Úkraínunasisti heiðraður

war-5064697_960_720Ráðamenn Kanada eru að verða eins aulalegir og ný-nasistabullurnar í Úkraínu. Nú létu þeir leppforsetann úr Kænugarði plata inná sig gömlum úkraínunasista úr SS og heiðruðu hann sem hetju fyrir að hafa drepið Rússa í seinni heimsstyrjöldinni en þá voru Rússar bandamenn Kanada! Trudeau forsætisráðherra Kanada og Zelensky fögnuðu í vímu og þing Kanada með. https://www.mbl.is/frettir/erlent/2023/09/25/thingforseti_bedst_velvirdingar_a_glappaskoti/

Eins og kunnugt er fór mikil hersing nasista til Kanada og Bandaríkjanna eftir tap þeirra gegn Rússum í Berlín 1945, þeirra arfur virðist lífseigur þar vestra og þeir njóta enn viss stuðnings, kannske ekki að undra, þessi þjóðfélög eru að leysast upp fyrir tilstilli niðurrifsafla.

Leiksýningar um hryðjuverkastjórnina í Úkraínu halda áfram í NATO og ESB. Zelensky hefur reynst góður áróðurslúður hennar. Forustumenn margra Vesturlanda eru búnir að skjóta sig í báða fætur með þátttöku í hernaði Kænugarðsstjórnarinnar þó stuðningsríkjum fækki óðum eftir því sem rétta eðli Úkraínustríðsins afhjúpast.

Nú hljóta forustumenn í NATO og ESB að láta þing sinna landa heiðra þjóðhetju Úkraínu, nasistaforingjann Stepan Bandera.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband