Stríðsáætlunin
29.5.2025 | 16:36
Ráðherraskvísurnar okkar skreppa til Brussel og fá gott franskt vín, klapp á öxlina og gervibros frá stríðsmöngurum ESB og NATO. Og lofa svo að "Ísland taki þátt í auknum vörnum Evrópu" (áfram og vaxandi milljarða austur í svindlið vegna Úkraínu). Strákarnir okkar verða hermenn og fá hríðskotabyssur og flugskeyti til þess að skjóta á Rússa. Kannske líka dróna eins og Úkraína fær frá NATO til þess að skjóta á Moskvu og þyrlu Pútíns. Það er synd, Rússar eru, ásamt með Könum, okkar traustustu vinir.
Norðurlandaþjóðir eru of miklar gungur til þess að standa með okkur. En Bretar senda sína ráðherra hingað til þess að æsa til stríðs, eina þjóðin sem hefur sýnt Íslendingum fjandskap (á 15 öld, Tyrkjarán á 17. öld, hernám 1940, efnahagsárás 1953, herskipaárásir 1958-1976, hryðjuverkalög 2008) og eru líklegir til þess að leggja Ísland undir sig, herstrákarnir okkar þurfa að geta varið okkur fyrir þeim.
Evrópusambandið samþykkti nú 150 milljarða evra í vopnavæðinguna gegn árásum Rússa á Evrópusambandið! En heildarpakkinn er 800 milljarðar til þess að undirbúa alsherjarstríð við Rússland https://www.france24.com/en/live-news/20250527-eu-approves-150-billion-euro-loan-scheme-to-rearm
Það er auðvitað heimsveldið Bandaríkin sem segir Evrópuleppunum fyrir verkum: " minnst 4% til varnarmála"! Það á að duga til þess að V-Evrópulönd geti haldið Rússum í stríði meðan Bandaríkin eru að eyðileggja aðrar þjóðir en Rússa og Úkraínumenn.
Rússar hafa aldrei haft áform um að leggja undir sig ofbýla og fátæka Vestur-Evrópu, stríðsæsingarnar gegn þeim koma frá heriðnaðinum, heimskum stjórnmálamönnum og hefnigjörnum stríðsþjóðum Vestur-Evrópu sem hafa tapað öllum sínum stríðum gegn Rússum.
Meginflokkur: Evrópumál | Aukaflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 18:23 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning