Alþingi þarf frí
19.6.2025 | 13:44
Frá fornu fari hafa alþingismenn fengið langt sumarfrí enda uprunalega vinnandi menn úr sveitum og útgerðarbyggðum landsins. Þeir gátu hugsað málefni landsins í fríinu, hlustað á vinnandi fólk og tekið agaða afstöðu með hagsmuni Íslands að leirðarljósi. Gömlu Íslendingarnir áttuðu sig líka á að stöðug löng vera innanum alskyns bábiljufólk villti mörgum þingmönnum sýn.
Núvernadi alþinigisheimur þarf líka langt frí. Verið er að rembast við að láta Alþingi "klára mál" sem eru hrein skemmdarverk á íslenskum hagsmunum. Spara má fúlgur af skattfé með að gefa alþingismönnum frí og hætta eyðslu í dagpeninga og farmiða í kvennaferðir til Evrópusambands-og NATO-pótentáta.
Best væri fyrir íbúa Íslands að núverandi Alþingi gerði sem minnst og að alþingismenn færu heim til sín til að reyna að kynna sér Ísland. Mál eins og bókun 35, veiðigjöldin, loftslagsmál, "varnarmál" svo ekki sé minnst á EES-tilskipanafarganið sem á að stimpla inní íslenskar lögbækur, ættu réttilega af fara út af dagskránni og endurskoðast. https://www.frjalstland.is/2025/02/11/thingmalaskra-156-logjafarthings-2025-ees-mal/
Meginflokkur: Evrópumál | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning