Klárir krakkar
14.4.2023 | 15:04
Julian Assange, Chelsea Manning, Edward Snowden og nú Jack Teixeira eru kláru tölvukrakkarnir sem hafa kjark til að fletta ofan af stríðsmangi okkar bandamanna, Bandaríkjanna og NATO.
Nýjasta afhjúpunin er af lygunum um Úkraínustríðið en þangað eru komnir (fyrir utan öll vopnin, miðunartækin og málaliðana) fjöldi "hernaðarsérfræðinga" NATO sem stjórna hernaðinum. Stærsti hópurinn eru Bretar sem kemur okkur Íslendingum ekki á óvart, þeir sleppa sjaldan tækifæri til að komast í stríð.
Þessir framtakssömu kláru krakkar, sem eru óðara gripnir og kvaldir, eru að reyna að forða meiri manndrápum.
Meginflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:52 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.