Landvinningar ESB

riot-police-during-student-strike-450w-623531243_1339811.jpgESB hélt að búið væri að klófesta Úkraínu í nóvember 2013 en þá ákvað lýðræðislega kjörin stjórn landsins að hafna ESB-aðild. Þá birtust "fjárfestar" og NGO frá ESB- og NATO-löndum og Obama/Biden-stjórnin og fjármögnuðu götubardaga í Kænugarði sem úkraínskir öfgamenn sáu um. Lögleg stjórn var flæmd frá og leppar ESB- og NATO-landa, úr öfgasöfnuðunum, settir í valdastólana (vorið 2014). Þeir og arftakar þeirra hafa með öðrum voðaverkum rekið hernað gegn eigin þegnum https://rumble.com/vw7ykf-ukraine-on-fire-oliver-stone-2016.html

Úkraínustjórn er búin að missa grímuna og afnema fjölmiðlafrelsi og banna stjórnarandstöðuflokka. Fréttir þeirra af voðaverkum Rússa halda áfram að vaða uppi í falsfréttafjölmiðlum hér, sjúkrahús, leikhús og verslunarmiðstöðvar sýndar sprengdar, voru í raun ónotaðar byggingar teknar undir hernaðarhreiður leppstjórnarinnar.

Lærdómurinn sem EES/ESB-sleikjur hér draga af Úkraínustríðinu er að Ísland verði að ganga í ESB. Lærdómurinn sem svinnir menn draga er að með blindri valdagræðgi og landvinningastefnu er ESB nú orðið orsök umbrota og blóðsúthellinga og vegna EES- tilskipanavalds þess hér orðið ógn við öryggi íslensku þjóðarinnar.

https://www.frjalstland.is/2022/03/07/utthensla-nato-og-esb-orlagarik-mistok/

þetta blog skrifar Friðrik Daníelsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þetta hélt eg,en mundi ekki i smáatriðum.  

Helga Kristjánsdóttir, 22.3.2022 kl. 19:37

2 identicon

Það er sorglegt að sjá gersamlega þekkingarlausan mann lepja upp áróður fasistans og KGB mannsins í Kreml. Ég þekki vel til í þeim löndum sem Pútín hyggst leggja undir hið nýja veldi Rússlands. Þar hefur ríkt ótti í mörg ár; kannski skilur þú það með tíð og tíma ef einhver hefur nennu til að stafa það ofan í þig. Ég veit samt ekki.

Þið, þessir örfáu uppvakningar fasismans/kommúnismans haldið ykkur á Moggablogginu. Ég hefði haldið að Árvakur væri vandari að virðingu sinni en svo að ljá þér, Páli Vilhjálmssyni og gyðingahataranum Þorsteini Scheving Thorsteinsson, pláss.

Einar .S. Hálfdánarson (IP-tala skráð) 22.3.2022 kl. 22:39

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Eru fréttir áróður komi þær ykkur illa? greinilega 2svar hefur færsla mín þurrkast út. 

Helga Kristjánsdóttir, 24.3.2022 kl. 01:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband