Kjarnorkuver í hættu
7.10.2024 | 17:44
Njósnarar Breta og Bandaríkjanna hjálpuðu Úkraínustjórn að skipuleggja eyðileggingu kjarnrokuversins í Kúrsk segir njósnastjóri Rússlands. https://www.rt.com/russia/605375-kursk-nuclear-threat-svr/
Úkraínuher réðst inn í Kúrsk hérað 6 ágúst sl. en var stöðvaður nálægt landamærunum af rússneska hernum. Úkraínuher (það er drápssveitir á vegum NATO og ESB) halda áfram að senda sprengjuskeyti á Kursk kjarnorkuverið sem Rússlandsher hefur hingað til skotið niður. Kænugarðsstjórnin reynir stöðugt að sprengja Zaporozhie kjarnorkuverið sem stendur við stórfljótið Dnépr.
Það er orðin brýn nauðsyn fyrir nágrannalönd Úkraínu, og reyndar heimsbyggðina, að láta hryðjuverkastjórnina í Kænugarði hætta hernaði og hryðjuverkunum áður en nýtt Chernobylslys verður.
Meginflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Aukaflokkur: Umhverfismál | Breytt s.d. kl. 17:52 | Facebook
Athugasemdir
,,Það er orðin brýn nauðsyn fyrir nágrannalönd Úkraínu, og reyndar heimsbyggðina, að láta hryðjuverkastjórnina í Kænugarði hætta hernaði og hryðjuverkunum áður en nýtt Chernobylslys verður''
Er þá ekki rétt að óboðni gesturinn fari heim
Hallgrímur Hrafn Gíslason, 8.10.2024 kl. 12:01
RT , russian times. Getur örugglega fundið meira um þetta í Vikunni eða Séð og heyrt. Pottþétt heimild.
Höfundur ókunnur, 12.10.2024 kl. 10:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.