Úkraínustjórn er stríðsvá
5.6.2025 | 13:26
Úkraínustjórn gerði árásir á kjarnorkuvopna-flugvélar Rússa sem standa úti til þess að gervihnettir geti séð þær, það er í samræmi við eldri samning kjanorkuveldanna um eftirlit með takmörkunum kjarnorkuvopna. Úkraínustjórn reyndi líka að myrða forseta Rússlands með árás á þyrlu hans.
Hryðjuverkaflokkurinn sem stjórnar Úkraínu er orðinn helsta stríðsvá mannkyns eins og síðustu aðgerðir sýna. Honum er haldið gangandi af ESB og NATO sem stjórna hernaðinum frá herstöð Bandaríkjanna og NATO í Wiesbaden https://kyivindependent.com/zaluzhnyi-reveals-role-of-wiesbaden-hq-in-war-effort-calls-it-secret-weapon/
Íslendingar eru því samsekir. https://www.frjalstland.is/2023/12/19/stridsundirbuningur/#more-3186
Undirbúningur árásarinnar á sprengjuflugvélarnar stóð lengi og var upprunalega hjá Bidenstjórninni. Kænugarðsstjórnin hefur enga getu til þess að framkvæma slíka aðgerð, árásinni var stjórnað frá NATO. Morðtilraunin gegn forseta Rússlands, drónaárásin á þyrlu hans, er eins og árásin á kjarnorkusprengjuflugvélarnar ætluð til þess að spilla friðarumleitunum forsetanna Trump og Putins og til þess að koma af stað stórstyrjöld. Eins og við var að búast tilkynntu Rússar Bandaríkjunum að árásirnar væru svo alvarlegar að þeim yrði svarað. https://www.youtube.com/watch?v=WCkl63N84s4
Almenningur sem horfir á vestræna fjölmiðla verður að átta sig á að "fréttir" sem koma frá Úkraínu eru stríðsáróður og yfirleitt uppspuni í afgerandi þáttum. Fjölmiðlar Vesturlanda dreifa þeim ósíuðum. Til dæmis voru "upptökurnar" af sprengingum sprengjuflugvélanna greinilega fengnar úr tölvuleikjum og fréttirnar af þeim uppblásnar þó um hafi verið að ræða kjarnorkuvopnaflugflota eins helsta kjarnorkuvopnaveldisins.
Flokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 6.6.2025 kl. 00:46 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning