Tyrkir til bjargar

vikingcharacter-5959683_960_720Tyrkir reyna nú að bjarga Aust-Norðurlöndum frá því að lenda í NATO. Líklega rennur þeim blóðið til skyldunnar, Væringjar sem réðu sig sem málaliða urðu sumir að tyrkneskum borgurum. Og ekki má gleyma að Óðinn, sem var Rússi ættaður frá Azov, átti lendur í Tyrklandi einum 1000 árum áður, það eru því margir Tyrkir afkomendur Svía (Snorri Sturluson, Heimskringla)

Tyrkir eru í NATO og þekkja vel stríðsæsingarnar. En þeir eru ekki í ESB og ekki víst að þeir vilji blanda sér of mikið í endurvakta hernaðardraumóra gömlu stríðsþjóðanna. En það eru auðvitað þær þjóðir, ESB-leiðtogarnir, sem hafa afgerandi áhrif á að Svíar og Finnar eru að missa hlutleysið og gefast upp fyrir stríðsæsingum.

Azov-stálverið er nú aftur að verða Rússneskt, 260 Úkraínumenn gáfust upp fyrir Rússum þar í gær (16.5), þar af margir úr ný-nasistasveitum Azov-herdeildarinnar.

 

Sammanfattning på svenska:

Turkarna försöker nu rädda Öst-Norden från att hamna i NATO. Möjligtvis är det inte bara svenska importen av terrorister sem är orsak till Turkarnas motstånd. Det är kanske släktskapet med Väringarna och tidigare själva Oden (han var Ryss, från Azov vid Donmynningen och godsägare i Turkiet) som väcker Turkarnas omtanke. Turkarna känner krigshetsarna i NATO bättre än många. Men det är troligen förlusten av självständighet p.g.a EU-medlemsskapet som har gjort att Svenskar och Finnar har blivit för modlösa för att upprätthålla neutralitet och alliansfrihet och ger upp för krigshetsarna. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Á sínum tíma var ein og aðeins ein forsenda fyrir aðild Tyrklands að NATO. Það var eingöngu til að geta komið kjarnavopnum fyrir í skotfæri við Sovétríkin. Með tilkomu langdrægra eldflauga (ICBM) fyrir mörgum áratugum síðan, hvarf sú eina forsenda.

Síðan þá hafa Tyrkir ítrekað sýnt fram á að þeir eiga nákvæmlega enga samleið með hinum NATO ríkjunum.

Verði aðild Svíþjóðar og Finnlands samþykkt af öllum nema Tyrkjum blasir við nýtt NATO, án þeirra.

Enda löngu tímabært.

Guðmundur Ásgeirsson, 17.5.2022 kl. 21:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband