Lygar og draumórar lögfest
16.6.2025 | 16:12
Ríkisstjórnin ætlar nú að búa til enn ein lög um "loftslagsmál" https://samradapi.island.is/api/Documents/ba161145-e83f-f011-9bcc-005056bcce7e , reyndar ekkert nýtt af nálinni, Evrópusambandið hefur sent Íslandi skæðadrífur af EES-tilskipunum um "loftslagsmál" síðan okkar stjórnvöld álpuðust til að "fara í samflot" með Evrópusambandinu í "loftslagsmálum" að óþörfu og vanþekkingu og setja "loftslagsmál" inn í EES-samninginn alræmda. https://www.frjalstland.is/skuldbindingar-islenskra-stjornvalda-um-losun-grodurhusalofttegunda/
Meðal markmiða laganna er að Ísland verði "kolefnishlutlaust" 2040, barnslegir draumórar fákunnugra skriffinna sem verða aldrei látnir sæta ábyrgð, líklega flestir orðnir ESB-pensionistar og fluttir í hlýjuna á Spáni þegar kolefnishlutlausi dagurinn rennur upp! Það veður reyndar aldrei, kolefnissamböndin endurnýjast í hringrásarkerfi Jarðarinnar sjálfrar og verða alltaf bestu orkugjafar manna, heimskir valdamenn Evrópusambandsins eða Íslands geta ekki breytt því.
Lesendum Frjáls lands er orðið kunnugt að "loftslagsmál" eru hitafari jarðarinnar óviðkomandi, áhrif gróðushúsalofttegundanna (koltvísýrings, hauglofts) á hitafar Jarðarinnar eru mettuð, meira af lofttegundunum í loftinu breytir lofthitanum hverfandi lítið þó við hér á Klakanum getum alltaf vonað að falsspámennirnir hafi eitthvað til síns máls! https://www.frjalstland.is/loftslagsvisindi-hrjad-af-folsunum/
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning