Heimssýn um stjórnarskrártillögur

heimssynindex.jpgHeimssýn hefur sent Alþingi umsögn um þingmannafrumvarp um stjórnarskrá (mál 26. 151 þing). Heimssýn telur frumvarpið liðka fyrir innlimun í ESB og segir m.a.:

-"Frumvarp það sem hér er lagt fram inniheldur ákvæði um framsal ríkisvalds til erlendra aðila.- -Ljóst er að 113. grein miðar fyrst og fremst að því að auðvelda inngöngu Íslands í Evrópusambandið-"

Um EES: "-Stangist samningur á borð við EES-samninginn á við núgildandi stjórnarskrá er rétt að leysa það með því að taka viðkomandi samning til endurskoðunar eða segja honum upp, ekki að opna stjórnarskrá fyrir valdaframsali-"

Gegn þjóðarvilja: -" Ákvæði frumvarpsins um framsal valds til útlanda er til komið með einkennilegum hætti. Í undanfara starfs stjórnalgaráðs var ljóst að drjúgur meirihluti þjóðarinnar taldi, og telur enn, að standa beri vörð um fullveldi Íslands. Engu að síður var niðurstaða stjórnlagaráðs að liðka ætti verulega fyrir framsali fullveldis til Evrópusambandsins og er það tekið upp i frumvarpinu-"

https://heimssyn.blog.is/blog/heimssyn/entry/2257553/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þakka þetta framtak og vona að myndist breiðfylking Íslendinga sem stendur vörð um fullveldi landsins.

Helga Kristjánsdóttir, 21.11.2020 kl. 03:39

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Núgildandi stjórnarskrá segir:

47. gr.
Sérhver nýr þingmaður skal vinna drengskaparheit að stjórnarskránni, þegar er kosning hans hefur verið tekin gild.

Þingmenn hljóta að vera bundnir af slíkum eiðstaf og megi því ekki gera breytingar sem grafa undan þeirri stjórnskipan sem kveðið er á um í stjórnarskránni sem þeir eru þegar eiðbundnir við.

Guðmundur Ásgeirsson, 22.11.2020 kl. 00:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband