Frelsishetja Breta
4.5.2025 | 15:36
Nigel Farage, maðurinn sem frelsaði Breta úr heljargreipum Evrópusambandsins (og EES þar með), hefur nú unnið mikinn sigur í svæðiskosningum í Bretlandi. Gömlu flokkarnir guldu afhroð.
Það stefnir í að umbótaflokkur Farage, Reform UK, geti orðið næsti stjórnarflokkur Bretlands. Þetta eru gleðifregnir fyrir Breta sem hafa verið í kverkataki ráðvilltra stjórnmálamanna Íhaldsflokks og Verkamannaflokks sem hafa sturtað Bretlandi í bábiljur, orkuskort, innflytjendavanda og stríðsæsingar og sett efnahag almennings á hliðina.
https://www.telegraph.co.uk/politics/2025/05/02/eight-charts-show-scale-reform-victory/
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning