Trúarleiðtogar
9.11.2022 | 14:32
halda þrumandi ræður yfir heittrúuðum og heilaþvegnum á loftslagssirkusnum í Sharm El-Sheikh og spá Sódómu og Gómorru. Guterres: "Hætta á sameiginlegu sjálfsmorði". Al Gore: "Veljið líf yfir dauða".
Þetta er í 27. skiptið sem umhverfisprelátar spá endalokum. Spárnar hafa ekki ræst.
Leiðtogar þróunarlanda heimta peninga án þess að segja hvernig á að nota þá eftir að þeir koma í vasa leiðtoganna.
Það kólnar stöðugt og hefur gert hér í Atlantshafinu í nærri 2 áratugi (Frjálst land). Hitinn inn á landinu hefur farið dalandi á sama tíma (Trausti Jónsson, stólparit). Októrberhitinn í Tókío hefur farið lækkandi í um 3 áratugi (JMA). Hafísinn hefur verið í vexti í áratug (NSIDC).
Skógareldar, hitabeltislægðir og flóð eru ekki algengari en áður, aðeins lygaflóðið.
Evrópusambandið endurræsir nú kolaorkuver samkvæmt Parísarsamkomulaginu.
Meginflokkur: Evrópumál | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:02 | Facebook
Athugasemdir
Og fólk gleypir við þessu. Við erum í röngum bransa.
Ásgrímur Hartmannsson, 10.11.2022 kl. 16:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.