Hvaða mengun?
30.4.2021 | 17:12
Heimsumspannandi Umhverfistrúarkirkjan er orðin stór eins og Katólska kirkjan, fagnaðarerindi hennar er að hafna þróun mannsins og banna nútímann: Eldsneyti, plast, kjarnorku. Umhverfistrúarkirkjan boðar að Vesturlandamenn séu orsök alls ills og mengi Jörðina. Í marga daga hafa landsmenn fengið að trúa að mengunin í höfuðborginni sér frá mönnum, skarinn af opinberum starfsmönnum hafa ekki komið til skila hvað er á seyði. Enda ekki hægt að kenna mönnum um þessa mengun, ekki einu sinni hinum hataða einkabíl.
Loksins klukkan 14.09 í dag, eftir 5 daga remmu og hósta, kom sannleikurinn í ljós: Mengunin er ekki frá mönnum, hún er úr Fagradalsfjalli sem líklega er búið að búa til nærri 200.000 tonn af brennisteinssýru (álíka mikið og ESB) síðan það byrjaði. Það var Einar Sveinbjörnsson sem dæmdi hina vondu Vesturlandabúa saklausa og upplýsti hvað olli menguninni: Umhverfið sjálft!
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021/04/30/osynilegt_lok_utskyrir_mistur_i_borginni/
Reykveita Reykjavíkur GmbH
28.4.2021 | 14:57
"Loftslagsváin ágerðist á síðasta ári - Sameinuðuþjóðaritarinn sagði að mannkynið stæði á brún hyldýpis-" (Bjarni Bjarnason og Edda Sif Pind Aradóttir Mbl 26.4.2021). Hið rétta er að það kólnaði á síðasta ári, sameinuðuþjóðaskriffinnar hafa gefið út falsspár um loftslag á hverju ári í þrjá áratugi.
Orkuveita Reykjavíkur rekur áróður fyrir dælustöð fyrir innfluttan reyk til að dæla niður í karsprungið Reykjanesið enda komin lög frá ESB. Dæla á niður 3 milljónum tonna á ári sem er aðeins meira en Fagradalsfjall spýr út og um 0,0003% af því sem náttúran sjálf spýr út (án manna og eldfjalla). Það eru svo fáir sem búa á Reykjanesinu að það gerir lítið til þó fýlan af Ruhr gjósi úr hrauninu, Reyknesingar eru orðnir vanir fýlu upp úr jörðinni.
Óraunsæjar tilskipanir um loftslagsmál
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.5.2021 kl. 17:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ríkisstjórnin og ESB
26.4.2021 | 09:31
Á afrekslista núverandi ríkisstjórnar hefur eftirfarandi löggjöf ESB verið innleidd á Íslandi á þeirri forsendu að viðskiptasamningur (EES) krefjist þess af samkeppnisástæðum:
Tilskipanir ESB um fjármálastofnanir þar sem eftirlit er í höndum erlendra ESB stofnanna og ágreiningur er í höndum erlends ESB dómstóls.
Tilskipanir um fyrirkomulag raforkumarkaða ESB(3ji Orkupakkinn), þar er Orkustofnun bein framlenging Orkustofnunar ESB(ACER) um framkvæmd allra tilskipanna og ágreiningur í höndum erlends ESB dómstóls. (Vindmyllum og sæstreng er ekki hægt að hafna þó við höfum ekkert við það að gera)
Þrátt fyrir mikla andstöðu og alvarlegar athugasemdir um að verið væri að brjóta stjórnarskránna og færa ákvörðunarvald stjórnvalda úr landi þorði ríkisstjórnin ekki að hætta við, eftir heimsóknir evrópskra ráðherra og þrýsting Noregs og ESB.
Alvarleiki þessa máls er sá að allar tilskipanir sem koma héðan í frá frá ESB verða teknar upp óbreyttar, hvað sem stjórnarskránni líður, því Alþingi er skipað til af ríkisstjórnum hvers tíma og hlýðir. Hjálendan Ísland er aftur komin undir stjórn evrópskra hagsmunaaðila sem búnir eru að fá aðgang að orkuauðlindum landsins og næsta auðlind bíður þeirra við hornið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Dagur Jarðar
22.4.2021 | 18:59
Leiðtogar stórþjóða koma nú hver af öðrum í stórfjölmiðlana og gefa fyrirfram svikin loforð í einhverjum tískumálum. En Dagur Jarðar var upprunalega baráttudagur til að stemma stigu við stærstu vá sem að Jörðinni steðjar: Offjölgun mannkyns.
En það er ekki í tísku núna. Það er heldur ekki til nein alvöru baráttuáætlun um hvernig á að stemma stigu við ógninni af sýklum þó þeir leggi nú undir sig heiminn á ógnar hraða. Ekki heldur hvernig á að stöðva vaxandi mengun sjávar. Eða hvernig á að bregðast við vaxandi stríðshættu og stækkandi vopnabúrum. Og búið er að gleyma hvernig á að bregðast við nýrri ísöld sem spáð var af "færustu vísindamönnum" um svipað leyti (1970) og Dagur jarðar var stofnaður. Og hvernig var með alþjóðlegu glæpastarfsemina? Eða geimgeislastormana? Og loftsteinana?
Dagur jarðar er notaður til að bera út áróður en aðal umhverfisváin er ekki í tísku.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hamfarahlýnun með hafís
19.4.2021 | 12:29
Landsins forni fjandi nálgast landið. Ríkisstjórnin ætlar að bregðast skörulega við með milljarðatugum af skattfé, og sýna ESB hvað við getum, og setja lög um kolefnishlutleysi, "til að halda aftur af hamfarahlýnun-", og lög um vindmyllur
ESB þyrfti líka að gefa út tilskipun um eldgos, Fagradalsfjall framleiðir meiri koltvísýring (6kt/dag) en eldsneytisbrennsla Íslendinga.
Falsspámenn hafa spáð hamfarahlýnun í aldarþriðjung en það var 2011 sem við flæktumst að óþörfu í hamfarahlýnun ESB. Síðasta áreiðanlega spáin frá Al Gore, 2009, var að Norður-Íshafið yrði íslaust 2013. En hafísinn gegnir ekki Nóbelsverðlaunahöfum, útbreiðslan er meiri nú (í mars) en fyrir 15 árum. Loftslagið breytist stöðugt.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 12:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
"Báknið burt"
17.4.2021 | 12:25
"Báknið burt" - Allir vita að svona auglýsing er jafn útslitin og innihaldið. ER virkilega ekki hægt að hafa sannari og vitrænni málefni fyrir það sem stjórnmálamenn standa?
Eða líta þeir svo á að kjósendur séu kjánar sem hægt er að selja hvað sem er og það sé gleymt eftir kosningar?
"Frá árinu 2000 -2018 hefur opinberum starfsmönnum fjölgað um 55%, en 18% á almennum vinnumarkaði. Þannig jókst vægi hins opinbera á vinnumarkaði úr 24% í 29%."
https://www.dv.is/eyjan/2020/01/24/baknid-blaes-ut-mikil-fjolgun-starfsmanna-nefnda-rada-og-stjorna-hja-rikinu/
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Eiga útlend fyrirtæki að nýta ár og hveri?
15.4.2021 | 14:55
ESB ætlar að leyfa fyrirtækjum í ESB/EES að nýta íslenskar orkuauðlindir.
https://www.frjalstland.is/2021/04/15/eiga-orkufyrirtaeki-esb-ees-ad-virkja-orkulindir-islands/
EES lygarnar
12.4.2021 | 12:56
Nokkrir leggja orð í belg EES-umræðunnar í Mogganum og Mbl upp á síðkastið. Sumt gott en stjórnmálamenn og uppgjafa slíkir leggja að mestu staðlausa stafi í belginn eins og síðustu 25 árin. Með einni undantekningu sem er ritstjóri Morgunblaðsins.
Rangfærslurnar um EES-samninginn eru orðnar svo umfangsmiklar að mörg orð og góðan tíma þyrfti til að leiðrétta þær. En í Mogganum og á Mbl koma annað slagið vitleg skrif sem gefa lesendum ófalskar upplýsingar.
Goðsagnirnar um EES-samninginn
Að sólunda frelsinu
10.4.2021 | 18:14
-" Á mannamáli þýðir þetta að íslenskt löggjafarvald hefur að miklu leyti verið yfirtekið af erlendu valdi-"
Frelsi og sjálfsábyrgð íslenskrar þjóðar
Fyrirspurn til fjármálaráðherra
9.4.2021 | 14:08
Frjálst land hefur sent fjármálaráðherra fyrirspurn:
A. Hefur verið skorið úr um hvort þjónustutilskipunin krefjist þess að ESB/EES-aðilar sitji við sama borð og íslensk almannafyrirtæki við úthlutun nýtingarréttar orkuauðlinda?
B. Ætla íslensk stjórnvöld, í trássi við umsögn Landsvirkjunar, að opna fyrir að ESB/EES aðilar nýti orkuauðlindir landsins með væntanlegum lögum um nýtingu á landi í eigu ríkisins í atvinnuskyni?
Í frumvarpinu https://www.althingi.is/altext/151/s/0900.html eru ákvæði sem valda vafa og opna á úthlutun til EES-aðila, Landsvirkjun hefur hvatt fjárlaganefnd til að taka af allan vafa.
63 þingmenn geta ekki sett lög án þess að þau mígleki.
6.4.2021 | 13:32
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Rammaáætlun aula
4.4.2021 | 13:14
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Samkeppniseftirlegukindur
2.4.2021 | 11:58