NATO æsir til stríðs
7.2.2022 | 14:58
Áróðursmenn helstu NATO-landa dreifa nú áróðri um að Rússar ætli að ráðast inn í Úkraínu. NATO neitar að semja við Rússa um að minnka vopnaskak nálægt landamærum Rússlands. Við undirlægjurnar á Norðurlöndum dönsum með.
Þessi áróður er hreinar stríðsæsingar sem eru til þess að leiða athyglina frá miklum vanda sem þessar ríkisstjórnir NATO-þjóða eiga við að stríða. Bandaríkjastjórn gefst upp í Afganistan, ræður ekki við glæpagengin, vergang heimilislausra og síhækkandi orkuverð heimafyrir vegna heimskulegrar barátu gegn eldsneyti. Í Bretlandi segja menn að Boris eigi ekki að drekka bjór grímulaus í garðveislum en óvinsældir ríkisstjórnarinnar stafa af síhækkandi orkuverði vegna grænna stefnumála og meðfylgjandi dýrtíðar ("cost of living crisis").
Hvort NATO tekst að æsa Rússa upp í að taka Úkraínu, sögulega hérað í Rússaveldi, getur verið spurning um heimsstyrjöld eða frið.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Umhverfismál | Breytt s.d. kl. 15:24 | Facebook
Athugasemdir
Skuggastjórnvöldin á bakvið NATO eru og hafa verið að vona eftir einhverri góðri réttlætingu til að halda áfram, því að öll uppbyggingin hjá þeim og NATO þarf að getað haldið áfram. Í því þá að ógna og stuðla þannig að frekar sundrungu og óvináttu milli þjóða fyrir bæði vopnaframleiðendur og NWO skuggastjórnvöldin.
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 8.2.2022 kl. 16:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.