Allt í plati
13.8.2023 | 18:08
Evrópusambandið hunsar loftslagsskuldbindingar sínar en heimtar fulla hlýðni af EES-ræflunum úti í Atlantshafinu.
Nú stimplar Evrópusambandið kolaorkuver sem græn (það er auðvitað helv. Rússunum að kenna, búið að banna gasið þaðan og sprengja leiðsluna).https://www.lemonde.fr/en/economy/article/2022/09/02/despite-climate-commitments-the-eu-is-going-back-to-coal_5995594_19.html
Og það er líka búið að stimpla gasorkuverin græn! https://www.spglobal.com/marketintelligence/en/news-insights/latest-news-headlines/eu-parliament-greenlights-gas-nuclear-in-green-taxonomy-in-final-vote-71057851
Það er í lagi að nota jarðefnaeldsneyti ef maður er Evrópusambandið. Eyjarskeggjar úti í Atlantshafinu verða aftur á móti að borga grænar álögur á flugvélar og skip sem fara yfir hafið en í ESB þarf ekkert svoleiðis, bílar og járnbrautir komast allt.
Evrópusambandið er byggt á blekkingum og starfar með blekkingum.
Meginflokkur: Evrópumál | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:12 | Facebook
Athugasemdir
þetta segir okkur hvað koma skal,eins gott að fara styrkja varnirnar nokkuð sem heilir og sannir Íslendingar hafa frá upphafia umræðunnar um ESB,inngöngu,varað við.
Helga Kristjánsdóttir, 13.8.2023 kl. 18:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.