Í EES og í stríð
16.8.2022 | 20:23
"Evrópusambandið er að fullu í stríði við Rússland, forgangsmál þess var að gera Úkraínu og Moldovu umsóknarríki til þess að ögra Pútín" segir forseti Serbíu (auðvitað útmálaður sem hægri öfgamaður í fjölmiðlum Vesturlanda).
ESB er orðið stríðsbandalag, skriffinnar þess segja að bandalagið sé í stríði.
Ísland er þátttakandi í aðgerðum og stríðsrekstri ESB vegna EES-samningsins sem veitir ESB ákvörðunarvald um refsiaðgerðir gegn öðrum þjóðum og dregur Ísland í vopnaflutninga til átakasvæðisins.
Íslendingar verða að spyrna við fótum og draga sig úr stríðsrekstri ESB. Rússland hefur lengi verið eitt mikilvægasta samskiptaland Íslendinga með marga sameiginlega snertifleti. Aðild að stríðsrekstri ESB og NATO verður afdrifaríkari með hverjum deginum
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:28 | Facebook
Athugasemdir
Var ég að lesa að Rússland og viðskipti við Rússa sé eitthvað sem þú vilt ekki missa og kallar rússa mikilvægt samskiptaland?
- Hvað er felst í þessum samskiptum okkar við Rússa? Og hvernig er betra en að yfirgefa Nato sem gætir lofthelgi okkar og þar með ver okkar sjálfstæði.
Ég vona að þetta með viðskiptin við Rússlandi og mikilvægi þeirra umfram stríðsrekstur og þau mannréttindabrot og viðbjóð sem Stríðsrekstur Rússlands hefur haft í för með sér og svo ef ESB er að gera það sem þeir geta til þess að stöðva viðbjóðinn sem Rússland hefur upp á sitt eins dæmi orðið til þess að flóttafólk sem misst hefur allt sitt og hafa ekkert nema þá von að ESB ríki taki við þeim vegna þess að ég geri ekki ráð fyrir því að fólk hafi ekki áhuga á því að flytja heim og hvað þá til rússland sem aldrei hefur verið Úkraínu annað en hættuleg ógn sem enn og aftur verða úkraínu staðfesting á að ef einhver getur hjápað þeim þá held að enginn vilji í úkraínu hafa Rússland sem yfirboðara og kvalara hvenær og hvernig sem stríðið endar -
En mikið vona ég að okkar AÐAL viðskiptasamband vegna aðgangs okkar að fjórfrelsinu sem EES samningurinn gefur okkur muni hafa meira vægi en mikilvægi þess sem okkar meinta eitt mikilvægasta samskiptaland okkar Rússa hefur. ESB hefur beitt sér til þessa án þess að Nató hafi annað gert en verið tilbúið að grípa inn ef og þegar rússar sýna einhverju af lönudum Nató tilburði. Vonadi þarf ekki beina aðild ESB eða NATO og viðskiptaþinganir ESB munu verða rússum Þungbærar en Rússland hlýtur að eiga bágt með að verja það að þeir séu að verja sig með innrás í land sem ekkert hefur með ESB og NATO að gera nema bara vegna þeirrar góðviðldar að geta flúið stríðsátök vegna stríðs sem er í raun vörn þeirra sem þar eiga heima gegn innrás Rússa og sorglegt að Pútín murki lífið úr þjóð og, þú sem skrifar þennan viðbjóð í krafti nafnleyndar og vegna þess að skoðanafrelsi þitt er varið í lögum okkar og ekkert sem bannar það en þú yrðir í landi Pútíns mikill bloggari og jafnvel þeirra aðal fréttaritari þegar ísland yrði rússnesk eyja í norður Atlantshafi eða hvað? frelsi bloggara er ekkert nema algört bann og þú hefur sem einstaklingur skrifað pistil í krafti þess að þú mátt segja þetta þó ég reiðist og að hér þurfum við stundum að umbera fávita eins og þig og það er gott að þú áttir þig á því að ekkert getur stutt það að Pútín geti réttlætt þetta á þeim veika grundvelli að honum finnist honum ógnað vegna þess að Sjálfstæð þjóð sem Rússland hafa ekkert vald yfir gæti sótt um aðild að ESB og Nató - Hvernig réttlætir það Innrás og viðbjðinn gagnvart þjóð eins þeir ráði örlögum sjálstæðrar þjóðar. Það er ekki skrítið að Finnland og Svíþjóð hafi hoppað svo að segja beint í fang Nató.
Ég get ekki annað en fyllst reiði þegar ESB og Nato eru einhvernveginn orsök þessa alls eða þannig get ég ekki lesið eða skilið þig öðruvísi og hver sem skrifar þetta hefur vegna þessa sagt að Rússar séu bara að verja sig með Því að murka lífið úr nágrannaþjóð sinni en algjörælega vegna þess að ESB og NATO hafa ögrað Pútín - Þú skalt ekki voga þér að allt þetta sé milvægara en en fiskur sem við seldum til Rússlands sama hve frábær viðskiptafélagi Rússland var fyrir okkur þá vona ég að þau viðskipti kvikni aldrei á meðan rússland hefur slíka tilburði vegna þess að Úkraína má ekki gera samninga um framtíð sína og öryggi nema við rússa annað er ögrun og fyrir þér finnst algjörlega eðlilegt að þeir ráðst þar inn með allan þann viðbjóð sem þar hefur staðið yfir og segja að vopnaflutningar í landhelgi okkar sé eitthvað sem við ættumn að hindra - Öll vopn sem stuðla að því að enda viðbjóðinn sem Rússland býður upp á skal ég stoltur verða þannig sem Íslendingur aðili að stríðinu með beinni aðild því EES samningurinn er ekki samninigur milli ESB og EFTA um að aðstoða hvort annað ef hitt verður aðili í milliríkjadeilu eða standi í stríðsrekstri - sá viðauki hefur ekki verið birtur enn allavega- Ég vildi óska að ég gæti með einhverju móti gert eitthvað meira og þakka fyrir að fávitar eins og þú skrifi viðbjóðinn án þess að koma fram undir nafni og að viðbjóðurinn því nafnlaus aumingi sem ætti að skammast sín fyrir að láta svona stórkostlegar skýringar á því hvernig hægt er að lesa það sem maður vill ef mannvonska og skítlegt eðli hrjáir innræti þess sem ekki þolir að greina frá því hver hýsir slíkan viðbjóð en eg bið allavega um að ég fái ekki þær upplýsingar
Elis Bergur Sigurbjörnsson (IP-tala skráð) 17.8.2022 kl. 12:56
Elis Bergur, stundum er bezt að geyma það sem maður skrifar og endurorða það þegar manni er runnin reiðin. Ég veit ekki hver skrifar hér undir nafninu Frjálst land, en margar góðar greinar hafa verið hér um sjálfstæði Íslands.
Að Rússar murki lífið úr Úkraínumönnum? Þetta er stríð. Það gerist í stríði.
Tökum annað dæmi. Ef Rússar eða Bandaríkjamenn réðust á landið, myndir þú ganga í íslenzkan her og verða byssufóður? Myndi ég gera það? Það þarf fórnfýsi og maður getur virt Úkraínumenn fyrir það, en þjóð sem ekki berst gegn innrásarliði verður síður fyrir mannfalli. Ég er næstum alveg viss um að Ísland yrði auðveld bráð hernaðarinnrásar, og er auðveld bráð hugmynda Vesturlanda.
Að tala um að Rússar leiki sér að því að fjöldamyrða Úkraínumenn finnst mér ekki alveg lýsa þessu rétt. Rússar eru vanir stríðum, til dæmis í Tsjetsjeníu. Þeir mæta mótspyrnu. Þetta gerist í stríðum þegar óbilgjarnir mætast með styrk.
Það kom Selensky ekkert á óvart að Rússar réðust á landið. Hann bjóst við því, greinilega búinn að fá uppeldi sem strengjabrúða að vestan.
Fólk getur ekki allt verið sammála. Sem betur fer.
Spyrjum að því hversvegna Vesturlönd leggja ofuráherzlu á að "vestræna" allan heiminn.
Rússar lánuðu okkur peninga í Hruninu 2008 á meðan Norðurlöndin hunzuðu okkur ásamt Bandaríkjunum og öðrum. Þó eigum við menningarlega mest sameiginlegt með Norðurlöndunum, og Marshallaðstoðin í kalda stríðinu sýndi að Bandaríkjamenn geta lánað peninga þegar það hentar þeim og þeirra hagsmunum.
Hvar var þá hin margrómaða gæzka Vesturlanda, þegar Rússar lánuðu Íslendingum peninga og hryðjuverkalög voru sett á landið?
Ingólfur Sigurðsson, 17.8.2022 kl. 23:39
Ingólfur, hvað er hægt að kalla menn, sem fullyrða að fjöldamorð, nauðganir og stórþjófnaðir, séu sjálfsvörn? Ef það má ekki kalla þá fífl, þá a.m.k. verulega sjúka einstaklinga.
Theódór Norðkvist, 18.8.2022 kl. 06:18
Svokallaður viðbjóður marg endurtekinn er til skammar hjá Elís Berg, Theódór.---Og hver skal ekki voga sér? Ég þakka fyrir að fá að tjá mig í okkar eigin landi
Helga Kristjánsdóttir, 18.8.2022 kl. 09:20
Það er ánægjulegt að fólk með báða fætur á jörðinni finnist á landi hér og er ég þá auðvitað með þau Ingólf og Helgu í huga, þar sem það er eðlilega erfitt að meta ástandið aðeins frá annari hliðinni.
Jónatan Karlsson, 18.8.2022 kl. 16:54
Helga, ef það væri sama stjórnarfar hér á landi og er hjá vinum þínum í Rússlandi og Pútín er að reyna að sprengja inn í hausinn á íbúum Úkraínu, þá fengirðu ekki að tjá þig. Væri búið að setja þig í fangelsi.
Jónatan, eru tvær hliðar á ríkisreknum hryðjuverkum Rússahers? Ef svo er, þá eru þær báðar jafn ógeðslegar. Rússneski herinn er nú stærstu hryðjuverkasamtök heimsins, hafa velt íslamska ríkinu af toppnum.
Theódór Norðkvist, 18.8.2022 kl. 19:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.