Geta stöðvað stríðið strax
9.3.2022 | 16:23
Rússar setja þau helstu skilyrði fyrir að taka heim herliðið að Úkraína standi utan NATO og ESB og verði hlutlaus. NATO og ESB hafa því í hendi sér að stöðva drápin með einfaldri aðgerð: Yfirlýsingum um að Úkraína verði ekki tekin í NATO og ESB.
Landvinninga-og hernaðarstefna ESB og NATO standa í vegi fyrir friði í Úkraínu, NATO-lönd senda nú vopn til Úkraínu sem auka á og framlengja drápin, fullkomlega óábyrg framkoma.
Ef eitthvert frumkvæði væri í okkar mönnum ættu þeir að leggja til við "okkar bandamenn" í NATO og ESB að stríðið verði stöðvað án tafar, ekki með vopnum heldur fundum.
Bloggið skrifar Friðrik Daníelsson
Útþensla NATO og ESB örlagarík mistök
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Facebook
Athugasemdir
Vilja Rússar ekki líka fara fram á að það verði bannað að halda með Manchester United í Úkraínu? Fyrst þeir eru að fara fram á að félagafrelsi verði afnumið.
Síðan gætu þeir lika farið fram á að bannað verði að ganga í Bowlingklúbbinn í Kiev, eða skákklúbba sem eru vinsamlegir Gary Kasparov.
Um að gera að láta að kröfum þeirra sem eru á móti félagafrelsi, félagafrelsi er auðvitað stórhættulegt heimsfriðnum. A.m.k. virðist það vera álit klúbba sem hafa orðið frelsi eða frjálst í nafni félagasamtaka sinna.
Theódór Norðkvist, 9.3.2022 kl. 16:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.