Straumlaust
29.4.2025 | 14:20
Heppni að sólin skein glatt á Spáni, rafmagnið fór af og slokknaði á öllum græjunum. En Spánarsólin náði ekki að kynda sólorkuverin og gefa nóg rafmagn! Og vindmyllurnar voru litlu betri.
Og vararafstöðvarnar ekki tilbúnar svo rafmagnið fór af Spáni. Grænorkuverin eru þannig að það þarf jafn stór alvöru orkuver (olíu-, gas-, kola-, kjarnorku- eða vatnsorkuver) við hliðina til að taka upp sólar- og vindleysið þegar slokknar á grænorkuverunum.
Vind-og sólorkuver eru dýr í rekstri, stopul, bilgjörn og þola illa truflanir en koma oft af stað truflunum í rafkerfinu. Flókin stýritæki ruglast, flutningskerfið hættir að virka.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/04/29/hefdbundnu_virkjanirnar_redu_ekki_vid_verkefnid/
https://www.frjalstland.is/2024/04/16/vaxandi-andstada-gegn-vindmyllum-og-solorkuverum/
https://www.frjalstland.is/2024/10/13/danskur-vindur/
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Alveg ótrúlegt hvað evrópsk stjórnmálastétt er léleg og illa að sér. (hafa svo mikið að aðstoðarmönnum að þeir kynna sér sjaldnast málin sjálfir) Þá er þetta fyrsta kynslóð stjórnmálamanna í heimssögunni, sem vinnur að því að gera lífskjör fólksins verri og í Evrópu, að álfan dragist aftur úr varðandi framleiðslu og lífskjör. Meira að segja Tony Blair er ofboðið.
Jón Magnússon, 30.4.2025 kl. 09:36
ESB ætlar sér líka að stjórna raforkukerfinu (og öðrum auðlindum) á Íslandi sbr
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/04/30/akvordun_esa_komi_a_ovart/
Grímur Kjartansson, 30.4.2025 kl. 14:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.