnauðsyn að losa landið undan samningnum og taka utanríkismálin föstum tökum. Tilefnislaus fjandskapur við Rússland er runninn undan rifjum hættulegra kaldastríðsþursa og landsölumanna sem hafa aðgang að fjölmiðlum og breiða út rakalausar fullyrðingar.

https://www.bjorn.is/dagbok/ofgar-i-thagu-russa

https://www.mbl.is/frettir/erlent/2022/06/30/russnesk_lygi_sem_menn_a_vesturlondum_falli_fyrir/

Þátttaka Íslands í stríðsæsingum gegn einu stærsta kjarnorkuveldi heims er hrein vitfyrring.

https://www.frjalstland.is/2022/05/05/bloduga-valdaranid-i-ukrainu/

bloggið skrifar Friðrik Daníelsson

 

 


Gegnsæar falsfréttir

nato-26848_960_720NATO og ESB halda 2 fundi, annar G7 hinn NATO, hittingar leiðtoga sem ráða ekki við verðbólguna og lífskjarakreppuna heimafyrir og geta ekki lengur sagt heimsbyggðinni fyrir verkum. Til þess að efla óvinamyndina af Rússaskrímslunum og gera stríðsmang NATO og ESB kræsilegra hafa vestrænir fjölmiðlar ausið út falsfréttum um manndráp Rússa en þegja yfir hryðjuverkum Úkraínustjórnar.

Í byrjun G7 fundanna sprengdu Rúsar íbúðablokk í Kænugarði að sögn miðlanna. Þegar að var gáð var skotmarkið skotfærageymsla á vegum Úkraínustjórnar nálægt íbúðablokk.

Í gær kviknaði í verslunahúsnæði í Kremenchug, á ljósmyndum sést að verslunin virðist hafa verið nær ónotuð og örfáir bílar á bílastæðunum. Eldurinn byrjaði greinilega á bakhliðinni.https://www.bbc.com/news/av/world-europe-61957596 Þar nálægt var geymd vopnasending frá NATO og ESB sem var skotmark Rússanna, sprengingar í henni virðast hafa kveikt í verslunarhúsnæðinu https://www.rt.com/russia/557981-ukraine-mall-air-alert/

Þúsundir tonna af vopnum streyma til Úkraínu og virðist sem Úkraínustjórn leitist við að geyma þau í nálægð íbúðabyggðar til að geta búið til fréttir af árásum Rússa á saklausa borgara.


Í slæmum félagsskap

Margir þjóðarleiðtogar hafa áttað sig á að ESB er slæmur félagsskapur. Kína og Indland styðja ekki stríðsrekstur ESB og NATO gegn Rússlandi. Forseti Serbíu, sem hefur orðið fyrir manndrápum NATO, Aleksandar Vucic, segir að ESB sé í beinu stríði við...

Harmaáætlun með vindmyllur

Alþingi er búið að vera að kúgast yfir harmaáætlun (eða var það rammaáætlun) sem setur hömlur á nýtingu auðlinda en loftslagsráðherra var sáttur. Forsætisráðherann bjargar orkumálunum, hún ætlar að fá arð af vindmyllum: "-strax þyrfti að setja ramma um...

Rússarnir eru að koma!

Rússagrýlan er farin að hræða krakkana og ungmennin sem gerð hafa verið að okkar fulltrúum. Þórdís heldur að "-rússnesk herför geti farið að nálgast íslenskt yfirráðasvæði nú þegar Rússar gera sig svo digra við nágrannaríki ýmisst með beinum...

Meiri falsfréttaflutningur

Færri og færri treysta fréttadagskrám meginfjölmiðlanna, þetta kom í ljós í nýrri rannsókn Reuters. Falsfréttaflutningurinn, og ekki síst þöggun frétta sem ekki samrýmast skoðunum miðilseigandans, hefur breiðst út og aukist hratt. Vaxandi fjölda fólks...

Hvað varð af fiskinum?

Þegar Ísland varð frjálst 17. júní fyrir 78 árum var nógur fiskur í sjónum og langt fram yfir miðja öld var veitt margfalt magn á við það sem vísindamenn nú náðursamlegast leyfa. Hafró vill nú veiða enn minna.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband