Dýrkeypt að hunsa WHO!

who-4984801_960_720_1361034.jpgsegir aðalritari Sameinuðu þjóðanna á þingi stjórnar WHO sem fer nú fram í fjarfundatækjum.

Dýrkeypt_ad_hunsa_leidbeiningar

Fulltrúi Kína, þar sem covidfaraldurinn kom upp og sem hylmdi yfir meðan WHO var í kaffi, er þegar búinn að flytja ræðu á þinginu.

Fulltrúi Taivan flytur enga ræðu. Kínastjórn bolaði Taivan úr félagsskapnum. En það var Taivan sem fyrst þjóða varaði við Covid-19 og náði fyrst tökum á faraldrinum. Ef einhver ætti að flytja ræðu um Covid-19 á stjórnþingi WHO er það Taivan.

Það er orðið dýrkeypt að treysta WHO. Það þarf að sótthreinsa stofnunina, frelsa hana frá Sameinuðu þjóðabákninu og endurræsa með óspilltu fólki og færustu vísindamönnum fyrir næstu Kínaplágu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Dýrkeypt gæti líka orðið að treysta WTO.  Amk ef eitthvað er að marka fréttir um að #Kína hafi hótað að rústa áströlskum efnahag - og talið sig geta það. 
Ef mannréttindin eru svo talin með þá virðast stofnanir SÞ stefna norður og niður.

Kolbrún Hilmars, 19.5.2020 kl. 16:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband