Grænt! Við höldum störfunum
15.2.2021 | 14:26
Landsvirkjun og ISAL gerðu nýjan raforkusamning til 15 ára, störf eins stærsta vinnustaðar landsins tryggð.
Grænt ljós. Áfram!
Landsvirkjun_og_Rio_Tinto_ná_samkomulagi
Besta fyrirtæki allra landsmanna, og mögulega okkar stjórnvöld líka, virðast sjá að atvinna helst ekki í landinu með eintómum tískustjórnmálum (sjálfbærni, kolefnishlutleysi, nýsköpun, grænum lausnum, vindmyllum, þjóðgörðum o.f.l.), það þarf að verja og efla arðbæra atvinnustarfsemi.
Iðnaður landsins á enn eftir að kljást við fleiri hindranir: reglugerðafrumskóginn og dýrar losunarheimildir ESB (hvergi til annarsstaðar) og samkeppni við ríkisstyrkta framleiðslu (Kína, ESB, Noregur o.fl.)
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:32 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.