Græðgi og gervimennska
31.1.2022 | 09:21
Paul Krugman segir: " Ef hlutafjármarkaður er ekki efnahagslífið,..sem hann er ekki,..þá eru gervimynt eins og Bicoin það heldur ekki. Samt eru gervimyntir orðar ansi stór eignaflokkur (og skilaði mörgum kaupendum miklum söluhagnaði); síðasta haust hafði samanlagt markaðsvirði gervimynta náð tæpum 3 billjónum dollara.." nytimes.com
Gervimennskan og græðgin hafa skapað eitthvað sem gráðugt fólk verslar með og hefur náð Landsvirkjun til að selja sér orku til gagnavera á Íslandi til að "grafa" eftir Bitcoin og skapa rafmagnsskort í kerfinu.
Orkustofnun telur í nýrri spá 2021-2060, að orkuþörf gagnaveranna muni halda áfram að aukast og árið 2022 verði aflþörf gagnavera orðin um 1.260 GWst. Það er 20% meiri rafmagnsþörf en til heimila (823 GWst) og landbúnaðar (230 GWst) samanlagt á Íslandi.
Bitcoin framleiðsla er skemmdaverkastarfsemi sem kemur í veg fyrir vöxt verðmæta og atvinnusköpunar alvöru framleiðslufyrirtækja. Hver er ábyrgð Landsvirkjunnar?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hafísinn farinn 2014
29.1.2022 | 15:25
Þessi fleygu orð eru frá þekktasta falsspámanni og Nóbelsverlaunahafa um loftslag, þau féllu á loftslagssirkusnum í Köben 2009. https://www.thetimes.co.uk/article/arctic-summer-ice-may-be-gone-in-five-years-al-gore-warns-tqxrj9chvfn
Loddararnir, loftslagslíkönin og yfirlýsingar ESB og SÞ um hamfarahlýnun stjórna ekki hafísnum. Snjó- og ísmælingar Bandaríkjanna (31.12.2021) sýna að hann hefur ekki verið meiri í nærri 2 áratugi. http://nsidc.org/arcticseaicenews/
Hafísinn lónar nú norðvestan við mynni Ísafjarðardjúps https://www.vedur.is/hafis/tilkynningar
Falsspámenn eru búnir að telja okkur trú um að sé að hlýna svo við erum illa undirbúin hrollinum. Ísfirðingar fá ekki nóg rafmagn, það fer í óþarfa rafbíla og myntgröft. En Ísfirðingar vissu líklega að hverju stefndi. Þeir eru með olíukatlana tilbúna og geta nú haft heitt í húsunum þó landsins forni sé kominn aftur með hroll.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
NATO að villast
27.1.2022 | 16:42
NATO var stofnað til að berjast gegn Moskvu-kommúnismanum, við vorum með. Bardaginn vannst jólin 1991 en NATO hélt að það væri ómissandi og hélt áfram að berjast gegn Moskvu, kommúnistalausri, og tók að leggja A-Evrópu undir sitt hernaðarbrölt.
Norðurlandakratar hafa reynst sauðtryggir stríðsmangarar fyrir NATO sem hótar nú áður rússnesku héraði, Úkraínu, innlimun í NATO, safnar liði til innrásar og sendir þangað vopn. Rússar vilja ekki láta sitt gamla hérað undir ruplarana í Brussel og Washington en elliæra kratastjórnin, sem er sest í stólana þar, skilur það ekki og segist ætla að "verja Úkraínu"!
Úkraína hefur verið hluti af Rússaveldii, sem stofnað var í Úkraínu 882, lengur en elstu menn muna. Við eyjarskeggjar fórum ekki með í NATO til að verja Úkraínu fyrir Rússum. NATO á að vera varnarsamtök Atlantshafslanda, ekki stríðsæsingabákn valdagráðugra stórvelda. Við vorum ekki með í að stofna svoleiðis félagsskap.
NATO ætti að einbeita sér að því að verja Atlantshafsþjóðirnar fyrir glæpagengjum, ofsatrúarmönnum, hælisleitendaflóðinu, hryðjuverkamönnum eða sjóræningjum. Og mögulegum hernaðarárásum, þær koma ekki frá Rússlandi. Nema bröltið í Biden og NATO flæmi Rússa í faðm Kínverja. Þá fara stríðsmangarar í felur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Orkukreppusmit ESB er komið
22.1.2022 | 16:43
Smitið af orkukreppu ESB er komið alla leið frá Brussel mörg þúsund kílómetra til Ísafjarðar en Ísfirðingar voru skynsamir og förguðu ekki olíukötlunum og geta nú haft heitt í húsunum. Raforkukerfi Íslands ræður ekki við orkuþörfina, það þarf að skammta raforkuna meðan virkjanir eru í umhverfisvafstri og orkuskiptin í gangi.
https://www.frjalstland.is/2022/01/22/island-smitad-af-orkukreppu-esb/
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Orkukreppan hætt að bíða
20.1.2022 | 18:34
"Losun á að minnka um 55% fyrir árið 2030" segir Gulli ráðherra sem stjórnar loftslagi með harðri hendi ESB. "-það þarf 50% meiri orku í orkuskiptin" segir Landsvirkjun sem á ekki einu sinni nóg núna. "Orkuskortur vofir yfir" segir Moggi (Mbl 20.1.2022)
Regluverkið frá ESB og afturhaldsöflin á þingi hafa tafið virkjanir. Það fer líka of mikil orka í óþarfa, rafbíla og rafmyntagröft, meðan vinnustaðir eru straumlausir. Gulli og félagar verða að gerast sjálfstæðir menn og stjórna orkumálunum fyrir Íslendinga. Hin glórulausu orkuskipti verða að bíða þar til orkukreppan hættir eða stjórn landsins færist í eðlilegt horf. https://www.frjalstland.is/2019/12/09/island-flaekt-i-loftslagsblekkingar-esb/
Flytja til Spánar
18.1.2022 | 13:51
Það er kalt á Íslandi og það lagast ekkert, síðasta ár var bara það 20. hlýasta af síðustu 100 árum hér í Reykjavík (5,4° ársmeðaltal Veðurstofunnar)
Og ekki hlýnaði við N-Atlantshafið þar sem hitinn hefur verið mældur í meir en öld.
Á Stórhöfða, þar sem langtímasveiflur sjást vel, var síðasta ár það 29. hlýasta (5,53°) af síðustu 100 árum. Temperature record Stórhöfdi Vestmannaeyjar
Evrópusambandið segir að þar sé alltaf að hlýna. Er ekki bara best að flytja til Spánar?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Áburðarframleiðsla
15.1.2022 | 17:01
Nú er svo hátt verð á innfluttum áburði að bjartsýnismenn vilja endurreisa áburðarframleiðslu með svipaðri aðferð og var í Gufunesi: Framleiða vetni í áburðinn með rafmagni sem er að vísu margfalt dýrara en að famleiða það úr metani (jarðgasi) eins og stórir áburðarframleiðendur gera. En ef stjórnvöld hér standa með innlendri framleiðslu getur viss aukakostnaður verið yfirstíganlegur í ljósi reynslunnar af óöryggi og dýrum innfluttum áburði.
Það má líka flytja inn jarðgas til framleiðslunnar sem til skamms tíma hefur verið auðaðgengilegt og ódýrt á alþjóðamörkuðum þó herferðin gegn jarðefnaeldsneyti hafi sett það í uppnám um sinn. Með eigin framleiðslu áburðar mundi landið verða minna háð tískustraumum og markaðssveiflum. En bæði kalíið og fosfórinn þarf að flytja inn svo áburðurinn verður áfram eitthavð háður duttlungum á mörkuðum.
Eitt af skammarstrikum íslenskra stjórnvalda á tímum einkavæðingar og EES-samningsins var að afhenda gæðingum og "fjárfestum" góð fyrirtæki í almannaeigu. Áburðarverksmiðjunni, Sementsverksmiðjunni og Kísilgúrverksmiðjunni var fórnað með ýmsum fölskum rökum um vond umhverfisáhrif og óhagkvæmni. Nú er komið í ljós að mikil mistök voru gerð.
Tilbúinn áburður hefur lengi verið skotspónn umhverfistískufrömuða en ljóst er orðið að ekkert getur komið í staðinn fyrir hann.
Áburðarverksmiðjan í Gufunesi var braskvædd og svo lokað, sögð hættuleg vegna mengunar, leka- og sprengihættu. Það var einföldun og ýkjur, það mátti hafa stjórn á hættunum og halda íbúðabyggð í fjarlægð. Að flytja verksmiðjuna var líka hægt, hún var nýleg að hluta.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.1.2022 kl. 10:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Rafbílavandinn
13.1.2022 | 17:56
Loftslagssvindlið hefur komið af stað svokölluðum "orkuskiptum", rafbílum er prangað inn á saklausan almenning með því að fella niður rokhá gjöld sem þarf að borga af venjulegum bílum. Rafbílavæðingin vanhugsuð
Fjármálaráðherra er kominn í vandræði, hann fær minni og minni peninga í vegamálin af því að vaxandi fjöldi er kominn á rafbíla. Ráðherrann hyggst nú fara að lesa af kílómetramælum og innheimta kílómetragjald af rafbílunum í staðinn fyrir virðisaukaskatt, vörugjöld, tvöfalt orkuverð og fleiri álögur sem eigendur venjulegra bíla þurfa að borga.
Rafbílar geta verið hálfu og jafnvel nærri heilu tonni þyngri en bensínbílar og slíta því vegum mun meir en bensínbílarnir. Hættuleg mengun frá þeim er mun meiri en frá bensínbílunum, hættulegt fínryk sem þeir spæna upp. https://www.brusselstimes.com/belgium/61738/heavier-electric-cars-wear-out-roads-faster
Af rafbílum þarf því með réttu að innheimta vegagjöld eftir þunga og eknum kílómetrum. Og takmarka akstur þeirra í miðbæjum þar sem er mikil umferð gangandi fólks. Umhverfisspjöllin sem framleiðsla og úrgangsvandi rafbílanna valda hrannast upp og verða fjármálaráðherranum dýrkeypt. https://www.frjalstland.is/2021/11/30/kolsvart-fotspor-rafbilsins/
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.1.2022 kl. 14:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það hlýnar í Evrópusambandinu
10.1.2022 | 20:24
Ekki veitir af, sambandið er búið að kalla yfir sig orkukreppu, græna orkan dugir ekki. Loftslagsstofnun ESB, Kóperníkus, sér um að dreifa rangfærslum um loftslag:
"Síðustu sjö ár hafa verið þau heitustu frá því mælingar hófust"
"Frá árinu 2015 hefur verið hlýrra en áður en nákvæmar mælingar hófust um miðja 19. öldina" https://www.mbl.is/frettir/erlent/2022/01/10/sidustu_sjo_ar_thau_heitustu_fra_upphafi_maelinga/
Í Reykjavík og á Keflavíkurflugvelli voru síðustu 7 árin kaldari en árin 7 þar á undan. Hlýasta ár 21 aldar var 2003. https://www.vedur.is/
Heitustu árin á Íslandi frá upphafi öruggra mælinga hér voru um 1940. Hæsti hiti sem mælst hefur á Íslandi mældist 1939. https://www.frjalstland.is/wp-content/uploads/2021/03/Loftslag-%C3%A1-%C3%8Dslandi.pdf
Líklega veit Evrópusambandið ekki að Ísland er á Jörðinni.
Aðferðirnar sem ESB notar við loftslagssvindlið eru ekki vel þekktar en líklega svipaðar og hjá öðrum fölsunarmiðstöðvum: Mælingar "aðlagaðar" lélegum líkönum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 12.1.2022 kl. 13:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Spillt alþjóðastofnun
8.1.2022 | 13:33
Nú eru Biden með NATO og ESB að magna stríðsæsingar og refsiaðgerðir gegn Rússum sem mótmæla útþenslu þeirra að rússnesku landamærunum. Norðurlönd, sem þjást af tilefnislausu ofsóknarbrjálæði gagnvart Rússum, verða líklega með. Ísland, sem Rússar hafa jafnan stutt, lippast líklega með. Innlimun fyrrum Sóvíetlýðvelda í ESB og NATO kom af stað rupli fjárplógsmanna, fólksflótta og hervæðingu. https://www.frjalstland.is/2018/06/30/esb-akvedur-utanrikisstefnu-islands/
Geta Sameinuðu þjóðirnar gert eitthvað þegar herveldin ybba sig? Framganga Sameinuðu þjóðanna upp á síðkastið hefur afhjúpað spillt og vanhæf samtök. https://www.frjalstland.is/2022/01/06/spillt-og-vanhaef-althjodasamtok/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Græna orkukerfi ESB að hrynja
5.1.2022 | 20:04
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við erum frjáls!
3.1.2022 | 17:19
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)