Kjarkmenn rísa upp
14.6.2025 | 18:38
til varnar sjálfstæði landsins og kæra frú utanríkisráðherra fyrir landráð en hún ætlar sér að láta Alþingi gera EES-tilskipanir æðri landslögum, bókun 35 við EES-samninginn. https://www.visir.is/g/20252738876d/kaera-utan-rikis-rad-herra-fyrir-land-rad
Ef til hefði verið sérstakur stjórnlagadómstóll þegar EES-samningurinn var gerður hefði hann verið dæmdur út. Ekki síst vegna bókunar 35. En það voru fjórir sérvaldir lögfræðingar úti í bæ sem voru látnir "samþykkja" samninginn, hann komst aldrei í hendur íslenskra dómstóla. Kannske leiðir barátta þessarra kjarkmanna, samtakanna Þjóðfrelsis, til þess að íslenskir dómarar fái málið. https://www.frjalstland.is/2024/10/26/ees-samningurinn-er-ekki-marktaekur/
Úr stjórnarskránni:
2. gr. Alþingi og forseti fara saman með löggjafarvaldið. ---
60. gr. Dómendur skera úr öllum ágreiningi um embættistakmörk yfirvalda. --- https://www.althingi.is/lagas/nuna/1944033.html
Athugasemdir
Samkvæmt 2. gr. hefur Alþingi einmitt löggjafarvaldið (með Forseta) og getur þess vegna sett lög samkvæmt frumvarpinu sem kennt er við bókun 35. Það felur hvorki í sér framsal né skerðingu löggjafarvalds heldur notkun þess.
60. gr. snýst um embættistakmörk handahafa framkvæmdavalds en ekki löggjafarvalds (Alþingis). Dómstólar hafa engin völd yfir Alþingi. Þeir geta þó tekið afstöðu til stjórnskipulegs gildis laga en aðeins eftir að þau hafa verið sett. Samkvæmt 61. gr. eiga dómarar eingöngu að fara eftir lögunum, sem Alþingi setur, svo lengi sem þau eru réttilega sett og samræmast stjórnarskrá.
Það eru ekki landráð að leggja fram frumvarp á Alþingi, jafnvel ekki einu sinni þó það væri snargalið frumvarp. Framlagning frumvarps sem slík hefur nefnilega engin réttaráhrif, eingöngu samþykkt lög. Þessi kæra fyrir meint landráð er því stórfurðulegt uppátæki, auk þess sem ekkert við hinn kærða verknað samræmist verknaðarlýsingum neinna ákvæða í landráðakafla almennra hegningarlaga.
Guðmundur Ásgeirsson, 14.6.2025 kl. 20:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning