Ár glataðra tækifæra
29.12.2023 | 22:14
Íslendingar náðu ekki að endurræsa uppbygginguna og þaðan af síður sjálfstæðisbaráttuna á árinu sem er að líða heldur sukku dýpra í stöðnun og undirlægju.
Uppbygging orkukerfisins er strand og engin iðjuver byggð. Orkusalan komin í skúffufyrirtækjakerfi EES (kallað "markaðsvæðing"!). Orkulindir framtíðarinnar, djúpvarminn og Drekasvæðið, á hakanum. Landbúnað er ESB-regluverkið að afmá. Braskpeningar og álögur i loftslagssvindlinu flæða úr landi. Fátæktin blaktir, "fjárfestar" braska með íbúðir og felufé. Bankakerfið og fyrirtækin eru undir vaxandi áþján Brussel. Óþörfum Brussel-stofnunum fjölgar enn. Nytjaland, fyrirtæki og auðlindir færast á hendur erlendra eigenda. Ísland er að glata sínu tungumáli.
Ísland styður ennþá sríðsrekstur hernaðarbandalaganna ESB/NATO sem kostar þúsundir mannslífa og mætir vaxandi andstöðu jarðarbúa. https://www.frjalstland.is/2023/12/28/thetta-er-ordid-nog/
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 23:35 | Facebook
Athugasemdir
Ísland þarf mun fleiri fullveldissinna á Alþingi og forseta á Bessastaði sem virðir stjórnarskrá íslenska lýðveldisins. Björgum Íslandi! Gleðilegt ár 2024!
Júlíus Valsson, 30.12.2023 kl. 20:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.