Breska ógnin
21.5.2023 | 14:31
Breska heimsveldið og dræsur þess hafa herjað á heimsbyggðina í hálft árþúsund. Frá því Ísland varð lýðveldi hefur Bretland níu sinnum reynt að koma Íslandi á kaldan klaka, síðast með því að loka bankakerfinu og reyna að setja ríkissjóð i þrot.
Bretar eru stríðsþjóð og alltaf til í stríð, þegar Ameríka fer í stríð fá þeir oft að vera með af því að þeir eru í NATO þó þeir geri lítið gagn en alltaf til i að hæla sér ef Kanarnir eða aðrir bandamenn þeirra vinna. Reyndar eru líka okkar hernaðarsinnuðu frændur Danir og Norðmenn "viljugar þjóðir" í manndráp og hryðjuverk Kananna og NATO/ESB, hvort sem er geislavirk árás á Fallujah eða sprengingar á gasleiðslum Rússa.
Íslendingar kynntust gáfnafari breskra herstjóra í hernámi Íslands 1940. Það virðist ekki hafa batnað, nú hafa þeir sent hryðjuverkastjórninni í Kænugarði fallbyssuskot með geislavirku úraníum. Eins og við var að búast sprengdi rússneski herinn geymsluna með úranskotunum og öðru stríðsdóti frá NATO/ESB í loft upp.
Geislavirkt ský ferðast nú yfir ESB/NATO-lönd og stefnir á Bretland, breska ógnin heimsækir þá sjálfa.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt 22.5.2023 kl. 20:27 | Facebook
Athugasemdir
Þökk fyrir að vekja athygli á þessu sem öll heimsbyggðin þarf að frétta um. Hvenær verður settur upp alþjóðadómstóll gegn glæpum "bandamanna"? Á almenningur í þessum löndum að vera einsog sauðir sem láta slátra sér eða manneskjur með sjálfsbjargarviðleitni?
Það er víst langur listi sem "bandamenn" hafa gert heimsbyggðinni. Sigurvegarinn skrifar söguna og leyfir sér í kjölfarið að skilgreina rétt og rangt.
Almenningur þolir afleiðingarnar.
Ingólfur Sigurðsson, 22.5.2023 kl. 10:19
Ef Bretar hafi gert 9 tilraunir til að hvekkja íslendinga, eiga þeir ekki von á góðu.
Ísland hefur verið þjóð Jesú um ómunatíð.
Jesú kann alveg að tækla þá sem bögga hann, og hans fólk !
Loncexter, 23.5.2023 kl. 10:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.