Falsfréttahrota
10.3.2022 | 13:57
Falsfréttirnar um rússnesku skrímslin verða æ óskammfeilnari. Leikarinn sem var gerður að forseta Úkraínu er hæfileikamaður í að auglýsa sig, hann kemst inn á helstu samkomur ráðamanna NATO og ESB þar sem hann heldur hjartnæmar leiksýningar og kemur stjórnmálamönnunum til að skæla.
Hann sagði nýlega að Rússar séu að fremja þjóðarmorð og hafi sprengt fæðingardeild i Mariupol. Þetta er dæmigerð rangfærsla sem falsfréttamiðlarnir lepja upp og endurvarpa.
Hið rétta er auðvitað að úkraínskir vígamenn höfðu tekið húsnæðð undir sinn hernað gegn íbúm svæðisins og rekið sængurkonur, ljósmæður og annað starfsfólk á braut. "Fæðingardeildin" var herstöð!
Framferði fjölmiðla er farið að líkjast því sem var í Kaldastríðinu þegar als kyns þursar og gróðabrallarar (hergagnaframleiðendur ofl.) héldu uppi lygum um Rússa með hjálp fjölmiðla.
https://www.bbc.com/news/live/world-europe-60685883
bloggið skrifaði Friðrik Danielsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:04 | Facebook
Athugasemdir
Það er andstyggilegt að lesa fyrirsögn um að Rússar hefðu gert loftárás á barnaspítala í Maríupol. Af því ég hef kynnst ýktum voðafréttum las ég áfram.og vonaði innilega að ekki hefði farið eins og maður gat búist við; Sprengjan er sögð hafa lent við spitalann.Henni er örugglega ekki beint að sjukrahúsinu. Vona að þeir semji um vopnahlé,en ekki tókst það i dag.
Helga Kristjánsdóttir, 11.3.2022 kl. 00:04
Hafi maður aðgang að Internetinu þá er þar gífurlegt magn af fréttum/upplýsingum
Í fréttaveitum þá er nú sjaldnast hrein lygi eða hreinn sannleikur en skoðun þess sem skrifar eða flytur "fréttina" má oft greina á milli línanna eins og sagt er.
Grímur Kjartansson, 12.3.2022 kl. 08:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.