Að flosna upp
17.11.2023 | 12:53
Við erum búin að missa stjórn á landbúnaðinum. Sveitafólk Íslands flosnar upp eins og á jaðarsvæðum ESB/EES.
Hefur þú tekið eftir að matvöruverslanir hér eru alltaf fullar af innfluttu grænmeti og matvælum eins og framleidd eru hér?
Veistu að flutt eru inn niðurgreidd og undirmálsmatvæli frá ESB/EES?
Veistu að það er meiri hætta á sýklum í matvælum frá ESB/EES, jafnvel sýklalyfjaþolnum sýklum?
Veistu að matvæli frá ESB/EES innihalda meir af eiturefnum en íslensk?
Veistu að auðmenn í EES mega kaupa jarðir hér í samkeppni við Íslendinga?
Veistu hvaða þjóðir hafa besta heilsu? Svar: Litlar norrænar og fjallaþjóðir sem styrkja og vernda sinn landbúnað, Noregur, Ísland, Svíþjóð, Sviss.
Veistu að landbúnaður veitir þúsundum störf?
Veistu að afskipti, regluverk og innflutningur frá ESB/EES standa landbúnaði Íslands fyrir þrifum?
https://www.frjalstland.is/2020/05/31/endurreisn-landbunadarins-fljotvirk-efnahagsadgerd/
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Evrópumál, Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 19:59 | Facebook
Athugasemdir
Það eru einhver ,,spúki" öfl í heiminum að koma því til leiðar að heilsan okkar og lífslengd, sé tekin niður með ýmsum hætti.
Frelsi, andlegt heilbrigði, og velmegun á bara að vera fyrir útvalda.
Ef þú ert ekki spilttur stjórnmálamaður, eða fjármagnseigandi, áttu litla von því miður.
Loncexter, 17.11.2023 kl. 18:03
Hvernig heldurðu Loncexter að stjórnendum þessa lands hugnist að lesa og halda sig þessi töldu meintu öfl?
Eigum við þá ekki rétt til varnar í orðum og óhlíðni;svona án handalögmála að sanna "spúkið"...
Helga Kristjánsdóttir, 18.11.2023 kl. 22:11
Eina framtíð Íslendinga er að flytja til austur Síberíu. Íslenska eyjan er úthverfi í Brussel og mun aldrei aftur verða Íslensk.
Guðjón E. Hreinberg, 19.11.2023 kl. 01:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.