Græn nýsköpun

sitelogoSamtök iðnaðarins ætla að ganga í lið með stjórnvöldum við að koma á "kolefnishlutleysi" árið 2040 (tilskipanir ESB: https://www.althingi.is/altext/151/s/1190.html og https://www.althingi.is/lagas/151a/2012070.html)

Lykillinn er "græn nýsköpun" (Mbl 1.7.2021)sem hljómar eins og trúarjátning og hefur hingað til gengið út á umhverfisspillandi orkuver (s.s. vindmyllur og sólarpanela), dýra, mengandi og hættulega orkumiðla (s.s. rafhlöður og tilbúið eldsneyti) og umhverfisspillandi eða lélegt smíðaefni (s.s. gler og pappír). Semsagt afturhvarf til löngu aflagðra vinnubragða sem er andstæða nýsköpunar.

En varla er þörf að örvænta, "græna hagkerfið" er bara barnslega spennandi glærusýning fyrir hrekklausa grænjaxla.

https://www.frjalstland.is/2021/04/28/oraunsaear-tilskipanir-um-loftslagsmal/#more-2322


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

SI eru trú Glóbalistum eða hvað? "Vita þeir ekki að fyrir 11500 árum varð gífurleg hamfarahlýnun(án afskipta manna),þegar hitastig hækkaði um 10 stig eða meira á örstuttum tíma og jökulskyldirnir miklu bráðnuðu. Á sama tíma virtist hitinn hér hafa verið a.m.k. 4 stigum hærri en nú".Ég trúi því sem Vilhjálmur Eyþórsson skrifar og bætir við;

 Hvers vegna í ósköpunum erum við að berjast gegn þeirri   blessun sem endurhlýnun væri???  

Helga Kristjánsdóttir, 2.7.2021 kl. 01:10

2 Smámynd: Hörður Þormar

Nú er í uppsiglingu tæknibylting í sambandi við væntanleg orkuskipti. Miklar rannsóknir fara fram til finna aðferðir við að vinna orku úr sjálfbærum orkugjöfum í næsta nágrenni. T.d. eru væntanlegar sólarsellur úr lífrænum efnum sem eiga að vera a.m.k. jafngóðar og kísil-sólarsellurnar, en miklu ódýrari. Svo er fundin ný aðferð til að geyma vetni sem  pasta, eins og "tannkrem", í stað þess að geyma það undir miklum þrýstingi eða í fljótandi formi.

Þetta gefur Íslendingum gullið tækifæri og möguleika til að framleiða sjálfir allt eldsneyti sitt í stað þess að flytja það inn og taka þar með  þátt í að auka völd og áhrif óligarka og austurlenskra olíufursta.

                          Wasserstoff Powerpaste – 10 mal höhere Energiedichte und ungefährlich - Zukunft der Mobilität           

Hörður Þormar, 2.7.2021 kl. 13:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband