Skotmörkin eru komin upp

war-ship-146209_960_720Kanar og Norsarar klipptu á leiðslu Rússa á alþjóðlegu hafsvæði í Eystrasalti og vola nú um að Rússar undirbúi að klippa á þeirra leiðslur. Kaldastríðsnátttröllin okkar kyrja með og segja að Rússar undirbúi að klippa á krítíska innviði (trjáboli frá Krít) og heimta meira hernaðarbrambolt.

Ódýrast væri fyrir Kanana og Norsarana að borga Rússum og Þjóðverjum skaðann og gera við leiðsluna. En skemmdarverk NATO ganga ekki út á svoleiðis heldur að egna Rússa í meira stríð og fá afsakanir til að heimta meiri peninga í vopn.

Nú er verið að stilla upp skotmörkum hér fyrir eldflaugar frá okkar bestu óvinum. E-6B Mercury þotan, stjórnstöð kjarnorkustríðs, var hér í mars. https://twitter.com/hashtag/Iceland?src=hash&ref_src=twsrc%5Etfw. Kjarnorkukafbátar koma nú til Helguvíkur, eftirlitsskip og herskip koma líka.

Okkar tryggustu óvinir ráðast ekki á okkur en gætu sprengt norskt og amerískt NATO/ESB-dót ef Norsarar, Kanar og Brussar halda árfam að urra og glefsa eins og óðir hundar. https://www.frjalstland.is/2022/08/19/island-tekid-i-strid/

Friðrik Daníelsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórhallur Pálsson

Þú ert greinilega alvarlega lasinn maður.
En ég óska þér góðs bata, með góðra manna hjálp.

Þórhallur Pálsson, 23.4.2023 kl. 12:52

2 identicon

Hvað í fjandanum er ég bara að lesa.Hálflæsi og veikur maður er að reyna að sannfæra alla um að Rússar séu að gera allt rétt og NATO sé að koma í veg fyrir að þeir geri það.Sorglegt mál.

Mickie (IP-tala skráð) 25.4.2023 kl. 12:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband