NATO að villast

beautiful-smiling-russian-girl-folk-costume-isolated-white-72009933_1335673.jpgNATO var stofnað til að berjast gegn Moskvu-kommúnismanum, við vorum með. Bardaginn vannst jólin 1991 en NATO hélt að það væri ómissandi og hélt áfram að berjast gegn Moskvu, kommúnistalausri, og tók að leggja A-Evrópu undir sitt hernaðarbrölt.

Norðurlandakratar hafa reynst sauðtryggir stríðsmangarar fyrir NATO sem hótar nú áður rússnesku héraði, Úkraínu, innlimun í NATO, safnar liði til innrásar og sendir þangað vopn. Rússar vilja ekki láta sitt gamla hérað undir ruplarana í Brussel og Washington en elliæra kratastjórnin, sem er sest í stólana þar, skilur það ekki og segist ætla að "verja Úkraínu"!

Úkraína hefur verið hluti af Rússaveldii, sem stofnað var í Úkraínu 882, lengur en elstu menn muna.  Við eyjarskeggjar fórum ekki með í NATO til að verja Úkraínu fyrir Rússum. NATO á að vera varnarsamtök Atlantshafslanda, ekki stríðsæsingabákn valdagráðugra stórvelda. Við vorum ekki með í að stofna svoleiðis félagsskap.

NATO ætti að einbeita sér að því að verja Atlantshafsþjóðirnar fyrir glæpagengjum, ofsatrúarmönnum, hælisleitendaflóðinu, hryðjuverkamönnum eða sjóræningjum. Og mögulegum hernaðarárásum, þær koma ekki frá Rússlandi. Nema bröltið í Biden og NATO flæmi Rússa í faðm Kínverja. Þá fara stríðsmangarar í felur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Biden stal 2020 kosningunum. Núna undir 30% kjósenda trúa á hann. Í desember 2020 var hann kallað fyrir dómi fyrir bekknum sem felony gjöld  með refsingu dauðarefsingar eða fangelsis í Úkrain.

Hann er í læti og vill drepa þá sem vilja hann fyrir dómi.

Merry (IP-tala skráð) 28.1.2022 kl. 12:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband