Danskar í stríði

hermennKongkamsripexels-photoDanskar kjellingar eru í stríði ef marka má orð Mette (Mbl í dag), hún er eitthvert stríðsóðasta pils Evrópusambandsins og NATO og sér um virkan þátt Dana í manndrápunum í Rússlandi, Úkraínu og víðar. Danir hafa verið dyggir þjónar Stríðsríkisins, Bandaríkjanna, og hlaupið upp með byssurnar við hvert tilefni.

Hún veit ekki hverjir senda drónana. En það eru margir sniðugir prakkarar í Danaveldi. Hún skellir auðvitað skuldinni á vondu Rússana sem þó spandera ekki drónum á Dani. En Danir eru búnir að afla sér óvina, ekki bara stelpurnar í Grænlandi. Danir hafa tekið þátt í öllum helstu drápsferðum NATO og Bandaríkjanna síðustu ár og hafa skilið eftir sig mörg lík í Afgansitan, Líbíu, Írak, og hatur íbúanna svo margir hafa harma að hefna á Dönum.

Mette fær hæstu hænsn Evrópusambansins í heimsókn eftir helgi til þess að ákveða hvernig á að stela 140 milljörðum evra frá Rússum, peningum sem ESB/NATO-bankar hafa lagt hald á.


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af átta og tólf?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband